Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: M10 Broddar

M10 Broddar 17 feb 2009 10:26 #8177

Skrifað 17 feb 2009 10:26
Ekki gaman að lenda í þessu í leiðslu.

www.neclimbs.com/smf_bbs/index.php?topic=4552.0

Ég hef bara aldrei heyrt um að frambroddarnir brotni, en það er greinilega hægt!

kv. Ági

svar: M10 Broddar 17 feb 2009 10:48 #8178

Skrifað 17 feb 2009 10:48
Shit! ég er á svona broddum, þeir hafa reynst mér mjög vel. Hef enga trú á að það sé galli í mínum þar sem ég hef notað þá í 3 ár.

svar: M10 Broddar 17 feb 2009 11:56 #8179

Skrifað 17 feb 2009 11:56
Eg lenti i nokkud athekku i Isalp ferdinni til Rjukan her um arid. Tha brotnadi fremsti boltinn a rambo broddunum minum og their opnudust allir og nadu ekki neinni festu i isnum. Lukkulega var eg ad elta sidustu sponn dagsins.

Norskur bilvirki aumkadi sig yfir mig og gaf mer ro og bolta sem eg festi saman og virkadi agaetlega sidan. Eftir thetta hef eg tho verid skeptiskur a brodda sem eru ur morgum samsettum hlutum.

H

svar: M10 Broddar 18 feb 2009 22:37 #8180

Skrifað 18 feb 2009 22:37
Það brotnaði hnoð í g12 broddunum mínum undir Hrútfjallstindunum í fyrra. Þeir eru komnir til ára sinna og eitthvað var lítið eftir af hnoðinu þegar það brotnaði. Þar sem þetta var páskatúrinn og veður með besta móti var prússik bandið skorið og hnýtt í gegn nokkra hringi. 7.9.13.. Ekki til eftirbreytni en það hélt og vel það.

Mér finnst gamlir broddar semsagt ekki kúl lengur!

Black Diamond Cyborg 19 feb 2009 08:38 #8181

Skrifað 19 feb 2009 08:38
Herdís hörkutól lenti í lausum broddum 3m fyrir ofan skrúfu í Vallárgilinu fyrr í vetur. Spöngin sem er festir broddann á skóinn poppaði útúr festingunni og þar með hékk broddinn aðeins á böndunum utanum ökklann. Sem beturfer var réttur maður á réttum stað svo að allt fór vel :)


**Takk svo fyrir frábært festeval**

Bíð spennt eftir að Berglind og Arnar hendi myndunum okkar á netið *blikk blikk


Kv Heiða

P.s Sá á flubbaspjallinu að úr hafi fundist við Grafarfossinn 8 feb. Er einhver sem saknar úrs?

Eftirlit með klifurbúnaði 19 feb 2009 14:05 #8182

Skrifað 19 feb 2009 14:05
Það heyrist öðru hverju að broddar brotni eða detti af mönnum í klifri. Ég lenti sjálfur í því um helgina að annar broddinn losnaði af mér en sem betur fer var ég 2m frá því að klára spönnina. Þetta klúður skrifast algerlega á mig það sem mér fannst broddinn ekki smellast nægjanlega fast á fótinn áður en ég lagði af stað. Ég nennti bara ekki úr vetlingunum og lét þetta duga.

Til að koma í veg fyrir svona vesen skal skoða klifurbúnað reglulega og yfirfara eftir ferðir. Herða skrúfur á broddum, renna í gegnum línuna og athuga með skemmdir, athuga skrúfur í öxum, athuga ástand á karabinum. Þetta tekur ekki langan tíma og getur sparað manni mikið vesen og jafnvel komið í veg fyrir stórslys.

Ef það eru míkrósprungur í einhverju af járnadóti hjá manni skal skipta því strax út. Hvort sem það eru karabinur, broddar eða axarblað. Bognum ísaxarblöðum skal henda strax, en ekki reyna að rétta það aftur. Leita skal eftir veikleika í kjarna línunnar (eins og línan sé klemmd eða marin).

Þetta er allt saman öryggisbúnaður sem við viljum að virki 100%, og við viljum ekki að hann klikki þegar á reynir.

Það má líka minnast á það að líftími slinga er skráður 5 ár frá framleiðanda. Nælon efni missa styrk með tíma og sérstaklega ef það verður fyrir mikilli UV geislun.

Robbi

svar: Eftirlit með klifurbúnaði 19 feb 2009 14:16 #8183

Skrifað 19 feb 2009 14:16


Þörf áminnig Robbi, þú verður ábúðarfyllri með hverju árinu sem líður.

Ein spurning; hvernig þekkir maður "míkrósprungur" frá öðrum sprungum?

Skabbi

svar: Eftirlit með klifurbúnaði 19 feb 2009 15:12 #8184

Skrifað 19 feb 2009 15:12
Míkrósprungur eru hárfínar sprungur sem myndast í málminum á þeim stað sem mesta spennan er í efninu (td þar sem broddatönnin fór í sundur). Sprungurnar eru fyrstu merki um veikleika.

Bottomline: SJáanlega sprunga = henda
Robbi

svar: Eftirlit með klifurbúnaði 19 feb 2009 17:12 #8185

Skrifað 19 feb 2009 17:12
Ég fagna þessarri umræðu!

Mér finnst sjálfum fólk vera allt of ragt við að fleygja búnaði sem annað hvort er kominn til ára sinna eða hefur hlotið hnjask.

Þetta kostar pening EN þar sem þessi búnaður er bókstaflega líftaugin okkar ættum við að sjálfsögðu að fara með hann sem slíkann.

Svo er nýr búnaður ekkert öruggur nema að hann fái eðlilegt viðhald og meðferð.

Það eru engir aukakallar í þessu lífi og síðast þegar ég gáði var ekki í boði að seifa þannig að það er um að gera að spila seif!!

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Eftirlit með klifurbúnaði 19 feb 2009 21:53 #8186

Skrifað 19 feb 2009 21:53
Heiða mín!
Takk fyrir kærlega að láta mig vita af þessu. Ég var í Grafarfossinum fyrir stuttu og sakaði úrs ákaflega. Það hefur sennilega brotnað pinni í armbandinu. Ég fór aftur nokkrum dögum seinna að leita en fann ekkert. Ertu með símanúmer á þeim sem fann úrið.
Olli úrlausi S. 824-7195

svar: Eftirlit með klifurbúnaði 19 feb 2009 23:52 #8187

Skrifað 19 feb 2009 23:52
Lítið mál Olli ;)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek