Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísklifur í hjarta bæjarins

Ísklifur í hjarta bæjarins 04 jan 2010 15:41 #9643

Skrifað 04 jan 2010 15:41
Margir hafa sennilega tekið eftir vænum ísbunkum við vegkantinn á leið í gegn um Mosfellsbæinn. Þetta verður oft vel ísað, en hvergi er það mjög hátt eða bratt.

Nú hefur aftur á móti verið sprengt duglega í bergið til þess að útbúa risavaxið bílastæði við Korputorg. Þar er hellingur af ís og þokkalega háir veggir undir flóðlýsingu frá bílastæðinu. Fljótlegt er að hlaupa upp fyrir klettinn og snara einhverju utan um ljósastaurinn fyrir ofan og taka gott æfingasession í lóðréttum ís. Leiðirnar eru allt frá lágum og vel auðveldum byrjandaís út í lóðréttan mikið kertaðan ís og mix. Hæstu leiðirnar eru líklega 8 metrar eða svo.

Snilld á virkum dögum í hádeginu, á leið heim úr vinnu eða á kvöldin.

Svo má ekki gleyma að það er pylsuvagn hinum megin við planið.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Svar:Ísklifur í hjarta bæjarins 04 jan 2010 16:29 #9644

Skrifað 04 jan 2010 16:29
Jæja, segið svo að góðærið hafi ekki fært okkur eitthvað nytsamlegt.

Krepputorg sér um sína.

AB

Svar:Ísklifur í hjarta bæjarins 05 jan 2010 01:01 #9653

Skrifað 05 jan 2010 01:01
Það var sannarlega sósjal stemmning á bílastæði Krepputorgs í kvöld. Tíu manns mættu á svæðið og munduðu axir og brodda.
Hressandi mánudagskvölds-afþreying.
Nokkrar myndir frá hittningnum.

Svar:Ísklifur í hjarta bæjarins 05 jan 2010 11:33 #9655

Skrifað 05 jan 2010 11:33
Hvernig er það annars með turnin í Grafarvogi, datt engum í huga að kveikja á honum í þessum flotta frostakafla sem er búin að vera?

Kv.
Arnar
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek