Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ný leið í Eilífsdal, Ópið

Ný leið í Eilífsdal, Ópið 08 mar 2009 21:18 #8249

Skrifað 08 mar 2009 21:18
Fórum þrír hressir (ég, Robbi og Guðjón Snær) í Eilífsdal í ískulda og mannaskítsveðri og fórum þar nýja leið hægra megin við Þilið. Hafa einhverjir horft til hennar hýru auga í gegnum árin en ekki er vitað til að hún hafi verið reynd áður.
Fékk hún heitið Ópið og gráðast WI5+/6, M5 ca. 95m.

Ég beilaði á leiðslu seinni spannarinnar eftir að hafa komið öxinni í dingludanglið. Þar sem næsta brúklega trygging var ca. 5m til hliðar við mig og fáránleikinn í hreyfingunni yfir í kerti' með eindæmum bugaðist mitt meyra hjarta og ég bakkaði niður. Var með ömurlega grjóttryggingu fyrir framan mig en hún hefði ekki haldið blautum skít í poka svo ég bakkaði niður í skrúfuna og seig niður (tryggingin poppaði svo út um leið og línan strekktist á henni).
Róbert, sem þekktur er fyrir að hafa enga skynjan á virði lífs síns og lima spreytti sig svo í kjölfarið og tókst af mikilli snilli að jóðla sér upp á topp í eins hvössu veðri og við höfðum nokkurn tímann lent í í ísklifri.
Við Guðjón eltum svo upp án stórvandræða þó þetta hafi verið megafunky, ógeðslega pumpandi og með freðna fokkíngs putta.
Síðustu hreyfingarnar upp á brún voru steiktar og fjúkið svo mikið að ég klifraði síðustu 5 hreyfingarnar með lokuð augun. Geri aðrir betur... :)

Sjá nokkrar myndir á:
isalp.is/route.php?op=p&t=1#g1
Annars kemur meira hresst efni á Picasa síðuna mína í vikunni.

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 08 mar 2009 21:36 #8250

Skrifað 08 mar 2009 21:36
Til hamingju með þetta strákar massa flott leið. En það voru fleyri sem fóru í Eilífsdalinn í dag ég Doddi og Örvar. Firsta planið vara að fara inn í Brinjudal og klifra Ýring en var hann ansi íslaus þannig að við brunuðum inn í Eilífsdal þar sem ís var pottþétt að finna. Tríó varð fyrir valinu og var það í ágætis kertuðum aðstæðum. Semsagt tær snild : )

Kv Danni

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 08 mar 2009 21:45 #8251

Skrifað 08 mar 2009 21:45
Geðveikt, til hamingju. Fannst reyndar ólíklegt að menn hefðu skellt sér í Humarveisluna miðað við að stormkúfurinn yfir Esjunni var svo ógurlegur í morgun að lítil börn fóru að grenja.

Fannst ykkur þetta of létt til að fara í góðu veðri eða?

Hardcore stöff.

SF

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 08 mar 2009 22:04 #8252

Skrifað 08 mar 2009 22:04
úff
næss
crazy


kv
Haukur

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 08 mar 2009 22:37 #8253

Skrifað 08 mar 2009 22:37
Sæmilega gert. Hefði reyndar sjálfur gert þetta aðeins öðruvísi. T.d. ekki sneitt svona mikið framhjá kertinu. Hefði klifrað það allt. Þetta kemur allt með æfingunni strákar.

Kv. Árni Alf.

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 08 mar 2009 22:47 #8254

Skrifað 08 mar 2009 22:47
Sælir og til hamingju með leiðina strákar. Er ég að verða of soft eða var Palli eitthvað með í ráðum þegar leiðin fékk gráðu??? Mér sýnist þetta á myndum vera solid 6-a ef ekki meira!!!
Olli

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 09 mar 2009 08:40 #8255

Skrifað 09 mar 2009 08:40
Flottir!

Ólíklegt að ópin ykkar hafi heyrst langt í rokinu í gær!

kv.
Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 09 mar 2009 08:54 #8256

Skrifað 09 mar 2009 08:54
Flottir!

kv.
Palli

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 09 mar 2009 10:58 #8257

Skrifað 09 mar 2009 10:58
Glæsilegt piltar.

Hlakka til að sjá fleiri myndir.

Hils,,
Steppo

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 09 mar 2009 12:50 #8258

Skrifað 09 mar 2009 12:50
Nohh!

Það er bara svona.

Fleiri myndir óskast af þessum stórverkefni.

Kv,

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 09 mar 2009 13:19 #8259

Skrifað 09 mar 2009 13:19
Myndir, myndir, myndir, plííís.

Þetta er svakalega fullorðins!

Kveðja,

AB

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 09 mar 2009 20:06 #8260

Skrifað 09 mar 2009 20:06
Svaðalega töff leið.
Respeact

Dóri

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 10 mar 2009 12:12 #8261

Skrifað 10 mar 2009 12:12
Flott leid kappar!

H

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 10 mar 2009 19:49 #8262

Skrifað 10 mar 2009 19:49
Hahaha... "Róbert, sem þekktur er fyrir að hafa enga skynjan á virði lífs síns og lima spreytti sig svo..." Robbi kallar ekki allt ömmu sína í þessum efnum, það er ljóst. En þið eru allir snillingar, vel af sér vikið. Gaman að fá svona harðkjarnaleið í flóruna.

Þumlar upp!!

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 10 mar 2009 22:56 #8263

Skrifað 10 mar 2009 22:56
Jæja, hættið að ýta á F5 krakkar því biðin er á enda. :)
picasaweb.google.com/hraundrangi/OpiIEilifsdal#

67 myndir af æði misjöfnum gæðum en stemning í þeim öllum og textarnir vonandi sæmilega hressir.

Verðið að lifa við það að ansi margar þeirra eru keimlíkar en það var bara allt of erfitt að velja úr þeim rúmlega 200 sem voru teknar þennan daginn.

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 10 mar 2009 23:20 #8264

Skrifað 10 mar 2009 23:20


Vá!

Ska

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 10 mar 2009 23:34 #8265

Skrifað 10 mar 2009 23:34
Þetta er rosalegt!! Massa flott leið! Til hamingju ^_^

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 11 mar 2009 08:42 #8266

Skrifað 11 mar 2009 08:42
Þetta gerist nú ekki meira 2007 en þetta.

Hrikalega flott klifur.

kv.
Palli

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 11 mar 2009 09:14 #8267

Skrifað 11 mar 2009 09:14
Sjííííís, þessar myndir eru of flottar! Glæsilegt!!!!!

Kveðja,
Gulli

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 11 mar 2009 09:18 #8268

Skrifað 11 mar 2009 09:18
Þetta er svakaleg leið strákar! Til hamingju með Ópið

Smári

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 12 mar 2009 00:50 #8269

Skrifað 12 mar 2009 00:50
Suddalega flottar myndir og leiðin er bara mögnuð.

Danni

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 12 mar 2009 15:23 #8270

Skrifað 12 mar 2009 15:23
Tvær litlar athugasemdir við leiðarvísinn sem þú gerðir.

Það sem þú kallar directinn af Einfara hefur gengið undir nafninu Tvífarinn og er alveg örugglega 4.gr og jafnvel nokkuð stíf fjórða (ég datt meira að segja í henni þegar ég var lítill). Er reyndar ekki með neitt á prennti þessu til staðfestingar en svona var alltaf talað um leiðina, back in the days!

Þið eruð helvíti sterkir en mér finnst samt alveg borderline að setja bara WI 5 á Þilið. Leiðin hlýtur amk að vera 5+ jafnvel þó að maður sé að tala í P-gráðum.

Annars suddalega flott hjá ykkur, eins og svo oft áður!

Kv.
Softarinn, meirari og meirari með hverjum deginum!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 12 mar 2009 21:00 #8271

Skrifað 12 mar 2009 21:00
Þetta er rétt hjá þér Ívar. Leiðin Tvífarinn er hægra megin í stálinu þegar maður kemur upp í Einfarann. Hún var frumfarin af mér og Magnúsi Gunnarssyni á árunum 1991-1992. Einfarinn er lang oftast farinn beint upp(eða leiðin til hægri í Y sem var á myndinni). Að fara vinstra megin er ekki oft gert þó maður hafi heyrt um það. Það er ein leið sem vantar þarna, það er leiðin á Eilífstind sem farinn var fyrir margt löngu af Palla, Hallgrími og ?? Palli getur sagt betur frá þeirri reynslu sem var víst svolítið krassandi ef mig minnir rétt.

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 13 mar 2009 09:30 #8272

Skrifað 13 mar 2009 09:30


Þetta er athyglisvert, ég hef lengi brotið heilann um það hvar þessi svokallaði "Tvífari" væri niður kominn. Nú veit ég að það sem ég hélt að væri Einfarinn er í raun og veru Tvífarinn, magnað!

Jólaklifur Ísalp 2007 hefur þá verið í tvær útgáfur af Tvífaranum, enda skiptist þessi efsta ísspönn í tvö algerlega aðskilin þil þann daginn. Þau voru svosem engar 3. gráður heldur. Reyndar hefði heitið "Eplatréð" verið nær lagi þennan hrollkalda desemberdag, enda dingluðu menn af hverri grein eins og ofþroskaðir ávextir.

Merkilegt þykir mér líka að Ívar telur Þilið vangráðað. Ég stóð í þeirri meiningu að Þilið væri benchmark fimma, sem allar aðrar fimmur á Íslandi ættu að miðast við.

Skalinn í hausnum á mér var orðinn e-nvegin svona:

Skítlétt: 3. gráða
Strembið: 4. gráða
Drullustíft eins og Þilið: 5. gráða
Erfiðara en Þilið: líka 5. gráða

Ekki furða að maður skíti í brækurnar þegar maður heyrir minnst á 5+, hvað þá 6!

Allez!

Ska

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 13 mar 2009 09:48 #8273

Skrifað 13 mar 2009 09:48
Var ekki Orion talinn benchmark fimman?

svar: Ný leið í Eilífsdal, Ópið 13 mar 2009 10:15 #8274

Skrifað 13 mar 2009 10:15
Menn eru alltaf að rugla Tvífaranum við Einfarann. Hugsaðu þér að þú sért að fara Einfarann og þú er kominn upp fyrir sylluna þar sem Tjaldsúlurnar enda. Þá blasir við lóðrétt bergstálið á hægri hönd þegar þú lítur upp Einfarann. Tvífarinn er sem sagt farið upp bergstálið hægra megin í gilinu þar sem Einfarinn er. Um leið og þið komið þarna þá er þetta augljóst. Tvífarinn sést ekki á umræddri mynd því það sést ekki almennilega bergstálið hægra megin í gilinu þar sem Einfarinn er. Tvífarinn endar uppi á brún talsvert hægra megin við Einfarann(nær þeim stað þar sem Tjaldið endar.
Ég hef alltaf talið Þilið vera 5+ þó svo að það sé stundum í 5 aðstæðum eins og mér sýnist það vera nákvæmlega núna. Þegar klifrarar koma frá Evrópu og Bandaríkjunum hingað til lands þá komumst við að því að við höfum svona frekar verið að gráða leiðirnar niður frekar en upp. Nú veit ég að Robbi og co eru orðnir það góðir að þeir hafa frekar tendensa til að gráða varlega frekar en hitt. Það er rétt Orion var talinn vera týpísk 5. gráða en hann er talsvert auðveldari en Þilið.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.50 sek