Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klettaklifurfestival

Klettaklifurfestival 03 júl 2010 17:33 #10321

Skrifað 03 júl 2010 17:33
Hæhæ ...

Það styttist nú í festivalið á Hnappavöllum, helgin 9. - 11. júlí hefur verið sett fyrir herlegheitin. Í ár verður þetta 2ja manna liðkeppni sem stendur yfir á laugardeginum. Meira um dagskránna og fyrirkomulagið hér:

http://klifurhusid.is/?subj=hnappothon2010

Það einfaldar skipulagið að þeir sem ætla að mæta skrái sig sem fyrst svo endilega drífa í því. Upplýsingar um að eru undir tenglinum að ofan einnig.

Kveðja,
Gulli

Re:Klettaklifurfestival 07 júl 2010 11:17 #10330

Skrifað 07 júl 2010 11:17
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re:Klettaklifurfestival 07 júl 2010 16:14 #10331

Skrifað 07 júl 2010 16:14
Hahaha, geðgt!

Re:Klettaklifurfestival 08 júl 2010 18:36 #10332

Skrifað 08 júl 2010 18:36
Eru menn og konur búin að spá í veðrið f. austan um helgina. Á það að haldast þurrt báða dagana eða ætla menn og konur ekkert að láta veðrið hafa áhrif á sig bara að fara samt?

Einn voða spenntur....

Re:Klettaklifurfestival 08 júl 2010 23:23 #10333

Skrifað 08 júl 2010 23:23
Bara fara og gleyma að hugsa. Spáin segir líka að veðrið eigi að sleppa. kannski skúr um hádegið en vonandi ekki meir.

Venga!
HRG.

Re:Klettaklifurfestival 08 júl 2010 23:34 #10334

Skrifað 08 júl 2010 23:34
Mér fróðari menn (RÍV) segja að búast megi við smá skúr í hádeginu á laugardaginn og annars flott.
Veðrið klukkan tólf. Fyrir og eftir þá reiknast ekki úrkoma.
A41.png

Re:Klettaklifurfestival 12 júl 2010 00:00 #10338

Skrifað 12 júl 2010 00:00
Hvernig fór helgin á Hnappó?
Hver var með besta Ghettoblasterinn?
Sprengdi einhver stigaskalann?

Héldu skúrirnar sig fjarri Völlunum?

Re:Klettaklifurfestival 13 júl 2010 09:20 #10342

Skrifað 13 júl 2010 09:20
Frétti af regni á laugardeginum. Heyrði líka að menn hafi nýtt tímann við að hlaða batterín, bæði mannlegu- og ghettoblaster batteríin, farið svo út um sexleytið þegar stytti upp og klifrað inn í nóttina.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re:Klettaklifurfestival 13 júl 2010 10:52 #10343

Skrifað 13 júl 2010 10:52
Já, það gekk vísu á ýmsu um helgina en allir voru sáttir þegar upp var staðið. Úrslitin voru þessi:

Í stigakeppninni:

1. Katrín Möller og Danni Máss.
2. Stebbi Smára og Jón Viðar
3. Róbert og Sigurður Tómas

Lengdarmetrar:

1. Róbert og Sigurður Tómas
2. Stebbi Smára og Jón Viðar
3. Katrín Möller og Danni Máss.

Fleiri lið voru auðvitað mætt til leiks en bara komust ekki á blað. Er því miður ekki með nákvæman fjölda stiga eða lengdarmetra.

Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki. Glacier Guides gáfu fyrstu verðlaun í stigakeppninni, jöklagöngu fyrir tvo. Fyrir annað og þriðja sæti var ís frá Árbæ og voru menn einstaklega ánægðir með verðlaunin sín.

Sundlaugin á Svínafelli styrkti okkur einnig og gaf verðlaun fyrir öll sæti í lengdarmetrum, frítt í sund!

Síðan voru það þær Lóa og Rakel sem fengu verðlaun fyrir flottustu tónlistina og gaf plötubúðin Havarí þeim sitt hvort settið af geisladiskum, m.a. Hitaveituna og Terminal með Hjaltalín.

Annað sem vert er að taka fram er að nú er kominn gafl í tóftina og þetta því orðið hið besta skjól fyrir veðri og vindum.

Annars bara takk til allra sem lögðu hönd á plóg!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek