Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Fyrir sófaklifrarana...

Fyrir sófaklifrarana... 04 nóv 2009 12:39 #9231

Skrifað 04 nóv 2009 12:39
Í þessari vonlausu og íslausu gúrkutíð þá er nú í minnsta lagi hægt að horfa á ísklifur óg láta sig dreyma. Við Ási erum búnir að sitja sveittir við klippingar síðustu daga og hér er afraksturinn:

vimeo.com/7424231

Njótið...

Robbi

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 04 nóv 2009 15:45 #9232

Skrifað 04 nóv 2009 15:45
nIce stuff! Gaman aðððessu, meira meira. Ási, átt þú ekki líka meira af klifurklippum sem þú átt eftir að setja saman góða ræmu?

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 04 nóv 2009 20:21 #9233

Skrifað 04 nóv 2009 20:21
Júbb, er að vinna í að púsla saman smá hnappavalla klippu.

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 00:01 #9235

Skrifað 05 nóv 2009 00:01
Þetta er glæsilegt piltar.
Takk fyrir þetta og hlakka til að sjá meira.

Annars vil ég minna á þurrtólunarkvöld í Klifurshúsinu á miðvikudögum frá kl. 21:30-23:00.
Í síðustu viku vorum við Ási bara tveir að sperra okkur og í kvöld var ég einn. Ekki líklegt að Hjalti nenni að halda þessu úti ef enginn mætir.
Þýðir lítið að ætla að koma sér í form þegar ísinn er kominn því hann er fljótur að fara...
Tíminn er NÚNA!!!

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 09:02 #9236

Skrifað 05 nóv 2009 09:02
Menn hafa nú reyndar aðeins verið að beita tólunum í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum - þannig að þú situr vonandi ekki alveg einn að erfiðari leiðunum í vetur.

kv.
Ívar
picasaweb.google.com/ivarfinn

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 10:49 #9237

Skrifað 05 nóv 2009 10:49
Töff vídeó hjá ykkur strákar. Meira af þessu ;)

kv. Berglind og Arnar

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 12:56 #9238

Skrifað 05 nóv 2009 12:56
Nice job.. Geggjað video hjá ykkur strákar!

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 14:53 #9239

Skrifað 05 nóv 2009 14:53


Fyrst þessu þráður er hvort eð er kominn út um víðan völl ætla ég að bæta smá við. Á heimasíðu Patagonia er að finna sæg af skemmtilegum myndböndum. Einn gullmolinn sem ég rakst á þar fjallar um alpinisma með þeim Micah Dash og Johnny Copp.



Það er sorgleg eftirskrift við þetta myndband að þeir félaga fórust í snjóflóði ásamt fálaga sínum Wade Johnson e-sstaðar í Kína síðastliðið sumar.

Þar hafiði það.

Skabbi

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 20:47 #9241

Skrifað 05 nóv 2009 20:47
Vel gert drengir!

Skemmtilegt myndband maður!
Líst vel á þróun íslenskra hreyfimynda, spurning um að safna saman og bæta við íslenkum degi á Banff hátíðinni.
Haldið áfram að mynda og klippa.

Freyr
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:Fyrir sófaklifrarana... 05 nóv 2009 23:05 #9242

Skrifað 05 nóv 2009 23:05
Þetta Long Ways vídeó er assgoti góður skítur.
Temmilega ekspósd bivakk syllan þeirra... :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek