Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Meira mix - meira stuð.

Meira mix - meira stuð. 03 feb 2009 12:42 #8027

Skrifað 03 feb 2009 12:42
Við Freysi fórum nýja leið sem heitir Hagsmunagæslan og er ca M5.

Leiðin er afbrigði af Helvítis fokking fokk; í stað þess að hliðra fram hjá þakinu er farið út þakið með hjálp fríhangandi kertis. Það eru 5 boltar í leiðinni.

Kíkið á nýskráningu leiða: isalp.is/route.php?op=l&t=1

Okkur finnst þetta vera frábær leið.

Ég minni svo aftur á að Helvítis fokking fokk er alls ekki svo erfið og kjörin sem fyrsta mixleið. Reyndar verð ég að minnast á að snjórinn hefur rænt hátt í 1,5 metra af leiðinni, nú er fyrsti bolti í brjósthæð en þegar við boltuðum leiðina þurfti að teygja sig í hann.

Kveðja,

AB

svar: Meira mix - meira stuð. 03 feb 2009 12:54 #8028

Skrifað 03 feb 2009 12:54
Ég gleymdi að minnast á að Freysi kláraði Ólympíska félagið í gær.

Þá var fagnað.

AB

svar: Meira mix - meira stuð. 03 feb 2009 12:55 #8029

Skrifað 03 feb 2009 12:55
Noohhh glaesileg leid!

Mer list heldur betur vel a ykkur Freysa, thid varla flexid bisepinn an thess ad vera vopnadir papparossum sigandi nidur helstu thok :o)

Vel af ser vikid

kv.
Halli

svar: Meira mix - meira stuð. 03 feb 2009 13:40 #8030

Skrifað 03 feb 2009 13:40
Haraldur. Þú sem lærifaðir minn í gegnum árin veist að ég geri ekkert nema hafa örugga vitneskju um að gjörðir mínar séu skrásettar og birtar almenningi. I´m in it for the fame.

Freysi er eins; hann ætlaði varla að hafa sig af stað í Ólympíska félagið í gær þar sem enginn ljósmyndari var á svæðinu.

Kveðja,

Glory hunter

Kaldakinn - aðstæður 03 feb 2009 21:15 #8031

Skrifað 03 feb 2009 21:15
Gott mál. Það er allt að verða löðrandi í leiðum þarna uppfrá.
En... það er víðar hægt að príla en í Esjuhlíðum...

Datt í hug að minnast á að ábúendur að Björgum í Kaldakinn halda úti vefsíðunni www.bjorgum.is þar sem finna má myndir og sitthvað fleira um ísklifur á svæðinu auk gistimöguleika og fleira.

Þar vakti helst athygli mína sérdeilis prýðilegur fítus sem sýnir vikulega myndir af ísaðstæðum í Ógöngufjalli. Sé ekki betur en flestar leiðir séu að detta í aðstæður og því tilvalið að drífa sig norður við tækifæri.
Slóðin á aðstæðusíðuna er:
www.bjorgum.is/icebjorg---iceclimbing-area/the-ice/

Tvíburagil 03 feb 2009 22:04 #8032

Skrifað 03 feb 2009 22:04
Maður varð náttúrulega að fara og krossa við eitthvað af þessu dóti í tvíburagili.

Gekk vel ég, Guðjón Snær og Dóri bættumst í safnið yfir þá sem hafa klifrað hið merka Olympískafélag. Reyndar held ég að við höfum sloppið örlítið betur en Andri á sínum tíma. Það er hægt að stemma sig af í lítð kerti og hvíla í miðju krúxinu.

Náttúrulega gersamlega athygglissjúkir og því gleymdis myndavélinn ekki heima:

picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/MixMaster#5298690745754846274

Helvítis, fucking, fuck er líka ekki svo slæm. Létt og skemmtileg!

Það stendur svo til að bolta Síamstvíburana við tækifæri og lengja mix hlutann þar sem ísaðstæður hafa gersamlega breyst.

kv.

Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Tvíburagil 03 feb 2009 22:36 #8033

Skrifað 03 feb 2009 22:36
Frábær dagur í tvíburagilinu í dag.

Ég og Doddi renndum þanngað í dag byrjuðum á helvítis fokking fokk og skelltum okkur svo í olympískafélagið.

Stórskemmtilegt svæði við vorum reyndar ekki með neinar myndavélar á okkur en Guðjón og Ívar voru góðir í sér og mynduðu okkur aðeins.

Einnig fórum við 3 í kórinn í Kjósinni á föstudag og fórum spora í fínum aðstæðum og fórum svo í konudagsfossinn en hann var ekki kláraður þar sem efsti parturinn var svo rosalega kertaður.

Síðan fórum við 4 Ársælsmeðlimir í Austurárdal á sunnudaginn og voru aðstæður þar svipaðar og á myndunum frá seinustu grúppu þaðan. klifrðuðum við eitthvað afbrigði af bláu leiðinni og áætlun B.
Hendi einhverjum myndum á netið við tækifæri.

Dóri

svar: Tvíburagil 03 feb 2009 23:14 #8034

Skrifað 03 feb 2009 23:14
Jæja ég get ekki verið eftirbátur annara sem hafa lagt leið sína upp í Tvíburagil undarfarið.
Hér koma því nokkrar myndir frá deginum.

picasaweb.google.com/gudjons/20090203SkifurTviburagil?authkey=bc6ybw3jSdU

kv,
GSS

svar: Tvíburagil 03 feb 2009 23:37 #8035

Skrifað 03 feb 2009 23:37
Jæja, það er víst nóg framboð af myndum. Svona á þetta að vera.

Hér eru myndir úr nokkrum ferðum í Tvíburagil í janúar og febrúar:

picasaweb.google.co.uk/andribjarnason/TviburagilIJanuarOgFebruar#

Kveðja,

AB

svar: Tvíburagil 04 feb 2009 09:47 #8036

Skrifað 04 feb 2009 09:47
Eins og fram hefur komið þá fór ég ásamt Skabba og Robba upp í Tvíbbagil á laugardaginn. Smellti af nokkrum myndum við það tækifæri og hér er eitthvað af því: retro.smugmug.com/gallery/7269337_UZen6#467293570_z3FHp

svar: Tvíburagil 04 feb 2009 11:22 #8037

Skrifað 04 feb 2009 11:22
Áhugavert. Það er ekkert smá sem leiðin breytist á nokkrum vikum. Greinilegt að maður verður að prófa ísvariantinn af þessu líka.
Mig langar til að klifra svona dangling dagger eins og hinir... :)

Legg til að leiðin verði endurskírð "Miklabraut" í ljósi mikillar umferðar síðustu vikur.

svar: Tvíburagil 04 feb 2009 20:35 #8038

Skrifað 04 feb 2009 20:35
Þetta er mikil snilld.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.25 sek