Dynjandi klifraður í fyrsta skiptið
fyrir 2 árum síðan #9863
Skrifað fyrir 2 árum síðan
Eða það held ég. Hálkan getur verið varasöm eins og sést í lokin. Leiðin er 120 metrar og svakalega létt. Mun léttari en ég hélt. Setti inn eina skrúfu. Við vorum innan við klukkutíma að þessu.
Arnarfjörður er alveg snjólaus. Við reyndum að keyra út að Lokinhömrum en vegurinn er illa skemmdur. Þar ku vera svakalegar ísleiðir. Sáum nokkrar mjög lofandi fyrir utan Þingeyri.
Re:Dynjandi klifraður í fyrsta skiptið
fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan #9869
Skrifað fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan
Kláraði leiðina á ,,einari" og seig svo eftir exinni. Hún var pikkföst í einu ís stykkinu sem enn hékk uppi. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég kem í Arnarfjörðinn á þessum árstíma, enda venjulega allt lokað á milli. Vonandi fer að frysta og við getum kíkt á eina flott leið ekki langt frá Hrafnseyri.
Re:Dynjandi klifraður í fyrsta skiptið
fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan #9870
Skrifað fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan
Vá, brútalt!
Á ísfestivalinu á Bíldudal í fyrra sögðu heimamenn okkur að Dynjandi væru verðugasta verkefnið í firðinum, enda hár og svínbrattur. Vel gert herrar, og góð redding þarna í lokin!
Re:Dynjandi klifraður í fyrsta skiptið
fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan #9873
Skrifað fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan
Þetta hefur nú lengi við draumur Vertzfirskra klifrara...að fara fallegasta foss landsins í klakaböndum. Vel gert Rúni og Búbbi! Hvað borgaðir þú fyrir þessa Hero CAM vél?
Splæstum í HD vélina ásamt einhverjum aukahlutum. Held þetta hafi verið um $400.
Alveg ótrúleg gæði en skrárnar eru svakalega stórar og ætli maður þurfi ekki að fjárfesta í nýrri tölvu líka....
Tekur líka fínar ljósmyndir en það er ekkert display. Verður fljótlega hægt að kaupa skjá aftan á vélina.
Re:Dynjandi klifraður í fyrsta skiptið
fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan #9883
Skrifað fyrir 1 ári, 12 mánuðum síðan
Talandi um GoPro að þá var þetta var jólagjöfin í ár hjá mér. Er búinn að taka hana út að leika töluvert......og henti inn einu klifurmyndbandi í byrjun árs. Hér gefur að líta frumraunina fyrir þá sem hafa ekki séð það. Var með vélina á löngu priki sem útskýrir hristinginn í seinni hluta myndbandsins.
http://www.youtube.com/watch?v=8PBm-e45XfU
Er með tvö önnur mynbönd undir project en þar sem það er svo mikið að gera í klifrinu að þá gefst ekki tími til að klára að klippa það til.
Mæli klárlega með þessari vél, og þá sérstaklega HD. Bíð spenntur eftir að fá surf festingarnar og taka þær í prufukeyrslu.
Hérna gefur að líta myndband sem var skotið á sömu vél á Laugaveginu í sumar, þeas gömlu týpuna ekki HD.