Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Bíldudals-grænar baunir

Bíldudals-grænar baunir 13 feb 2009 23:00 #8148

Skrifað 13 feb 2009 23:00
Sæææææll...djöfull er gaman á Bíldudal. Massa stuð og mörg hundruð metrar af ís voru klifraðir í dag. Mæli meðissu.

Robbi

svar: Bíldudals-grænar baunir 15 feb 2009 22:29 #8149

Skrifað 15 feb 2009 22:29


Fokk hvað Arnafjörður er troðfullur af ís. Ég er ennþá ringlaður.

Þakka öllum sem mættu, klifruðu, átu súpu og gerðu festivalið 2009 að ógleymanlegum viðburði. Þið eruð dásamleg.

Ég hlakka til þegar myndirnar fara að týnast inn.

Allez!

Skabbi

svar: Bíldudals-grænar baunir 15 feb 2009 23:36 #8150

Skrifað 15 feb 2009 23:36
Já, þokkalega.
Þakka kærlega fyrir mig. Súpan snilld, aðstæðan betri og ísklifrið frábært.
Verðum að sampla þetta svæði aftur síðar í vetur eða alla vega á næsta ári...

Við Robbi ætlum að reyna að berja saman leiðarvísi að þessu. Erum með myndir af slatta af svæðum og leiðum og R tók textalýsingar af flestum hópum um helgina. Sendum á ykkur markpóst við tækifæri ef vantar myndir eða info.

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 10:45 #8151

Skrifað 16 feb 2009 10:45
Þetta var snild. Flott skipulag, góðu súpa og frábært svæði.
Þakka fyrir mig.

GSS

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 12:36 #8152

Skrifað 16 feb 2009 12:36
Insane svæði, 25 km af ís, þetta eru sjálfsagt vel yfir 100 leiðir (ég hætti að nenna að telja) og mest langt og bratt. Ótrúlegt. Props til Eika og þeirra fyrir weztan að kveikja á þessu.

Props til klúbbsins að halda vel utan um þetta og stjórnarmanna fyrir að vara alla við að fara ekki yfir heiðina.

Og props til alls frábæra fólksins sem var fyrir weztan um helgina, það er gaman að fara í ferðalag með ykkur.

Hils,
Sissi

ps - drullisti svo til að setja inn pics, mér er orðið illt í F5 puttanum ;)

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 13:07 #8153

Skrifað 16 feb 2009 13:07
Þetta var frábært festival. Aðstaðan góð og ísinn betri. Virkilega góð stemmning.

Myndir eru á leiðinni.

Takk kærlega fyrir mig.

Ági

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 15:24 #8154

Skrifað 16 feb 2009 15:24
Ég þakka fyrir skipulagningu og góða stemningu. Óheyrilega fallegt svæði með frábærum klifurmöguleikum. Ég minnist þess ekki að hafa átt betri ísklifurdag. Fjórtán klukkustundir í aftursæti Hilux voru vel ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir svona upplifun.

Og kjötsúpan var afbragð.

Kveðja,

AB

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 15:35 #8155

Skrifað 16 feb 2009 15:35
Takk fyrir frábert festival, mikið stuð, klikkaða kjötsúpu og gott klifur. Og inn með myndirnar, skóli er ekkert skemmtilegur.. ;)

kv. Daði Snær

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 15:36 #8156

Skrifað 16 feb 2009 15:36
Þetta var mikil snilld! Þakka fyrir mig!

Ási

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 15:37 #8157

Skrifað 16 feb 2009 15:37
www.bildudalur.is/?c=webpage&id=377

Formadurinn myndast serdeilis vel ad venju!

Hlakka til ad sja myndir - er full ad hafa ekki komist :o(

kv.
Halli

svar: Bíldudals-grænar baunir 16 feb 2009 18:11 #8158

Skrifað 16 feb 2009 18:11
Svakalegt festival og svakalegar leiðir og frábær súpa.

Setti inn örfáar myndir á:

flickr.com/photos/22925172@N03/sets/72157613886131559/

Smári
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek