Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hrútsfjall

Hrútsfjall 30 ágú 2010 14:58 #10430

Skrifað 30 ágú 2010 14:58
Sumir eru í betra formi en aðrir. Alla jafna tekur það ÍFLM hópa um 12 - 14 tíma að klífa Hrútfjallstinda eftir Hafrafellinu. En það er hægt að gera það á styttri tíma en það. Geiri fór um daginn á 9:10 upp og niður með þrjá kúnna.
Í morgun bætti hans svo um betur og fór á 4:20 án kúnna - skilst að uppferðin ein hafi verið ca. 2:40.

Hlakka til að sjá hvað hann gerir í haust þegar færið á Hnúkinn fer að batna aftur.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Hrútsfjall 30 ágú 2010 20:41 #10433

Skrifað 30 ágú 2010 20:41
Veit nú ekkert hvaða Geiri þetta er. Rámar í einhvern Hvell-Geira. Var það ekki einhver teiknimyndafígura?

Kv. Árni Alf.

Re:Hrútsfjall 31 ágú 2010 08:34 #10434

Skrifað 31 ágú 2010 08:34
Geiri er náttúrulega undrabarn. Þegar hann fór þetta á 4:20 þá var það í 4 skipptið sem hann fór upp á viku.

Re:Hrútsfjall 31 ágú 2010 10:42 #10435

Skrifað 31 ágú 2010 10:42
Geiri Geiri Skaftafell Kallar :
Geiri svarar:
Hver var upptíminn spyr Ívar:
Tveir tímar og Fjörtíu og fimm mínútur

Þar höfum við það. Hlakka svo til að sjá hvað gerist næst.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Hrútsfjall 31 ágú 2010 19:15 #10436

Skrifað 31 ágú 2010 19:15
Varla fær maðurinn borguð full laun! Rétt nær dagvinnutíma í þessum ferðum. Sleppa kúnnarnir billegar úr svona ferð? Man bara að ferð á Hnjúkinn tók minnst 14 tíma oftar 16. Kannski fékk ég bara feitustu og fúnustu kúnnana. Eða var ég dragbíturinn? Bara svona vangaveltur hér í Hvalfirðinum.

Kv. Árni Alf.

Re:Hrútsfjall 31 ágú 2010 20:44 #10437

Skrifað 31 ágú 2010 20:44
Eitthvað hljóta aðstæður að hafa breyst á skömmum tíma ef það er óhætt að fara þetta sóló. Er það tilfellið? Rétt um miðjan ágúst var maður með hjartað í buxunum að silast yfir snjóbrýrnar sem ekki voru beisnar.

Re:Hrútsfjall 01 sep 2010 00:39 #10438

Skrifað 01 sep 2010 00:39
Eitthvað rámar mig í að stofnandi þessa þráðar hafi farið Hnúkinn á örfáum klukkutímum og það á hlaupum svo að ekki var þetta gert gangandi allavega :)

Re:Hrútsfjall 01 sep 2010 09:47 #10439

Skrifað 01 sep 2010 09:47
Geiri er náttúrulega úr járni!

Re:Hrútsfjall 01 sep 2010 11:21 #10441

Skrifað 01 sep 2010 11:21
Hvaða Geiri er þetta? Væri hægt að fá nafn og kannski mynd? Fjórar lappir og tálkn gætu kannski skýrt málið.

Kv. Árni sem segir dojjojojojó

Re:Hrútsfjall 01 sep 2010 21:40 #10442

Skrifað 01 sep 2010 21:40
Geiri? Lattelepjandi lopalalli af lélegustu sort! Sést treglega með bakpoka. Einbeittur með afbrigðum og útsjónarsamari en hann er hár! Þjáist merkilega lítið af vægri ofvirkni sem hellist þó yfir hann í köstum. Á sér verndarengil sem fórnaði öllu til að hjálpa Geira en til þess hefur víst ekki komið.
Þegar ég renni yfir myndasafnið kemur í ljós að Geiri er hreyfður á flestum myndum ... nema einni enda hangir hann þar allslaus (brodda- og axarlaus) í spotta ofan í sprungu!
Hér eru svo nokkrar myndir Árni minn til að skýra myndina.
Gott ef hann líkist þér ekki bæði til andans og lima!

picasaweb.google.com/lh/photo/k1VR2rl3baWJ-Q8uz6zerg?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/4hAnrNg70YKx9xl46hhaJQ?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/9G2mrIMqhfCq2RKoJjdXng?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/qj1cT9LvK67P9nE-gKWPPQ?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/_A86sDiR1wxbtyTk3TBj1Q?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/_A86sDiR1wxbtyTk3TBj1Q?feat=directlink

Re:Hrútsfjall 02 sep 2010 00:07 #10443

Skrifað 02 sep 2010 00:07
Respect Geiri, annars er ég með klifurtútturnar þínar, hringdu og ég skal hleypa þér inn, ekki skrúfa neitt í sundur. (Síðan les Dóri þetta væntanlega og sendir konunni hans Geira þetta með bréfdúfu. Hún kemur síðan skilaboðunum til skila).

Og Árni, ég er viss um að Geiri væri príma makker fyrir þig í eitthvað lopapeysu- gúmmístígvéla- krapa- gönguskíðasöffer. Hann fílar svona rugl líka.

Sissi

Re:Hrútsfjall 02 sep 2010 08:50 #10444

Skrifað 02 sep 2010 08:50
Hér er ein mynd til biðbótar af kappanum:

Re:Hrútsfjall 02 sep 2010 10:58 #10445

Skrifað 02 sep 2010 10:58
Hann er ógurlegur:
retro.smugmug.com/Ice-climbing/Hvannadalshnjúkur-29-ma%C3%AD/12856026_yufqi#927868006_PVfQa

Re:Hrútsfjall 02 sep 2010 11:02 #10446

Skrifað 02 sep 2010 11:02
Þetta er magnaður tími. Ætla rétt að vona að hann hafi tekið 2,5 tíma ferð eftir hádegi úr því hann tók bara svona 4 tíma ferð um morguninn.

Legg til að Geiri fái þessa rauðhærðu fígúru sem límmiða á hjálminn sinn.

Re:Hrútsfjall 15 sep 2010 16:07 #10464

Skrifað 15 sep 2010 16:07
Það sem kannski gleymdist í þessum pósti var að Geiri fór með 2 kúnna upp á 10,5 klst daginn áður en hann skrapp til að setja tímamet og til að svara Steinari þá fór hann ekki í 2,5 tíma ferð seinnipartinn heldur fór hann í ísklifur með 4 kúnna og ætlaði ekki að fást til að hætta, mig minnir að hann hafi verið frá kl 13 til kl 19 í klifrinu.

Re:Hrútsfjall 17 sep 2010 13:36 #10466

Skrifað 17 sep 2010 13:36
Glæsilegur tími Geiri, ég minnist þess að í sumar þegar þú komst og vildir fá hitara til að hafa í tjaldinu þínu yfir nótt, því þú ætlaðir svo sannalega ekki að sofa í óupphituðu tjaldi ;)

en ekki ætla ég að reyna að leika þetta eftir
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.44 sek