Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hnappavellir

Hnappavellir 11 okt 2010 09:20 #10549

Skrifað 11 okt 2010 09:20
Lenging ferðamannatímans.

Ný klifurleið var farin í Hnappavallahömrum þann 7. janúar á þessu ári (Shrek er líka fólk WI4+). Í gær, 10. október, var boltuð og klifruð ný leið (Vetrarbrautin 5.9). Spurning hvort eitthvað gerist fram að áramótum.

Annars var sannkölluð sumarblíða á Hnappavöllum um helgina og fátt sem minnti á að komið væri haust. Fullt af ferðamönnum í Öræfum, þjónustumiðstöðin í Skaftafelli er opin, Fjallaleiðsögumenn enn með ferðir frá Skaftafelli og starfsemin á Jökulsárlóni opin.

Tftin_10_10_10.jpg

Re: Hnappavellir 11 okt 2010 09:54 #10550

Skrifað 11 okt 2010 09:54
Jón Viðar Sigurðsson wrote:
Í gær, 10. október, var boltuð og klifruð ný leið (Vetrarbrautin 5.9).


Glæsilegt! Hver boltaði og hvar er hún?

Allez!

Skabbi

Re: Hnappavellir 11 okt 2010 20:31 #10561

Skrifað 11 okt 2010 20:31
[/quote]

Glæsilegt! Hver boltaði og hvar er hún?
[/quote]


Já, hún er rétt vinstra megin við Saltstöngulinn. Held að gráðan sé nokkuð nærri lagi. Gæti endurskoðast eftir að veður og vindar hafa dustað rykið af klettinum í vetur. Er pínulítið fönkí á köflum eins og sumar leiðir í Salthöfðanefi.
Undirritaður skellti þessu upp í pásu frá klæðningarvinnu í Tóftinni. Reyndar tókst ekki að klára að klæða norðurgaflinn á Tóftinni þar sem einhverjir framtaksamir tjaldgestir á Hnappavöllum höfðu nýlega brennt spýtustubbana sem átti að nota. Þeir lágu hálfbrunnir við grillið. Mikil snilld.

Jón Viðar

Re: Hnappavellir 15 okt 2010 12:26 #10575

Skrifað 15 okt 2010 12:26
Glæsilegt.
Er þetta ekki slabbleið galore?
Man ekki betur en vinstra megin við Stöngulinn sé mega pólerað ofurslabb. Eins gott að vera með fótavinnuna á hreinu...
Verður spennandi að prófa djásnið í vor.

Re: Hnappavellir 16 okt 2010 13:12 #10580

Skrifað 16 okt 2010 13:12
Sigurður Tómas Þórisson wrote:

Er þetta ekki slabbleið galore?
Man ekki betur en vinstra megin við Stöngulinn sé mega pólerað ofurslabb. Eins gott að vera með fótavinnuna á hreinu...


Ég setti akkeri þarna fyrir ofan fyrir tveimur árum. Það er rétt Siggi, þetta er uber pólerað slabb og eftir að hafa spólað á því síðan gafst ég upp. Nýja leiðin er því aðeins lengra til hægri, nær Saltstönglinum. Byrjar upp sprungu og síðan út á vegginn. Tökin stækka eftir því sem ofar dregur.
Slabbið bíður síðan eftir ofurklifrurum sem kunna að finna eitthvað út úr því.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek