Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: klifur í dag

klifur í dag 21 des 2009 16:20 #9566

Skrifað 21 des 2009 16:20
Skellti mér, við annan mann, í Spora í Kjós í dag. Fínar aðstæður þrátt fyrir slatta af vatni á fljótandi formi. Síðasta haftið var töluvert kertað en ekkert mál að fara það lengst til vinstri.

Góður dagur á fjöllum.
Stóladansmeistarinn

Svar:klifur í dag 23 des 2009 23:53 #9574

Skrifað 23 des 2009 23:53
Við skruppum tveir í Spora í morgun, aðstæður fínar, hellingur af ís.

Vorum snemma á ferðinni og sluppum við alla bleytu í fossinum.
Lögðum af stað úr bænum kl 8:00 og vorum mættir í Skötuboð kl 13:00

Mér fannst Spori vera í erfiðari aðstæðum en í þau skipti sem ég hef farið hann. Enginn snjór gerir klifrið lengra og brattara, en engu að síður mjög skemmtilegt.

Mæli með Spora um jólin!

Svar:klifur í dag 24 des 2009 16:24 #9576

Skrifað 24 des 2009 16:24
Við Viðar fengum óvænt útivistarleyfi í dag og nýttum það í Grafarfossinum. Þar voru einnig klifurhjónin Arnar og Berglind.

Nóg af ís en blaut á kafla og stökkt á öðrum köflum.

Gleðileg jól,

Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

Svar:klifur í dag 24 des 2009 16:24 #9577

Skrifað 24 des 2009 16:24
Það sást til fjögurra jólasveina klifra í Grafarfossi í dag, aðfangadag. Spurning hvort þeir muni tjá sig eitthvað um þau ævintýri sín hér á vefnum og lýsa aðstæðum.

Svar:klifur í dag 24 des 2009 16:26 #9578

Skrifað 24 des 2009 16:26
Held að jólasveinar lesi hugsanir manns... svara áður en maður nær að ljúka bóninni :)

Svar:klifur í dag 25 des 2009 16:07 #9582

Skrifað 25 des 2009 16:07
Skelltum okkur 3 saman i Grafarfossinn i dag ég, Jón og Siggi. Eintóm gleði

Dóri

Svar:klifur í dag 26 des 2009 18:49 #9584

Skrifað 26 des 2009 18:49
Óli Magg og ég tókum ráðleggingum Guðjóns og klifum Spora í dag. Flottar aðstæður. Vorum hissa að sjá allnokkuð klifurteymi stilla sér upp við leiðina aðeins nokkrum mínútum á undan okkur. Þar voru Einar Torfi, Jón Gauti, Leifur, Jón Þorgríms og tveir aðrir sem við náðum ekki hverjir voru.

Góður dagur þrátt fyrir ansi mikið hvassviðri.

Svar:klifur í dag - Eyjafjöll 26 des 2009 19:36 #9585

Skrifað 26 des 2009 19:36
Við Palli fórum undir Eyjafjöllin í dag. Fórum í Paradísarheimt nánar tiltekið Skoruna. Miljandi aðstæður þrátti fyrir einhverja bleytu. Frábært veður enda logn þarnar í norðanáttinni. Vorum alveg lausir við biðraðir enda einir á svæðinu.


Algjörn snildar leið !!!!

Myndir væntanlegar frá Palla.

kv,
Guðjón Snær

Svar:klifur í dag 27 des 2009 09:28 #9586

Skrifað 27 des 2009 09:28
Vá, traffík í Spora. Fer ekki bóndinn að rukka bílastæðisgjöld eða leggja menn annars staðar en á hlaðinu hjá honum?

Við Skabbi og Manuela veltum fyrir okkur að fara í Spora en fórum sem betur fer í Grafarfoss. Þar var enginn nema við og rokið.

Hlakka til að sjá myndir frá Palla, myndatextarnir hans klikka aldrei.

Paradísar heimt í gær 27 des 2009 14:50 #9587

Skrifað 27 des 2009 14:50

Svar:klifur í dag 27 des 2009 15:03 #9588

Skrifað 27 des 2009 15:03
Geggjaðar myndir hjá þér Palli!

Við hinsvegar héldum jólin hátíðlega í gær og fórum árlega ferð á Skessuhornið, www.climbing.is/lesa_frett.php?cat=2&id=142


kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Svar:klifur í dag 27 des 2009 17:32 #9589

Skrifað 27 des 2009 17:32
Skemmtilegar myndir hjá ykkur báðum.

Við Sissi litum við í Búahömrum með það í huga að klifra Nálaraugað. Neðan frá vegi sýndist okkur neðri spönnin vera alveg íslaus. Tvíburagil virtist ísmikið. Sáum ekki 55° N, en hún er pottþétt í aðstæðum.

Bíl snúið við og ekið undir Grafarfoss. Þar voru Steppo og Stebbi Kalli að ljúka við fossinn og við fórum svo á eftir. Fínar aðstæður, þó dálítið blautt á köflum.

AB

Svar:klifur í dag 28 des 2009 20:58 #9591

Skrifað 28 des 2009 20:58
Viðar, G.Helgi, Dóri og undirritaður smelltu sér í Orion. Þegar við stöðvuðum bílana undir flugugilinu sá ég að þetta yrði allt of langt labb. Bíl snúið við og ekið beint inn í Glymsgil þar sem aðkoman er miklu viðráðanlegri. Þar tók hópurinn samtals 4 línur. Flestir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi þar þó oft hafi verið meiri ís.

kv.
Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

Svar:klifur í dag 28 des 2009 23:55 #9592

Skrifað 28 des 2009 23:55
Kva, softarinn bara að klifra upp á dag?

Ég tók hinsvegar hardcore sófaklifur í kvöld, fann klukkutíma heimildamynd um leiðangurinn 1953 á Everest. Gaman að skoða dótið þeirra, hversu massífar prófanir voru gerðar á öllu í Bretlandi, hversu klikkuð lógistík þetta var (9 búðir), og hvað þetta voru harðir gaurar (klifra allir fetlalaust ;) ). Að ég tali nú ekki um hvað sherpunum er þannig lagað gert hátt undir höfði þarna miðað við þennan tíma og samt gleymdist Tenzing greyið alltaf ansi mikið.

Enjoy!

Sissi

Svar:klifur í dag 29 des 2009 19:52 #9593

Skrifað 29 des 2009 19:52
við hér fyrir norðan, Maggi Smári, Friðfinnur og ég, höfum verið að leita að ís undanfarið. Í fyrradag kíktum við í Kjarnaskóg en leiðin þar er algerlega íslaus, þannig að við brenndum hinum meginn í fjörðinn og athuguðum með "ís með dýfu". Þar frussaðist fossinn út úr ísnum og fyrir neðan var engin fjara. Við fundum aftur á móti 10-15m íslínu rétt við hliðina sem við lékum okkur í.
Í dag fórum við svo í Einhamar í Hörgárdal. Þar er ekki eins mikill ís og á þessum tíma í fyrra en nóg samt til að klifra. Tókum eina 40m, 4gr. leið í yndizzzlegu veðri.

Fullt af fínum leiðum í Einhamri. Ennþá er hellingur af snjó en frekar lítill ís í kringum Akureyri.

kv
Jón H

Svar:klifur í dag 29 des 2009 22:08 #9594

Skrifað 29 des 2009 22:08
Skruppum þrjú í Búhamrana í dag (29.12) klifruðum leiðina 55°N í glymrandi aðstæðum.

Myndir:
picasaweb.google.com/gudjonbj/55NIsklifur#

Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Svar:klifur í dag 30 des 2009 00:27 #9595

Skrifað 30 des 2009 00:27
Fór í árlegt brottflutta-norðanmanns-ísklifrið á Eyjafjarðarsvæðinu í gær. Með í för voru Eiki Tvíbbi, Jökull Bergmann, Freysi formaður, Gregory hinn fránski og spúsa hans.
Ólafsfjarðarmúli naut nærveru okkar þennan daginn og var það vel. Fórum tvær nýjar leiðir og ein eldri frá í fyrra (Hart í bak, WI4/M4) var endurtekin ítrekað. Góður slurkur af ís og bjartur hressandi dagur í -12°C við sjávarsíðuna varð raunin...
Myndir væntanlega á næstunni.

Svar:klifur í dag 30 des 2009 12:16 #9600

Skrifað 30 des 2009 12:16


Við Hrönn og Sissi kíktum í stutt klifur í gær uppúr hádegi. Fyrir valinu varð Vallárgil í Esjunni, beint fyrir ofan Kjalarnes. Fossinn í gilinu er í flottum aðstæðum, hægt að velja um margar miserfiðar leiðir upp. Stutt og þægileg aðkoma = þægindi og skemmtilegheit!

Sáum menn í stuttu leiðinni ofan við skógræktarreitinn í Úlfarsfelli.

Allez!

Skabbi

Svar:klifur í dag 02 jan 2010 22:23 #9612

Skrifað 02 jan 2010 22:23
Gleðilegt nýtt ár!

Ég fór í dag ásamt Sigga félaga mínum að klifra í Vallárgili. Aðstæður voru mjög góðar og veðrið líka. Við klifruðum neðri fossinn nokkrum sinnum en munum kíkja fljótlega aftur á þann efri.

Ísinn var harður og mér fannst neðri fossinn byrja þægilega en seinni helmingur hans var nokkuð erfiður.

Skabbi (þar sem þú varst þarna fyrir stuttu), hvernig myndir þú gráða neðri fossinn? en þann efri?

Ef einhver hefur reynslu af ísklifri í gilinu ofan við trjáreitinn í Úlfarsfelli væri gott að fá upplýsingar. Mig langar að kíkja þangað á morgun eða e-ð kvöld í næstu viku ef ég finn klifurfélaga.

Kv.
Arnar

Svar:klifur í dag 03 jan 2010 02:11 #9615

Skrifað 03 jan 2010 02:11
Æ slepptu því hann var klifraður í old days og nefndur skautasvellið. Ekki gráðunar virði.

Svar:klifur í dag 03 jan 2010 14:45 #9618

Skrifað 03 jan 2010 14:45
Jón Gunnar Þorsteinsson og ég fórum Orginalinn í Paradísarheimt í gær, báðir í fyrsta skipti. Þetta er sannarlega frábær leið í mögnuðu umhverfi. Það var nægur ís í leiðinni en hitinn var sennilega í efri mörkum þess að óhætt sé að fara í leiðina.

Við hittum teymi sem fór nýja leið í Eyjafjöllunum.

Kveðja
Helgi Borg

Svar:klifur í dag 03 jan 2010 17:29 #9624

Skrifað 03 jan 2010 17:29
Arnar Halldórsson skrifaði:


Skabbi (þar sem þú varst þarna fyrir stuttu), hvernig myndir þú gráða neðri fossinn? en þann efri?



Ertu ekki að tala um efra og neðra haftið í neðsta fossinum? Það neðra var örugglega 3.gráða þar sem við fórum um daginn, og efra haftið 4. þar sem það var brattast. Annars eru þessi höft ansi breið og fjölbreytt, hægt að þræða erfiðari afbrigði eftir hentugleika.

Allez!

Skabbi

Svar:klifur í dag 03 jan 2010 18:29 #9625

Skrifað 03 jan 2010 18:29
Við fórum þrír Garðbæingar í Flugugil í dag. Klifruðum 3 leiðir sem voru í fínum aðstæðum. Myndir koma hugsanlega einhvern tímann.

kv. Ági

Svar:klifur í dag 03 jan 2010 18:38 #9626

Skrifað 03 jan 2010 18:38
Við Gulli granít og frýr renndum inní Kjós í blíðviðrinu í morgun. Klifruðum Spora, sem er svosem ekki frásögum færandi nema hvað hann er tekinn að veðrast af gengdarlausri umferð undanfarnar vikur. Það er orðið hægt að klifra nánast allan fossinn án þess að höggva nokkurntíman, bara húkka í götin. Ekkert að því náttúrulega.
Gegnt Spora, hinummegin í dalnum hefur myndast ansi myndarlegur foss, á að giska tvær spannir. Þegar við ókum á brott sáum við tvo menn (eða konur, eða sitthvort) klifra þennan ónefnda foss. Væri fróðlegt að heyra hvernig sú vegferð fór.

Allez!

Skabbi

Svar:klifur í dag 03 jan 2010 19:29 #9627

Skrifað 03 jan 2010 19:29
Jú jú, í gær kíkti ég á þennan margumtalaða Spora ásamt Billa og Þórhildi. Verð að segja að mér fannst ísinn þar inni alveg hreint makalaust skemmtilegur. plastís sem tók svo vel við öxum og broddum að sjaldan þurfti að höggva oftar en einu sinni. Leiðin stóð líka fyrir sínu sem afbragðs afbrigði til að kynningar á sportinu. Hafa menn ekki verið að brölta upp á höftin á leiðinni upp að Spora sjálfum?
Vissulega nýmóðins reynsla hér á landi að koma að ísleiðum með axa-, brodda- og jafnvel skrúfuför sem hægt er að nýta sér. Stórgaman!

En úr því ísinn var svona upp á sitt besta langaði okkur Billa að kíkja aftur daginn eftir (í dag) á eina afar formfagra og fallega leið gegnt Spora. Úr varð að þriggja spanna leið, 30m, brölt upp aflíðandi læk, 70m, 15m. Mestmegnis var um að ræða þægilegt þriðju gráðu klifur en á þremur stöðum sló hann nálægt lóðréttu.
Prýðis dagur í afbragðs ís, sem breytti þó örlítið um ham í sólinni í efri parti fossins.

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:klifur í dag 04 jan 2010 13:30 #9639

Skrifað 04 jan 2010 13:30
Fórum þrír í gær í Búahamra, ætluðum í 55 gráðurnar en þar sem að enginn okkar hafði farið þar áður enduðum við í tómri vitleysu og klifruðum sennilega leið 24 í leiðarvísinum frá '85. 60 metrar af 2.gráðu og svo kannski 10 í klett til að sneiða framhjá alltof kertuðum lokakaflanum fyrir okkar smekk.
kv. Stefán Þ.

Svar:klifur í dag 04 jan 2010 14:04 #9640

Skrifað 04 jan 2010 14:04
Freyr Ingi Björnsson skrifaði:
Hafa menn ekki verið að brölta upp á höftin á leiðinni upp að Spora sjálfum?


Ég held að sá neðsti (og stærsti) beri hið ómþýða nafn Mígandi. Einn af mörgum á landinu reyndar sem ber þróaðri kímnigáfu íslenskra ísklifrara fagurt vitni.

Ég hef farið upp eftir læknum nokkrum sinnum, tekið öll höftin á leiðinni. Það er þrælgaman. Fyrst þegar við Sissi og Bjöggi "fundum" Spora komum við einmitt upp eftir læknum. Spori kom ekki í ljós fyrr en við stóðum næstum undir honum.

Allez!

Skabbi

Svar:klifur í dag 05 jan 2010 23:57 #9669

Skrifað 05 jan 2010 23:57

Svar:klifur í dag 06 jan 2010 01:08 #9670

Skrifað 06 jan 2010 01:08
Já sæll, hverskonar, hverskonar er þetta eiginlega.

"Á leiðinni úteftir um morgunninn sáum við bara stóra fossinn (sem Maggi Smári og Jón Heiðar fóru svo síðar) en fannst hann ekki nógu spennandi"

Ég sem var rétt að ná egóinu upp aftur eftir Þverbrekkuhjúksævintýrið mikla. Stóri fossinn er erfiðasta klifur sem ég hef farið í og svo finnst mönnum það ekki nógu spennandi. Jahérnahérna ó mig aumann osfr. he he he he

kv
Jón H

Svar:klifur í dag 06 jan 2010 01:17 #9671

Skrifað 06 jan 2010 01:17
Í gær fórum við Freysi (allsherjargoði) ásamt Geira, Sigga P. og Jökli J. í Skálafell. Nei, ekki til að skíða, langt síðan slík undur og stórmerki hafa gerst.

Þori samt næstum að fullyrða að enn lengra er síðan einhver hefur farið í fossinn þar. Hann var prýðisskemmtan, eltur við hausljós í fáránlegum kulda þar sem við vorum í verkefni í bænum fram yfir 14:00. Efstu hreyfingarnar voru reyndar ekki í aðstæðum en ætli þetta hafi ekki verið svona 40 metrar af WI4/4+ í pínu steiktum ís.

Í dag lá leið mín og Allsherjargoða Ísalp í Kjósina ásamt Billa. Við klifruðum þar langa leið í þröngu gili sem hefur ansi skemmtilegan karakter. Og drukkum kaffi. Hún er hvergi skráð og við vitum ekki til þess að hún hafi verið klifruð, ég ætla því að skrá hana með venjulegum disclaimer þegar myndir berast í skráningaþráðinn.

Fékk nafnið Icesave í tilefni dagsins, WI3, 205 metrar. 50 metrar upp að gilinu / 55 m. /40 m. / 60 m. (íslaust að hluta).

Ekið sama veg og að Hrynjanda, áberandi íslæna upp þröngt gil áður en komið er að honum (norðar).

Þetta er feelgood klifur og væri hentugt til að sýna byrjendum réttu handtökin eða stíga fyrstu spor í fjölspannaklifri, brölt með 3 gr. höftum inn á milli. Fyrstu 3 spannirnar eru mestmegnis í ís en þar sem gilið er þröngt er þunnt á köflum og hægt að notast við mosa og berg af og til. 4 spönn hófst á íshafti, síðan brölt upp íslausan kafla og smá ís upp á brún.

Gengum niður norðan við leiðina, það er líklega hentugast. Okkur fannst þetta skemmtileg ævintýraleið í töff umhverfi.

Hils,
Sissi

Svar:klifur í dag 06 jan 2010 08:29 #9672

Skrifað 06 jan 2010 08:29
Svekk, Jón Heiðar... :)
Það er svo sem ekki það að ég hefði ekki verið til í að klifra þennan foss (því það munaði minnstu þangað til ég fann Sægreifann). Vandamál hans í samkeppninni var að hann virtist heldur í léttari kantinum, var rennandi blautur og það voru mjórri flottari línur sem heilluðu meira...

En án efa prýðilegur foss.
Þurfið þið ekki að henda nafni og gráðu á dýrið?

Svar:klifur í dag 06 jan 2010 13:00 #9674

Skrifað 06 jan 2010 13:00
Er nokkuð viss um að við höfum ekki verið að FF þessa leið, en svona til að gefa henni einhveja gráðu held ég að hún gráðist sem WI4 en eflaust bæði hægt að komast erfiðari og léttari leiðir upp í hinum ýmsu aðstæðum. En gráðuna gef ég með fyrirvara um þekkingarleysi á því en samkvæmt wiki og oðrum lesningum á greinum um Water ice gráðun fellur hún vel inn í þann flokk.

En flott klifur stefnum aftur í Múlan fyrir helgina.

Svar:klifur í dag 06 jan 2010 13:21 #9675

Skrifað 06 jan 2010 13:21
Ég stend með Magnúsi varðandi 4.gr. á kvikindið. Við sáum mikið rennandi vatn undir ísnum í miðjunni og þurftum að halda okkur til hægri í klifrinu. Sérstaklega þegar við komum ofarlega í fossinn þá þurftum við að troðast út í smá kverk á milli kletta og foss til að sleppa við að opna vatnsbunu út. Annars var bara einn 3-4m. kafli sem var mjög erfiður, alveg við að vera yfirhangandi. Annars var þetta þétt klifur fyrir menn með okkar getu.

Sigurður þarna kemur berlega í ljós getumunur í klifri. Við sáum ekki Sægreifann en bara við að horfa á myndir af honum fer ég að flissa kjánalega og langar undir sæng.

kv
Jón H

Svar:klifur í dag 06 jan 2010 13:43 #9676

Skrifað 06 jan 2010 13:43
Flissifliss!

Strákar, mér sýndist þetta vera solid WI 4. Byggt á því að hafa verið þarna um daginn og myndinni sem þið póstuðuð hér um daginn.

Skráið leiðina, svo ef einhver skríður fram í dagsljósið með aðrar upplýsingar þá verður því bara breytt.
En það má alls ekki láta leiðir gjalda þess að halda að einhver annar hafi mögulega klifið þær áður.
Við lifum á upplýsinga og tækniöld og þetta verður allt að skjalfesta.

Þessi áminning einskorðast ekki við Ólafsfjarðarmúlann.

Nýjar leiðir eða "mögulega nýjar" leiðir skráist þá í þráðinn sem Ívar stofnaði hér á umræðusíðunni um daginn.

Freyr Ingi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:klifur í dag 08 jan 2010 08:45 #9682

Skrifað 08 jan 2010 08:45
Varðandi ofangreinda leið í Múlanum að þá var hún víst klifinn fyrir einhverjum 20 árum af nokkrum orginal harðjöxlum frá Dalvík. Þessir kappar gerðu sér einning lítið fyrir og klifruðu Míganda WI4-5 sem er vatnsmesti fossinn í Múlanum, um 1 km norðan við þessa línu sem er fínasta WI4 plús eða mínus eftir aðstæðum. Alskonar nöfn hafa verið á henni í gegnum árin. Það hefur verið mjög mikið klifrað af nýjum leiðum í Múlanum undanfarnar vikur sem ég hef reynt að halda samviskusamlega utanum og mun pósta hér um leið og hlýnar.......

Jökull
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Svar:klifur í dag 09 jan 2010 01:07 #9690

Skrifað 09 jan 2010 01:07
Var að setja in myndir síðan við Geiri fórum skoruna um daginn
picasaweb.google.com/halldor86/Skoran#

Og líka myndir frá ferð sem við Ívar og Haukur fórum Austur í Skaftafell
picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#

Dóri

Svar:klifur í dag 10 jan 2010 21:42 #9693

Skrifað 10 jan 2010 21:42
Við fórum fjögur úr Ársæl; ég, Jón, Katrín og Jökull J. í Spora í dag, bleytan kom ekki mikið á óvart og hefði verið ráð að vera í köfunargalla, til að mynda var hliðrað undir rennadi fossi í síðustu spönn, ísinn mjúkur og fínn...hehe

Fínn dagur á fjöllum
Siggi

Svar:klifur í dag 11 jan 2010 00:20 #9696

Skrifað 11 jan 2010 00:20
Fór í norðurlandsferð ásamt gömlu brýnunum Guðjóni Snæ, Palla Sveins og Viðari. Óvenjulegt að ég sé allt í einu orðin ungstirnið í hópnum (áratug yngri en næsti maður)... :)
Tókum einn dag í nýju leiðunum hans JB í Múlanum og einn dag í Kinninni.
Báðir dagar voru í plúsgráðunum og bleytan eftir því en klifrið tær snilld. Til stóð að klifra á sunnudag líka en +12°C spá var ekki alveg að gera sig - 6-7°C í Kinninni var með því allra mesta sem pumpan þolir...
Tvær töff nýjar leiðir í Kinninni og nokkrar endurtekningar á allerfiðum leiðum í Múlanum.
Myndir og skráning nýju leiðanna í vinnslu.

Svar:klifur í dag 15 jan 2010 23:49 #9726

Skrifað 15 jan 2010 23:49
Myndir frá mér úr Múla og Kinn mættar á vefinn.
picasaweb.google.com/hraundrangi/OlafsfjarArmuliOgKaldakinn#

Einnig komið frá Palla Sveins fyrir nokkru síðan (man ekki hvort hann var búinn að tilkynna það):
picasaweb.google.com/pallsveins/NorUrferJan2010#

Svar:klifur í dag 16 jan 2010 12:44 #9727

Skrifað 16 jan 2010 12:44
Ef einhver er á ferðinni þá týndi ég splönkunýrri BD skrúfu (blá) í ólafsjarðarmúlanum fyrir 2 vikum, í línunni við hliðinni á míganda held ég að hann sé nefndur... (fyrsti feiti fossinn sem er aðgengilegur úr fjörunni)... líklegast uppá brún.

Eflaust vonlaust en það má reyna! Ein skrúfa í dag = margir margir bjórar!
Takk,
-R

Svar:klifur í dag 18 jan 2010 00:10 #9729

Skrifað 18 jan 2010 00:10
Smá vídjó frá gærdeginum. Reyndist aðeins hlýrra en spáin sagði til um og við beiluðum á Seinfaranum (WI5) sem við Ívar klifruðum um árið og ég og Eiríkur endurtókum í fyrra. Ísinn var greinilega laus frá berginu. Fóum í staðinn klassík sem við klifruðum fyrst fyrir mörgum árum. Held að ég hafi verið 18 ára. 20 ára anniversary frá fyrstu uppferð!

Skemmtilegur dagur.

www.facebook.com/Borea.Adventures?ref=mf

rok
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Svar:klifur í dag 22 jan 2010 15:52 #9751

Skrifað 22 jan 2010 15:52
Jæja...þetta er nú meira vorið hérna á suðurhorninu. Nokkrar myndir til að linna ísklifurfíknina.

Myndir frá Brynjudal (3. jan) og Paradísarheimt (5. jan)

Brynjudalur
Brynjudalur & Paradísarheimt

rhþ
\"There are only 3 real sports: bull-fighting, car racing and mountain climbing. All the others are mere games.\"

-Hemingway

Re: Svar:klifur í dag 02 apr 2010 16:49 #10127

Skrifað 02 apr 2010 16:49
Fór með Halla Gúmjárni, Gerald félaga hans og Frey Inga formanni í Spora í dag. Fínn ís, rennandi blautur efst samt. En það kom ekki að sök. Tókum aðkomuhöftin líka sem var bara ansi gaman. Fossarnir austanmegin í skarðinu voru ansi morknir (Hrynjandi, Áslákur etc).

Hittum nokkra hressa Akurnesinga á heimleiðinni sem voru að klifra í aðkomuhaftinu (Mígandi? man þetta aldrei).

Dóri og co voru víst á ferðinni í Kjósinni í gær, svo þetta er ekki alveg búið.

Kveðja,
Sissi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.85 sek