Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Tvíburagil, yet again..

Tvíburagil, yet again.. 25 jan 2009 23:00 #7920

Skrifað 25 jan 2009 23:00
Við Addi skelltum okkur í Tvíburagil í dag, hittum þar tvo klifurmeistara sem voru búnir að kljást við Ólympíska.

Við klifruðum Helvítis fokking fokk sem er hægra megin við Ólympíska sem var í skemmtilegum aðstæðum.

Ísinn þarna er orðinn frekar tæpur... allavega var alveg duglegt hrun þarna útum allt og þetta voru með blautari aðstæðum sem ég hef klifrað í, enda vorum við dauðfegnir að fara ekki í Ólympíska þegar við vorum að pakka niður við hliðiná þegar ísklumpur á stærð við bakpokann minn kom fljúgandi niður leiðina.


en allavega að þá tók ég smá yfirlitsmynd sem væri hægt að nota til að merkja inná leiðirnar þarna... væri samt örugglega betra að taka aðra þegar þetta er í betri aðstæðum... en þetta er þó eitthvað allavega.

www.internet.is/gummistori/Klettur_Tviburagili.jpg


kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Tvíburagil, yet again.. 26 jan 2009 21:11 #7921

Skrifað 26 jan 2009 21:11
Jamm við Palli skelltum okkur í Ólympísku. Tókum nokkrar ferðir upp að ísnum(4. bolta) en létum það gott heita sökum bleytu. Náði samt að koma bung blautur heim.

Skemtileg leið og lofar þetta framtak í mix og boltunarmálum góðu.

kv,
GSS

svar: Tvíburagil, yet again.. 26 jan 2009 22:23 #7922

Skrifað 26 jan 2009 22:23
ok, það má bolta Síamstvíburana, þar sem engin virðist hafa áhuga á að snerta þá með dóti, og Haukur er búinn að gefa grænt ljós.

Efast um að ég komist í að bora á næstunni, þannig að ef eihver annar er með vél þarna upp frá þá er bara að senda mér reikninginn fyrir því sem útaf stendur.

kv.
Hardcore
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Tvíburagil, yet again.. 26 jan 2009 23:00 #7923

Skrifað 26 jan 2009 23:00
ég get komið með borvél ef einhver kemur með augu !
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Tvíburagil, yet again.. 27 jan 2009 00:17 #7924

Skrifað 27 jan 2009 00:17
Velkominn hjem, var gaman?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek