Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Meira af flottum ís. Allt að gerast.

Meira af flottum ís. Allt að gerast. 30 des 2009 09:50 #9597

Skrifað 30 des 2009 09:50
Ég og Guðjón Snær tókum okkur frí í gær og nýttum þetta einstaka tækifæri að Eyjafjöllin eru í topp aðstæðum.
Í þetta sinn fórum við í Dreitil.

picasaweb.google.com/pallsveins

kv.
Palli

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 30 des 2009 10:27 #9598

Skrifað 30 des 2009 10:27
Palli greyið að reyna að hoppa inn í nútímann með því að sleppa fetlunum en svo grýtir hann bara tólunum niður fossinn... :)

Maður verður kannski að fara að drífa sig þarna austureftir meðan frostið hangir svona.

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 30 des 2009 11:27 #9599

Skrifað 30 des 2009 11:27
Þetta eru glæsilegar leiðir undir Eyjafjöllum. Hér er líka allt í myljandi aðstæðum en engin er sólin. Fórum á þriðja í jólum eina klassíska á Óshlíðinni. Tæpir hundrað metrar og ekki nema 10 mín gangur að leiðinni. Reyndar var annar félaginn frekar framlár eftir gleði næturinnar og slepptum við efstu 30 metrunum sem eru vel í fangið, blautir og kertaðir.

Svo er maður líka orðinn fetlalaus eins og Palli. Búinn að gera breytingar á gömlu öxunum og endurskíra þær Simond Dildo. Frekari breytingar í farvatninu...
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 31 des 2009 10:45 #9602

Skrifað 31 des 2009 10:45
Þegar við Palli vorum að koma úr klifrinu í Dreitli mætti bóndinn á svæðið. Hafði áhyggjur af því að hann sá engin ljós uppi á brún og hélt því að við værum kannski í einhverjum vandræðum. Var víst búinn að vera að fylgjast með okkur allan daginn. Hann óskað eftir því að menn létu vita af sér á bænum þegar verið er að fara að klifara þarna, enda landeigandinn:).
Beini því hér með til allra að láta vita af sér. Þetta er bærinn fyrir framan leiðirnar.

Guðjón Snær

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 31 des 2009 11:53 #9603

Skrifað 31 des 2009 11:53
Já það ætti nátturlega að vera siður allra klifrara að keyra heim að bæ og biðja um, og fá leyfi til að klifra í þeirra landi.
Þessi umræða þarf svo ekkert að snúast um umgengnisrétt okkar eða nokkuð slíkt. Það er bara svo lítið mál, og sjálfsögð kurteisi, að banka upp á og segja til um hvert maður ætlar að fara þegar maður fer um land þar sem augljóslega er búið.

Hvatning til allra klifrara að vera kurteisir! já og duglegir!

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 31 des 2009 22:04 #9604

Skrifað 31 des 2009 22:04
Já, síðasta ísklifur ársins á mínum bæ var prýðileg ferð á gamlársdag í Óríon í Flugugili í Brynjudal með Arnari og Berglindi Shivlingtröllum.
Ansi athyglisverðar aðstæður en nóg af ís, bara ekki sérlega samfelldur eða samvaxinn...
Hendi inn myndum á morgun.

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 02 jan 2010 16:03 #9606

Skrifað 02 jan 2010 16:03
Humm
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 02 jan 2010 16:35 #9607

Skrifað 02 jan 2010 16:35
Bíddu bíddu! Kallinn kominn með nýjar axir!? Og nýjan hjálm!? kreppa hvað?

Skabbi

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 02 jan 2010 19:16 #9608

Skrifað 02 jan 2010 19:16
Myndir úr Óríon komnar á
picasaweb.google.com/hraundrangi/Orion31Des2009#

Fyrir áhugasama þá varÝringur víðs fjarri því að vera í aðstæðum. Nánast enginn ís í stóra haftinu uppi. Sennilegar stórfellt vatnsleysi að hrjá greyið.

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 02 jan 2010 20:25 #9609

Skrifað 02 jan 2010 20:25
Palli flottur með heitustu græjurnar í dag!

Flott sería úr Óríon Siggi.

Vildi láta ykkur vita að það er bröltfært alveg inn að Glym, vorum að príla aðeins í gilinu í dag og fórum alveg innað hinum stóra, þar er allt hvítt af ís. Mikið stallað í svona sveppum auðvitað, hendi kannski inn mynd af þessu á eftir.

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Svar:Meira af flottum ís. Allt að gerast. 02 jan 2010 20:55 #9610

Skrifað 02 jan 2010 20:55
kv, Gummi
www.climbing.is
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.38 sek