Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Fatnaður - þriggja laga eða eitthvað allt annað?

Fatnaður - þriggja laga eða eitthvað allt annað? fyrir 1 ári, 9 mánuðum síðan #10181

Skrifað fyrir 1 ári, 9 mánuðum síðan
Nú stendur til að endurnýja úlpu og jafnvel meiri fatnað fyrir komandi ævintýri á fjöllum og það brýst svolítið í mér hvað á að velja. Helst velti ég því fyrir mér hvort að maður eigi að halda sig við "hefðbundna" þriggja laga systemið sem flestir virðast nota á Íslandi í dag eða hvort maður ætti að prófa fatnað eins og Buffalo, sem gefur sk** í þriggja laga lögmálið (www.buffalosystems.co.uk/). Auk þess velti ég því fyrir mér hvaða þriggja laga útfærsla er best

Hvað segja reyndir og óreyndir: Hafa einhverjir verið að nota önnur "kerfi" en þriggja laga og þá hvernig? Hvaða þriggja laga merki/blanda er að virka best? Hafa menn annars einhverja skoðun um hvað er besti útivistarfatnaðurinn í dag?

Ég mun halda í semi erfitt fjallabrölt í ölpunum í sumar og því ekki verra að vanda valið. Allar tillögur og þankagangur væri vel þeginn.

Re:Fatnaður - þriggja laga eða eitthvað allt annað fyrir 1 ári, 9 mánuðum síðan #10183

Skrifað fyrir 1 ári, 9 mánuðum síðan
Þetta er allt sama tóbakið... heima er górullinn king vegna úrkomunnar, í ölpunum kemstu upp með minni vatnsheldni og getur tekið meira "soft-shell" dót fyrir klifur í hæð.

Maður er samt alltaf smeykur að skilja við sig skelina enda alinn upp í þessu veðravíti hérna heima, þeim fjölgar samt sem eru t.d. nánast hættir að nota górullar-brækur en taka stakkinn með.

Ef þú átt mujos mikinn pjening þá er komið mikið af vönduðum "soft-shells" sem virka nánast eins og górullin, Patagonia, Mammut, ArcTeryx ofl.ofl.

Góðar stundir!
-R

Re:Fatnaður - þriggja laga eða eitthvað allt annað fyrir 1 ári, 9 mánuðum síðan #10184

Skrifað fyrir 1 ári, 9 mánuðum síðan
Þetta snýst allt um útlitið, keyptu það sem kemur best út á mynd punktur
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek