Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Nýj leið í Eyjafjöllum

Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9629

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Það er tískan núna að klifra nýjar leiðir. Guðjón Snær, Guðmundur Helgi og Viðar kláruðu leið sem ég og Olli klifruðum hálfa um árið.
Sjá má grein um það hér.
www.isalp.is/greinar/6-laestar-greinar/179-Paradís.html

Hún fékk nafnið Afi. En Viðar fékk símtal í miðju klifri að hann væri orðin afi.

Ég var fastur í barna uppeldi og tók gaurinn með í ljósmyndaferð í staðinn og má sjá hluta af afrakstrinum hér.
picasaweb.google.com/pallsveins/Eyjafjol...ParadisarheimtOgAfi#

Ég smellti nokkrum myndum af þeim sem voru í Paradísarheimt en ég sá tvö pör í orginalnum og eitt í skoruni. Þeir meiga alveg merkja sig inn á myndirnar ef þeir vilja. Geta líka fengið eintök hjá mér ef þeir hafa áhuga.

kv.
Palli

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9630

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Vó!
FLOTT!

Til hamingju með titilinn Viðar!
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9633

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Glæsileg leið og til hamingju með nýtt hlutverk Viðar. Einhvern vegin tengir maður þessa tign sjálfkrafa við eftirlaunaaldurinn ... hugsið ykkur hvað hægt verður að gera þá... ef maður bara fer varlega núna?
Annars skældumst við Leifur upp Orginalinn í Paradísarheimt í fylgd Steppó og Kalla. Álengdar (í Skorunni) voru svo Halldór og Ásgeir)
Setti nokkrar myndir frá þessum magnaða degi í logni, ís og sól.picasaweb.google.com/jongauti/IsklParadi...eimt?feat=directlink

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9634

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Jáseisei. Sennilega ekki svona margir klifrað á Eyjafjöllum á einni viku síðan sautjánhundruðorsúrkál (ef einhvern tímann).
Vonandi að maður geti komist í að bragða af þessum fágæta elexír þennan veturinn.

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9635

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Hér eru nokkrar myndir frá í dag.
En eins og fram kom hjá Palla þá fórum við Guðmundur Helgi og Viðar nýja leið undir Eyjafjöllunum í dag.
picasaweb.google.com/gudjons/2010_03_01AfaleiIn?feat=directlink

Guðjón

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9637

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Er verið að trá salt í sárið að setja þessa mynd á forsíðuna?

kv.
Palli

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9638

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Nei, því miður var enginn svona sniðugur ... þetta er bara hending.

Svar:Nýj leið í Eyjafjöllum fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan #9645

Skrifað fyrir 2 árum, 1 mánuði síðan
Hér koma fleiri myndir frá Canada Dry

arnarogberglind.smugmug.com/2010

njótið vel,

Arnar
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek