Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður

Aðstæður 04 mar 2009 20:25 #8233

Skrifað 04 mar 2009 20:25
Sæl og blessuð

Veit einhver hvernig aðstæður eru í Vesturbrúnunum og Búhömrunum? Eða bara svona yfir höfuð hérna í kring um höfuðstaðinn?

kv. Daði Snær

svar: Aðstæður 05 mar 2009 10:19 #8234

Skrifað 05 mar 2009 10:19
Ók fram hjá á mánudag og sá ekki bettur en að það væri ís í tvíbba gilinu. Öðru tók ég ekki eftir sem bendir til að það hafi ekki verið ís þar þá.

Annars ætti varla að vera neitt mál að finna klifranlegan ís núna, það er jú vetur!

Góða skemmtun!

kv.
Softarinn

P.s. Það var hvít lína upp Anabasis, ekki ólíklegt að hægt væri að eiga góðan dag þar. Reyndi einnig að horfa upp í NV-Veggin á Skessuhorninu en gat ekki ákveðið hvort ég væri að horfa á snjó eða ís þar (það snjóaði töluvert nóttina áður).
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Aðstæður 06 mar 2009 16:38 #8235

Skrifað 06 mar 2009 16:38
Tékkaði á Tvíbbagili í dag ásamt Viðari. Mikill ís yfir Himinn og haf. Einnig yfir Ólympíska sem við þó klifruðum. Einginn ís í þeim hlíðum sem snúa út úr gilinu. Ísinn annars orðinn nokkuð sólbakaður, en hverjum er ekki sama ef allar tryggingar eru boltar!

Kv.
Hardcore
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Aðstæður 07 mar 2009 17:17 #8236

Skrifað 07 mar 2009 17:17
Greinilega eini maðurinn sem enn er að klifra, ásamt Viðari auðvitað.

Við Viðar fórum semsagt í Anabasis í dag. Líklega eru aðstæður fínar en þessi leið verður að teljast með þeim mest uppskúfuðu sem ég hef farið. Hefði reyndar átt að vita það enda ekki í fyrsta skipti sem ég fer téða leið, en alveg örugglega það síðasta.

Anabasis fær eina stjörnu, og það er bara af því að skalinn nær ekki neðar!


Kv.
Hardcore
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Aðstæður 08 mar 2009 22:05 #8237

Skrifað 08 mar 2009 22:05
við fórum í glymsgil á lau. þar var mjög þunnar aðstæður og komumst við ekki inn gilið, fórum bara krók sem var alveg klifranlegur en ekki feitur... múlinn leit hinsvegar vel út..

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Aðstæður 09 mar 2009 10:26 #8238

Skrifað 09 mar 2009 10:26
Fórum tveir í Spora á sunnudag í góðum aðstæðum, logn og næs þangað til maður var kominn uppfyrir brúnina.

kv. Stefán Þ.

svar: Aðstæður 09 mar 2009 17:21 #8239

Skrifað 09 mar 2009 17:21
Var á Snæfellsnesi um helgina og þar eru löðrandi aðstæður!!

SÆLL!!

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Aðstæður 09 mar 2009 17:46 #8240

Skrifað 09 mar 2009 17:46
Hvar varstu á Snæfellsnesi Freysi? Varstu bara að góna eða klifraðir þú eitthvað? Var að frétta frá amatör að það væri mikið af ís en væri fínt að fá það staðfest.
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

svar: Aðstæður 09 mar 2009 19:35 #8241

Skrifað 09 mar 2009 19:35
Skrapp í Gilligil(Gilið ofan við bæin Gil á Kjalarnesi) með einn nýgræðing í sportinu. 35 m/s í hviðum á Kjalarnesi bauð ekki upp á nein afrek i Búhömrum. Ágætis aðstæður í gilinu. Keyrði svo Kjósarskarðið og þar vantaði ekki ísinn.

Ági

svar: Aðstæður 09 mar 2009 19:49 #8242

Skrifað 09 mar 2009 19:49
Það var sem sagt fjallamennskunámskeið á Gufuskálum þarna um helgina og þar voru klifnar nokkrar leiðir í Búlandshöfða. Einnig ein blaut leið í skál einni sem var örlítið austar (2min akstur).

Svo sá ég faallegar bláar línur neðan af vegi í Mýrarhyrnunni.

Þannig að já! Það er staðfest!

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.66 sek