Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal

Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10347

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
Langaði að deila þessari uppgötvun með ykkur hinum sem kíkið stundum í Valshamar. Kannski eru þetta gamlar fréttir þó ég hafi verið að heyra af þessari snilld fyrst núna.

Á Bæ í Eilífsdal er að finna veðurstöð og vefmyndavél sem snýr einmitt að Valshamri. Svona tækniundur kemur sér einkar vel á dögum eins og dag þegar skúraði og þyrmdi yfir sumum í Reykjavík meðan sólin bakaði klettana í Valshamri.

Mæli með þessari veðurstöð og vefmyndavél.
Kæru ábúendur á Bæ. Takk fyrir afnotin.

Re:Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10348

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
Vantar bara að geta snúið henni upp í ísþilin innar í dalnum þegar vetrar...
Hvernig er afstaðan frá þessum merka bæ upp á það að gera?

Vorum að gæla við þessa vefmyndarpælingu um árið fyrir Eilífsdals ísaðstæður en ekkert varð meira úr því en góð pæling.

Re:Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10349

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
Af ja.is sýnist sem afstaðan milli Bæjar og Eilífsdals/íss sé nokkuð góð.
Það má kannski díla við bóndann um að snúa vélinni er fer að hausta.

Re:Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10350

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
Þetta er frábært ... aldrei aftur í Valshamar í leiðinlegu veðri ...

Re:Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10351

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
viðrar ekki vel til loftárása í dag? ætla menn og konur út að leika í dag?

Re:Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10352

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
Já, og ekki væri verra að hafa tré eða fána inná...til að sjá átt og styrkleika vinds ; )
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek