Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta

Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 21 apr 2010 15:48 #10170

Skrifað 21 apr 2010 15:48


Við Bjöggi og Óli Hrafn ætlum að kíkja í Stardal á morgun. Ef e-r hafa áhuga á að kíkja með er það velkomið.

Skabbi
864 5834

Re:Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 21 apr 2010 20:26 #10171

Skrifað 21 apr 2010 20:26
Hi Scabbi!I would be interested.Can you give me some information?

Re:Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 22 apr 2010 09:05 #10172

Skrifað 22 apr 2010 09:05
Var Óli mættur með tupperware safnið?

Re:Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 23 apr 2010 09:28 #10175

Skrifað 23 apr 2010 09:28


Vetur og sumar frusu saman í Stardal í gær en það kom ekki að sök enda hlýnaði hratt undir klettunum í sólinni. Klifur var með besta móti og ekki spillti útsýnið yfir gosmökkinn frá Eyjafjallajökli.

Óli rogaðist með duffelbag úttroðinn af matvælum upp brekkuna, hélt Tupperware kynningu fyrir okkur í matarpásunni á meðan hann smjattaði á baguette með 4 tegundum af ostum, Chorizo Extra, ansjósufylltum ólífur, súrsuðum smálaukum og rækjusalati.

Góður dagur á fjöllum, fóru aðrir út að leika?

Allez!

Skabbi

Re:Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 23 apr 2010 09:54 #10176

Skrifað 23 apr 2010 09:54
Ekki vanur að hengja mig í smáatriðunum en þetta var kartöflusalat... takk fyrir góðan dag... gleðilegt sumar á alla.

Kv.
Óli Hrafn

Re:Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 23 apr 2010 10:12 #10177

Skrifað 23 apr 2010 10:12
Flottir,

Við skruppum þrír til Grundarfjarðar og skelltum okkur á Kirkjufell í glampandi sól og flottheitum, frekar kalt á toppnum, snjór efst og í austurhlutanum. Frábær sumardagur

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Klifur á morgun - Sumardaginn fyrsta 25 apr 2010 14:26 #10180

Skrifað 25 apr 2010 14:26
Við skruppum 2 ég og Leifur í Skarðsheiðina á öðrum í sumri. Fórum upp NV-vegg Skessuhorns í skemmtilegum aðstæðum og frábæru veðri.

Dóri
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.21 sek