Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Umræðusíðan

Umræðusíðan 04 okt 2003 16:43 #850

Skrifað 04 okt 2003 16:43
Flott að sjá að síðan er kominn í gang. Maður getur þá farið að tjá sig aftur.
Það er annars búið að vera kalt síðustu daga og gaman væri að vita hvort einhver hafi litið upp í Þórisjökul, og þá hvernig leit út þar.
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Umræðusíðan 04 okt 2003 19:59 #851

Skrifað 04 okt 2003 19:59
Kvöldið.

Sammála að það er stórfínt að fá umræðurnar í gang aftur.

Ég hef ekki glóruhugmynd um það hvernig aðstæður eru í Þórisjökli en var að spá í að fara í könnunarleiðangur í Kerlingarfjöll bráðlega. Það er búið að vera viðloðandi frost á miðhálendinu í nokkurn tíma og ég veit að þarna eru stór gil sem eiga að halda frosti og ís.

Ef einhver er til í 2ja daga könnunarleiðangur í Kerlingarfjöll þá væri gaman að heyra í viðkomandi.

kell, kell, kellingarfjöll 05 okt 2003 16:52 #852

Skrifað 05 okt 2003 16:52
Ég er maður í það
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: kell, kell, kellingarfjöll 05 okt 2003 18:30 #853

Skrifað 05 okt 2003 18:30
Blessaður aftur.

Nú er bara að sitja fyrir sæmilegu frosti og drífa í þessu. Ég get örugglega fengið lánað hús þarna þannig að það ætti ekki að væsa um menn.

Það er spurning hvort að það ætti ekki að reyna að smala í svona 3 sæmilega útbúna jéppa og þrælast á staðinn eftir næsta frostakafla.

svar: kell, kell, kellingarfjöll 05 okt 2003 19:18 #854

Skrifað 05 okt 2003 19:18
Líst vel á þetta ekki gleyma mér

svar: kell, kell, kellingarfjöll 06 okt 2003 10:26 #855

Skrifað 06 okt 2003 10:26
Blessaðir aftur.

Ég held að það sé nú bara grundvöllur fyrir fjölmenni í leiðangur í Kell-Kell-Kerlingarfjöll.

Skv. Veðurstofunni er búið að vera frost þarna alla síðustu viku. Lítið við á www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/hvell/ sem er fyrir Hveravelli eða á www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/setur/ fyrir Setrið

Það HLÝTUR að vera ís þarna!!!!!!

svar: kell, kell, kellingarfjöll 06 okt 2003 11:32 #856

Skrifað 06 okt 2003 11:32
ég get farið hvernær sem er, látið mig bara vita hvenær þið viljið fara.
Veðurspáin er fín fyrir vikuna, og ég veit fyrir víst að Arnar hefur ekkert að gera í skólanum.

Sona á líka vefur Ísalp að virka.
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: kell, kell, kellingarfjöll 06 okt 2003 12:03 #857

Skrifað 06 okt 2003 12:03
Jóhóhó.

Ég er algjörlega upptekinn í vikunni en það er sénsinn bensinn að ég geti komist næstu helgi eða þá ekki fyrr en hina helgina.

Ég er líka búinn að setja mig í samband við æðsta ráðið í Kell-kell-Kerlingarfjöllum uppá að fá hús, rafmagn og heitann pott.

Jó, jó, jó jólasveinninn 06 okt 2003 17:23 #858

Skrifað 06 okt 2003 17:23
Þetta er allt spurning um forgangsröðun.

Maður þarf bara að vita hvað er númer 1, 2 og 3. (það byrjar á K en endar ekki á lifur, og getið nú)
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Jó, jó, jó jólasveinninn 07 okt 2003 03:02 #859

Skrifað 07 okt 2003 03:02
He he he tessi er audveldur mar "K-ERLINGAR".

Annars bara bestu kvedjur fra Canada erum bunir ad klifra um 40 spannir sidan eg kom hingad fer til Californiu a morgun.

snilld ad spjallid er komid upp a ny

Einar Isfeld (A.K.A Humarinn)
Engir Islenskir stafir sorry

Í eintölu fyrir mig, mar´er að verða gamall 07 okt 2003 18:00 #860

Skrifað 07 okt 2003 18:00
Flott að heyra frá þér humarstrákur, láttu okkur endilega frétta meira og nánar af ferðum þínum. Svona svo ég geti grátið nokkrun söltum tárum í tjöldin.
picasaweb.google.com/ivarfinn
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.42 sek