Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísfestival - myndir

Ísfestival - myndir 16 feb 2009 18:08 #8160

Skrifað 16 feb 2009 18:08

svar: Ísfestival - myndir 16 feb 2009 19:46 #8161

Skrifað 16 feb 2009 19:46
Hæ og takk fyrir gott mót um helgina.

Þetta var alveg milljón!

Myndavélin mín var með uppreisn svo að ég náði ekki aksjónmyndum en hér er allavega eitthvað.

picasaweb.google.com/freskur/Sfestival2009BLD#

Hvet svo alla til að senda leiðarlýsingar og yfirlitsmyndir til Sigga og/eða Robba sem fyrst. Þeir ætla að sinna leiðaskráningum og halda utan um þetta.

Þetta má bara ekki gleymast.

Takk aftur fyrir stemminguna og allt!

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Ísfestival - myndir 16 feb 2009 20:12 #8162

Skrifað 16 feb 2009 20:12
Magnaðar myndir, sérstaklega síðasta myndin af þér Björk, þú ljómar af gleði.

svar: Ísfestival - myndir 16 feb 2009 23:14 #8163

Skrifað 16 feb 2009 23:14
Þakka fyrir stórgóða helgi.

skellti inn eitthvað af myndum

picasaweb.google.com/halldor86/SklifurfestivalABildudal#

Dóri

svar: Ísfestival - myndir 18 feb 2009 21:41 #8164

Skrifað 18 feb 2009 21:41
Þetta hefur nú verið frábær helgi.

Örugglega umhusunarverður vaxtarbroddur ferðamennsku og ferðaþjónustu á þessu svæði.
Ég held að olíuhreinsistöð myndi henta Björk vel, þar þurfa örugglega að vinna verkfræðingar og svo er hægt að klifra á frívöktunum!!

Nei, þetta hefur bara verið þannig að gamlingja eins og ég eru bara að spá í að fara með næst. Þó ekki væri nema til að leysa Sissa af við sögusagnirnar.

Hlynur Sk.

svar: Ísfestival - myndir 18 feb 2009 21:46 #8165

Skrifað 18 feb 2009 21:46
Það er alltaf krónískur skortur á góðum sögum - spurning hvort að við mætum ekki næst Hlynur og sjáum um sögunar. ;o)

Halli

svar: Ísfestival - myndir 18 feb 2009 22:33 #8166

Skrifað 18 feb 2009 22:33
Það væri kærkomið drengir og komiði fagnandi!!

Einn sem er búinn að heyra allar sögurnar hans Sissa. ;o)

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Ísfestival - myndir 18 feb 2009 23:50 #8167

Skrifað 18 feb 2009 23:50
Já sæll, ég er kominn með leið á þeim sjálfur...

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 09:57 #8168

Skrifað 19 feb 2009 09:57
Tja Hlynur veit ekki með það, reynslan segir mér að þegar maður vinnur í útlegð Buskanum þá er það fyrsta sem maður gerir í vaktafríum er að koma sér í burtu!

Hlynur og Halli þetta er bókað, það verður gaman að fá ykkur á næsta festivali.

Sissi nenniru að segja okkur söguna um lárétta snúningsásinn hans Robba, held að sumir hafi ekki heyrt hana!

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 10:33 #8169

Skrifað 19 feb 2009 10:33
Takk fyrir helgina...þetta var snilldin ein

Nokkrar myndir í viðbót

picasaweb.google.com/ragnarheidar/SklifurfestivalABildudal#
\"There are only 3 real sports: bull-fighting, car racing and mountain climbing. All the others are mere games.\"

-Hemingway

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 10:36 #8170

Skrifað 19 feb 2009 10:36
Það er 2007, 2009 er ár punktmassans!

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 12:16 #8171

Skrifað 19 feb 2009 12:16
Setti inn myndir á agust.smugmug.com/

Pís át

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 13:33 #8172

Skrifað 19 feb 2009 13:33


Skemmtilegar myndir gott fólk, sérlega glæsilegar hjá Ága verð ég að segja. Af SmugMug síðunni hans Ága ráfaði ég inn á myndasíðu Arnars & Berglindar. Fann þar myndir frá Mýrarhyrnunni sem ég hafði ekki áður séð, virkilega flottar myndir, enda Mýrarhyrnan stórbrotið klifursvæði.

Ég hef tekið eftir ákveðnu trendi meðal ísalpskra myndasmiða. Nebblilega að sá tími sem það tekur að koma myndum fyrir sjónir almennings er í beinu hlutfalli við heildarverð ljósmyndabúnaðar.

Ixus fólkið hraunar út myndum samdægurs, EOS 40 - 400 eftir nokkra daga. Stóru playerarnir seint, eða aldrei.

*andvarp*

Svo eru menn eins og ég sem taka aldrei myndir en rífa stöðugt kjaft....


Allez!

Skabbi

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 13:49 #8173

Skrifað 19 feb 2009 13:49
Góður punktur hjá Skabba um rötunartíma mynda á vefinn. Gaman að benda á það ég hef tekið skref aftur til framtíðar og notaði filmuvél mest um helgina. Ég hef nefnilega trú á að tískan fari í hringi:)

Filman er málið.

Einnig skora ég á menn að skrá leiðirnar sínar undir Nýjar ísklifurleiðir.

Ági

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 18:21 #8174

Skrifað 19 feb 2009 18:21
hahaha... ég er nú með allt reddý... það er bara enn verið að andskotast með nöfnin á leiðunum...
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Ísfestival - myndir 19 feb 2009 23:56 #8175

Skrifað 19 feb 2009 23:56
en það eru einhverjar myndir komnar inná climbing.is
Þakka aftur fyrir frábæra festivalhelgi !
!!! Takk fyrir mig !!!
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Ísfestival - myndir 20 feb 2009 01:03 #8176

Skrifað 20 feb 2009 01:03
Jæja, ég er stoltur eigandi EOS400D vélar þó takmarkað kunni ég til verka við bæði myndasmíð og -vinnslu. Þurfti að vaka fram á nótt til að klára þessi ósköp því það er enginn tími á daginn fyrir svona húmbúkk.

picasaweb.google.com/hraundrangi/SklifurfestivalSalpBildudal#

Afsakið myndafjöldann en þetta byrjaði í 250stk og endaði í 72stk og gekk mjög erfiðlega að lækka það meira.

Eitthvað af þessu er svona þokkalegt.
Bon appetit og takk aftur fyrir góða helgi...
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.60 sek