Hæ
Einn af frumkvöðlum nútíma klettaklifurs, Þjóðverjinn Kurt Albert, lést eftir að hafa fallið 18 metra úr via ferrata leið (þvílík kaldhæðni) í Frankenjura síðastliðna helgi.
Albert setti á sínum yngri árum upp margar af erfiðustu leiðum Evrópu og var fyrstur til að nota hugtakið "að rauðpunkta" (rotpunkt/redpoint). Þrátt fyrir að vera hálfsextugur var hann enn afkastamikill klifrari sem ferðaðist vítt og breitt um heiminn í leit að nýjum krefjandi klifurleiðum.
Við Bjöggi urðum þess heiðurs aðnjótandi að hitta kappann í Siurana fyrir nokkrum árum. Vorum nýkomnir á svæðið og vorum að vandræðast eitthvað með leiðarvísinn á barnum og velta fyrir okkur hvar við skyldum byrja daginn eftir. Konan á barnum (mamma hans Tony) aumkaði sig yfir okkur og hóaði í úfinn þýskan tröllkall, Kurt, og bað hann að fara í gegnum leiðarvísinn með okkur. Við höfðum ekki hugmynd um hvaða snillingur þetta var en hann tók sér langan tíma í að fara í gegnum leiðarvísinn með okkur, benda okkur á góðar leiðir og hvenær væri best að vera á hverju svæði. Ég hitti hann nokkrum sinnum á tjaldstæðinu eftir þetta og hann var ekkert nema almennilegheitin. Mokkru síðar kynntumst við þýskum strákum. Þegar við bentum þeim á þennan Kurt sem hafði kynnt okkur svæðið misstu þeir andlitið; "Kurt Albert!? Hann er algert legend!!" Þeir þorðu varla að horfa í áttina að honum...
Mér er einna minnistæðast hvílíka hramma maðurinn var með, ég er viss um að hann hefði haft Stebba Smára undir í krumlu.
Allez!
Skabbi