Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Stardalur, heitur reitur í dag ?

Stardalur, heitur reitur í dag ? fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan #10309

Skrifað fyrir 1 ári, 7 mánuðum síðan
Í gær var ótrúlega gott veður, og voru alls 10 manns í Stardalnum! Einhverjir þeir sömu og voru þar á Stardalsdeginum 17. júní í síðustu viku.

Allavega vorum við fimm saman- ég, Addi, Dabbi, Einar og Ágúst Kr. ásamt fimm öðrum sem voru saman og skemmtum okkur vel.


Stardalur er ekki langt frá bænum, rétt undir Skálafelli þar sem hægt var að skíða í gamladaga þegar snjóaði á Íslandi. Samkvæmt leiðarvísinum eru 86 leiðir í Stardal.

Stardalur er dótaklifursvæði - leiðirnar eru ekki boltaðar og þarf því að nota hnetur, vini, tricams, hexur oþh búnað í þeirra stað. Einnig er yfirleitt auðvelt að ganga uppfyrir klettinn og koma fyrir toppakkeri.

*Passið bara að skilja ekki dótið eftir þar sem ég er að klifra, ég gæti notað það í akkeri
kv, Gummi
www.climbing.is
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek