Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Kerlingareldur

Kerlingareldur fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10353

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
Við Sædís fórum Kerlingareld í Svarfaðardal í gær í norðlensku blíðviðri :)
Þetta er virkilega flott og skemmtileg klifurleið sem óhætt er að mæla með. Ein flottasta klettaklifurleið landsins?

Jökull og Freysi boltuðu 3 nýja stansa í fyrra auk þess sem einn bolti var settur við illtryggjanlega krúxið í 4. spönn. Gott framtak hjá þeim. Nú eru reyndar tveir stansar með nokkra metra millibili ofan við 4. spönn.
Við enduðum á því að skipta 5. spönn upp í 2 spannir þar sem mikið rope-drag myndaðist við það að fara út á hornið í efri hlutanum.
Eftir að hafa spókað okkur á toppi berggangsins sigum við niður í þremur sigum.

Frábær dagur á fjöllum!

Berglind

Re:Kerlingareldur fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10354

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
Snillingar.

Re:Kerlingareldur fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10355

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
Nice ! Mig hefur lengi langað að fara hana. Er mikið laust í henni? Hef slæma reynslu af lausu grjóti í Heljaregg og langar ekki mikið í aðra flugferð ;)en annars keep up the good work og endilega póstið myndum =)
Kv.Öddi

Re:Kerlingareldur fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10356

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
Vel gert!

Það væri gaman að sjá myndir úr ferðinni.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re:Kerlingareldur fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10357

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
*klapp* *klapp*

Vel gert stelpur!

Skabbi

Re:Kerlingareldur fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10359

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
Alltaf verið að brjóta blað í sögu þessarar leiðar.
Nú fyrsta al-kvenna-klifrið. Gaman að því.
Glæsilegt dömur!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek