svar: Hvað er að frétta af ísmálum?
01 nóv 2003 21:58 #895
Skrifað 01 nóv 2003 21:58
Það er allt gott að frétta af ísmálum. Ok um Hvalfjörðinn og endaði í Villingardal með Halla G og Andra og við klifurðum einn af 14,(komma) eitthvað fossunum. Nóg af ís, svolítið af vatni á köflum en allt í lagi.
svar: Hvað er að frétta af ísmálum?
03 nóv 2003 09:35 #896
Skrifað 03 nóv 2003 09:35
Nýttu engir fleiri en við Ívar & Andri, og svo Jón Gauti & Skúli góða veðrið?
Fór einhver upp í Þórisjökul eða Eilífsdalinn?
Hvernig er staðan fyrir vestan, norðan og austan?
svar: Hvað er að frétta af ísmálum?
03 nóv 2003 10:26 #897
Skrifað 03 nóv 2003 10:26
Fórum tveir Hafnfirðingar upp í skálina í utanverðum Eilífsdalnum. Frekar lítill ís í leiðinni nyrst í henni sem lýst er í Isalp leiðarvísinum svo við létum hálfa leiðina duga. Önnur leið mun brattari og kertaðri fyrir miðri skál var með töluvert af ís.
Séð utan úr dalnum var ekki hægt að sjá annað en að vænir bunnkar af ís væru komnir innfrá.