Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ég er að leita mér að ísklifur skóm.

Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 27 ágú 2009 20:22 #8969

Skrifað 27 ágú 2009 20:22
Ég er að leita mér að ísklifur skóm.
Mitt vandamál er að fæturnir á mér eru líkari froskalöppum frekar venjulegum karlmannsfótum
Ég er búinn að máta bæði Scarpa Freney XT GTX og La Sportiva Nepal EVO gtx og þeir eru allt af þröngir.
Ég er að láta mig dreyma um að finna skó sem ég þarf ekki að kveljast í.
Ég er búinn að fara eina þrautargöngu að láta víkka gömlu skóna og var það til bóta en dugar engan veginn.

Allar góðar hugmyndir eru vel þegnar.

Palli

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 27 ágú 2009 22:26 #8970

Skrifað 27 ágú 2009 22:26
Hvernig skóm ertu í núna og síðan hvenær eru þeir? ;)

Svar: Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 27 ágú 2009 23:19 #8971

Skrifað 27 ágú 2009 23:19
Scarpa Vega klikka seint...

Svar: Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 28 ágú 2009 13:03 #8972

Skrifað 28 ágú 2009 13:03
Ég á við svipað vandamál að stríða eins og Palli. Lappirnar mínar eru frekar breiðar þannig að ítalskir skór líkt og La Sportiva og Scarpa eru báðir fyrir frekar grennri fætur. Besta leiðin til að laga það er bara að kaupa leður skó vegna þess að þá geturu farið með þá til skósmiðs og látið hann víkka hann fyrir þig með því að setja þvingu inní skóinn og geyma yfir nótt. Það virkar að ég held bara mjög vel (hef samt ekki beina reynslu af því).
Annars hef ég heyrt betri hluti um La Sportiva skónna þessa dagana en Freney, auk þess sem hann er leður skór svo að það ætti að vera létta að víkka þá. Gummi stóri á annars báðar týpurnar og hefur notast við þær báðar svolítið. Ég held að hann geti svarað þér betur um hvað honum líki betur við.

Kv.
Arnar

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 28 ágú 2009 17:28 #8973

Skrifað 28 ágú 2009 17:28
Hefurðu prófað gæludýrabúðina?
Reyndar er froskahald líklega ólöglegt hér á landi þannig að það er kannski lítið úrval af skófatnaði á þína líka... :)

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 28 ágú 2009 21:30 #8975

Skrifað 28 ágú 2009 21:30
Hæbb,

Ég hef verið að nota Freney, en þeir eru rosalega þröngir á alla kanta. LaSportiva IceEvo var ég að nota dáldið líka, þeir eru aðeins rýmri, en eru frekar fyrir lengri lappir og mjóar, þó ekki eins mikið og Scarpa Freney. Eftir að ég fékk mér hinsvegar LaSportiva Nepal Extreme er ég nánast ekki í öðru, ég held að þú eigir klárlega að fara og máta svoleiðis, mátt prufa mína ef þú notar nr. 47 eins og ég.

Þeir eru einnig hrikalega sterkir, það stórsér á Freney skónum mínum og vel á Ice Evo, en þrátt fyrir að ég hafi notað NepalExtreme skóna meira eru þeir alveg gallharðir enn.

Annars er önnur hugmynd ef lappirnar á þér eru mjög afbrigðlegar, að kaupa vel rúma skó og láta smíða fyrir þig innlegg sem laðar skóna að þínum þörfum, pabbi lét gera þetta við Freney skóna mína og hann segir að þeir séu nú snilld.

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 29 ágú 2009 09:03 #8976

Skrifað 29 ágú 2009 09:03

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 29 ágú 2009 22:44 #8978

Skrifað 29 ágú 2009 22:44
Ekki slæm hugmynd.
Ég hef látið mér detta í hug að það sé einfaldara að laga lappirnar en skóna.

Takk fyrir hugmyndirnar en þetta er eiginlega staðfesting á því sem ég hélt.

kv.
Palli

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 30 ágú 2009 13:26 #8981

Skrifað 30 ágú 2009 13:26
Ég er líka með svona "óheppilega" lagaða fætur. Ég hef lengst af notað Scarpa leðurskó sem ég hef gengið til í stuttum göngum, en þeir verða samt aldrey nógu góðir fyrir virkilega langar göngur. Ég verð alltaf sárfættur ef ég geng í meira en 10 tíma í skónum, tala nú ekki um 20 tíma ferðir. Ég hef verið að máta aðrar tegundir en gengur illa að finna þessa réttu fyrir sumarferðirnar.

Síðasta vetur keypti ég svo La Sportiva Spantic fyrir vetrarferðir og ísklifur. Þeir hafa reynst mjög vel, hef gengið 18 tíma án þess að verða sárfættur. Þetta eru að vísu rándýrir hlunkar en voru fyrir mig peninganna virði.

kv
Jón H

Svar:Ég er að leita mér að ísklifur skóm. 02 sep 2009 00:00 #8993

Skrifað 02 sep 2009 00:00
Haltu áfram að gúggla Palli, fyrst það eru til túttur fyrir fólk með litla stóru tá hljóta að vera til extra wide stífir skór:

gearjunkie.com/evolv-demorto-climbing-shoes

Ég var eitthvað að leita að þessu og það er hellingur af fólki sem er að vesenast með svona sundfit, einn gæinn brá á það ráð að kaupa næsta númer fyrir ofan og lét svo skósmið stytta. Veit ekki hvort það er minna mál en að láta berja þá eitthvað út, en skósmiðurinn uppi í Össurri gerði ótrúlega hluti með skóna okkar fyrir Pak.

Hils,
Sissi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek