Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Mission ársins?

Mission ársins? 24 feb 2010 10:16 #9957

Skrifað 24 feb 2010 10:16
Það hefur lítið borið á umræðu um leiðangra og mission á þessu ári, til fjarlægra landa og hávaxinna fjalla (eða ég misst af umræðunni...).

Er kreppan búinn að sjúga allan kraft úr leiðangurgröðum körlum og konum eða er hugsanlega eitthvað í pípunum? Endilega segið frá.

Re:Mission ársins? 25 feb 2010 19:29 #9987

Skrifað 25 feb 2010 19:29
Missions for this year:
- climb 8a or in Iceland or wherever on this planet.
- climb Chocolat Chaud and Flying Circus (M10)
- climb the harder route on Thumall (trad)
- climb Sundlaugarparty trad
- Walk to Iceland's highest point
- Get/stay sponsored by Petzl (or BDel), Cintamani, Boreal and Sterling and any other company that has some money to spend these days :)
- Move to Kandersteg next Autumn/Winter and climb all routes there (multipitch. trad, mixed and ice)
- Join the WC iceclimbing and get into the finals on lead and speed
Who's up for training with me?
I mean running, biking, core stability training, fingerboard-hanging, climb trad in Hnappavellir, climb ice in summer time, train for speedclimbing (ice), have figure-of-four-figure-of-nine-sessions, and just climb loads of meters of rock.
Actually, this is a serious question...I need people to train with me :)
So...what's your mission???
Greetings from Kandersteg (CH)

Re:Mission ársins? 25 feb 2010 21:40 #9988

Skrifað 25 feb 2010 21:40
Hard to read this without getting jolly inspired - you are a remarkable lady!

As I'm most of the time short climbing partners in the Alps, will be good to know you'll be in Kandersteg next winter.

My mission is to climb more, not just day-dreaming about climbing!

Peace out from Biskupssteinn
Halli

Re:Mission ársins? 03 mar 2010 11:47 #10021

Skrifað 03 mar 2010 11:47


Mogginn segir mér að Ágúst Kristján Steinarsson ætli á 7 alpatinda á 10 dögum í sumar, þeirra á meðal Matterhorn og Eiger. Ef þetta er ekki mission sem vert er að segja frá!

Hvernig ætlið þið félagarnir að undirbúa ykkur undir þetta metnaðarfulla verkefni? Ætlið þið að fara á eigin vegum eða leigja leiðsögumenn?

Mitt eigið markmið er að vera í góðu formi þegar ég fer til Lofoten í ágúst. Boltar eru sjaldséðir á þeim slóðum þannig að maður verður líklega að hengslast upp í Stardal oftar í sumar en verið hefur undanfarin ár. Einnig að reyna við lengri leiðir á borð við Saurgat Satans Vestrahorni og Kerlingareld í Svarfaðardal.

Í Lofoten er draumurinn að klifra Vestpillaren á Presten, 436 metrar, 13 spannir, 5.10 a/b.



Hvers virði er markmið ef maður segir ekki frá þeim fyrirfram?

Allez!

Skabbi

Re:Mission ársins? 03 mar 2010 14:41 #10026

Skrifað 03 mar 2010 14:41
Jú - væntanlega eitthvað til að segja frá enda rataði það á baksíðu Moggans og víðar. Það er bara betra að segja frá svona í fjölmiðlum frekar en á ísalp síðunni. ;-) (og já - facebook var búið að frétta af þessu líka...)

Annars er þetta nýákveðið, þ.e. flugmiðar keyptir, og við vorum á leiðinni að fara að blaðra þessu út úr okkur. (Upptekinn að tala við fjölmiðla sko ;-))

Annars eru þetta tindarndir sem við stefnum á:
    Breithorn, 4.164 metrar Castor 4.226 metrar Pollux 4.092 metrar Lyskamm 4.226 metrar Monte Rosa 4.634 metrar (fyrstu fimm tindarnir eru hluti af hæðaraðlögun og er oft þekkt sem Breithorn traversan eða Spaghettí traversan.) Matterhorn 4.478 metrar (Aðal markmið ferðarinnar, munum fara upp ítölsku leiðina, Lion‘s Ridge) Flott mynd að neðan Eiger 3.970 metrar (Bónusfjall ef við náum að fara allt hitt á réttum tíma, förum upp Hörnligrat leiðina.




Það verður enginn gæd þannig að við þurfum að kynna okkur fjöllin ansi vel. Varðandi líkamlegan og hæfnislegan undirbúning þá ætlum við bara að missa okkur í fjallamennsku á næstu mánuðum og höfum ýmsar hugmyndir sem eru þó ekki ákveðnar, kannski koma einhverjar fregnir af því.

Annars er þetta okkar frumraun í alvöru fjöllum, þ.e. utan Íslands, og því ekki farið allt of hratt af stað, þó hratt sé farið. Svo kemur bara í ljós hvort það sé eitthvað vit í þessu plani þegar á reynir.

Og já - hópurinn samanstendur af:
- Mér
- Magga Smára, Akureyringi og hjálparsveitarkappa
- Jóni Heiðari, Akureyringi og hjálparsveitarkappa
- Erni Árnasyni, Kópavogsbúa kenndan við Hóla í Hjaltada.

Svo ef einhver hefur áhuga þá er brot af fréttinni hér: www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/03/03/stefnir_a_sjo_tinda_evropsku_alpanna/

Re:Mission ársins? 03 mar 2010 16:23 #10027

Skrifað 03 mar 2010 16:23
Ábending Ágúst,
Stefnan er á Lion traversuna s.s upp lion ridge og niður Hörnligrat
Eiger leiðin mun vera Mitteledge

Re:Mission ársins? 03 mar 2010 16:25 #10028

Skrifað 03 mar 2010 16:25
Ok. Betra að hafa staðreyndirnar á hreinu ;-)

Re:Mission ársins? 03 mar 2010 18:17 #10029

Skrifað 03 mar 2010 18:17
Lófóten já!

Hehe, hvað ertu að gera með mynd af rassinum á honum Aslak, Skabbi?

Ég stefni að því að eyða nokkrum vikum í Lófó sjálf en set þó markmiðið aðallega á bjórþamb, grjótglímu og varðeldsstemmara. Jibbí.

Re:Mission ársins? 03 mar 2010 21:28 #10030

Skrifað 03 mar 2010 21:28
Innilega til hamingju Ágúst með glæsilegt verkefni. Ég vona svo sannarlega að þér gangi vel í þessu. Ég veit hvað það er að setja sér takmark það er frábært. Það allra besta við það er þegar maður uppsker árangur erfiðisins þegar takmarkinu er náð. Ég sjálfur er með mission í ár en það verður ekki rætt frekar á þessari síðu.
Baráttukveðja Olli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek