Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Brynjudalur

Brynjudalur fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9651

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Jæja hverjir voru að paufast í Brynjudal síðastliðinn sunnudag? Enga feimni!

Svar:Brynjudalur fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9659

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Tja, við vorum 3 í Flugugili á sunnudag og tókum ekki eftir neinum öðrum.

Ági

ps. Ég, Gunni Magg og Hrönn Ólafs klifruðum leiðina beint á móti Spora í gær( sömu og Freyr og félagi á sunnudag). Hún var bara fín svosem.

psps. Er einhver laus í klifur á morgun, miðvikudag? Langar að ná einum degi í viðbót fyrir hlákuskotið. S: 695 3310

Svar:Brynjudalur fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9673

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Við fórum fjórir úr Hafnarfirðinum, ég, Raggi Þrastar, Tómas og Örvar. Kíktum í fossana í klettabeltinu norðanmegin í dalnum og ætluðum að hafa þetta kósíklifur í sól og sumaryl. Okkur til mikillar mæðu þá er sólin svo lágt á lofti að hún kom aldrei yfir fjöllinn.

Klifurðum tvær augljósar einnaspanna leiðir ofan við eyðibýlið Hrísakot. Kíktum síðan að lokum í hausljósa klifur í næst neðsta haftinu í Húsagili, ánni sem rennur undir brúnna við beygjuna á veginum inn dalinn. Það var svo sem aðalega gert í tilefni af því hversu vel frosið þetta var allt saman.

Svar:Brynjudalur fyrir 2 árum síðan #9708

Skrifað fyrir 2 árum síðan
Örvar er búin að setja inn myndir frá klifrinu,

www.flickr.com/photos/16906636@N05/

Um að gera að nýta hlákuna í að skoða myndir.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek