Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Eystra- og Vestra-horn

Eystra- og Vestra-horn 06 ágú 2010 08:51 #10380

Skrifað 06 ágú 2010 08:51
Var á rúntinum um SA-land um daginn og varð forvitinn.

Er einhver sem veit hvað og hvort hefur verið klifrað í Eystra-horni? Voru ekki Jökull, Stebbi ofl einhverntíman með e-ð prósjekt í gangi þar? Hefur eitthvað annað verið klifrað þar?

Og hvernig er það með Vestra-horn? Nú þykist ég vita að 'Saurgat Satans' og 'Ódysseifur' hafi verið klifraðar nokkrum sinnum hvor. En hvernig er með aðrar leiðir? Hefur Nemesis t.a.m. einhverntíman verið endurtekin? Í gömlum ársritum er líka talað um fleir leiðir á Kamphornið (sá hluti vestra-horns sem Nemesis liggur í, þ.e. tindurinn fyrir ofan Ódysseif og Saurgatið). Þekkir einhver til þessara leiða og hvar þær fara upp?

Í gömlu ársriti er talað um að Snævarr, Doug Scott ofl hafi klifið Rustanöf (sem er sá hluti Vestra-Horns sem maður keyrir undir á leiðinni út að gömlu ratsjárstöðinni á Stokksnesi). Veit einhver eitthvað meira um þessa leið?

Re:Eystra- og Vestra-horn 06 ágú 2010 11:10 #10381

Skrifað 06 ágú 2010 11:10
Góður póstur, Óli.

Svo er það Brunnhorn sem er ansi tignarlegt. Hefur einhver klipið í það?

Hér er mynd frá Steppo: gallery.askur.org/v/stefank/album327/album89/DSC00460_001.jpg.html

AB

Re:Eystra- og Vestra-horn 06 ágú 2010 12:06 #10382

Skrifað 06 ágú 2010 12:06
Brunnhorn hefur, að ég held, verið klifið nokkrum sinnum. Minnir að ég hafi lesið í einhverjum ársritum að Snævarr og co. hafi farið þar upp og einnig gamla drulluspíruklíkan úr Kópavogi (Björgvin Richards, Jón Haukur, Valdi Harðar, Guðni Bridde ofl).

Væri gaman að fá e-k lýsingu á þeirri leið líka og hvort um fleiri en eina leið er að ræða.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek