Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ískönnun á Austurlandi

Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 00:00 #8061

Skrifað 06 feb 2009 00:00
Ég og Arnar rúntuðum um Austurland í byrjun vikunnar. Eftir að hafa notið "púðurs" í Hlíðarfjalli um síðustu helgi keyrðum við austur á sunnudag. Fórum af stað með háleit markmið en það fór svo miklu meiri tími í akstur og göngu upp að hugsanlegum klifurleiðum heldur en klifur! Engu að síður mjög skemmtilegt að fara á nýjar slóðir og nú vitum við hvert við eigum að fara næst ;) Fullt af möguleikum á Austurlandi en hefði mátt vera meiri ís í leiðum nálægt ströndinni.

Myndir og nánari lýsing:
arnarogberglind.smugmug.com/gallery/7283090_HYTqv#468237363_Bm6bu

kveðja,
Berglind

svar: Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 00:54 #8062

Skrifað 06 feb 2009 00:54
Mjög töff ródtripp. Endilega halda utan um myndir og staðsetningar því þetta er flest allt líklegt til að fera ff.

robbi (að deyja úr öfund)

svar: Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 09:22 #8063

Skrifað 06 feb 2009 09:22
Ég ræddi hinsvegar við okkar mann í Öræfunum. Þar er vel hægt að klifra þó leiðir sem vísa mót sólu séu reyndar ekki til staðar.

En Stigardalurinn og væntanlega Grænafellsgljúfur eru í glimrandi aðstæðum og býst hann ekki við öðru en aðstæður batni eins og veðrið er.

Merkilegustu fréttirnar eru hinsvegar þær að það er hægt að renna sér sleitulaust (- sléttuna) niður af Hnjúk og í bílinn (á Sandfellinu og væntanlega fleiri leiðum).

Kv.
Ivar
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 10:10 #8064

Skrifað 06 feb 2009 10:10
Skemmtilegt ferðalag. Gaman að sjá myndir.

Kveðja,

AB

svar: Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 13:03 #8065

Skrifað 06 feb 2009 13:03
Glæsileg ferð, gaman að sjá myndir!

kv Hædí

svar: Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 19:47 #8066

Skrifað 06 feb 2009 19:47
Súrt að leiðirnar hafi verið að stríða ykkur.

Tek undir með Robba, varð fölgrænn í framan þegar ég sá myndirnar.

Líka gaman að heyra fréttir úr Öræfasveitinni.

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Ískönnun á Austurlandi 06 feb 2009 21:13 #8067

Skrifað 06 feb 2009 21:13
Glæsilegar myndir. Gaman að ródtrippa.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek