Já, Múlafjall svíkur aldrei. Það var búið að bætast aðeins í ísinn frá því á þriðjudaginn og var Stígandi í sverum aðstæðum, örítið kertað í aðal haftinu. Við fjórmennuðum í fossinum (ég, Ási, Siggi og Gunni) og varð úr hið skemmtilegasta sosíal klifur. Hittum svo fyrir Skabba og Gulla.
Skelltum okkur svo í aðra línu einhverstaðar í Múlafjalli. Leiðin er hægrameginviðleiðinasemer10metrumvinstrameginviðleiðina semerfyrirofanstórasteininn.
Þar sem þetta gengur ekki þá ætla ég að kalla þessa leið Fjúkandi, og hún er WI4. Það þarf að fara að kalla þessar leiðir eitthvað. Ef einhver veit hvað hún heitir, eða hver klifraði handa fyrst þá vinsamlegast stígið fram. Þessi leið hefur vafalaust verið klifruð áður.
Ákveðið var að kalla leiðina sem Skabbi og Gulli klifruðu eitthvað, svo að hægt væri að tala um hve frábær þessi leið væri án þess að koma með lýsingu eins og að ofan. Hefur án efa verið klifruð áður.
Ívar hvíslaði því að mér að aðstæður væru góðar í Villingadal.
Myndir:
picasaweb.google.com/roberthalldorsson/MLafjall25Okt2008#
robbi.