Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður í Grafarfossinum

Aðstæður í Grafarfossinum 31 jan 2008 09:05 #6282

Skrifað 31 jan 2008 09:05
Fórum í gærkvöldi og klifruðum Grafarfossinn, ég, Örvar, Jósef og Tommi úr Hafnarfirðinum. Fínnt veður í gilinu en skíta rok og skafrenningur á brúninni, dálítill skafrenningur niður fossin en kom ekki að sök.

Neðri hlutinn af orginalnum er í leiðinlegum aðstæðum, ekki mann held skel yst, síðan kemur sykursnjór og loks kertaður ís lengst bak við þetta allt saman. Þarfnaðist töluverðs moksturs.

Efri hlutinn er með massa góðum ís og í fínum aðstæðum.

Kveðja,

Bergur

svar: Aðstæður í Grafarfossinum 31 jan 2008 09:15 #6283

Skrifað 31 jan 2008 09:15
Snilld. Svona á að gera þetta. Góð ferð, gott rapport og lýsing á aðstæðum.

Robbi

svar: Aðstæður í Grafarfossinum 31 jan 2008 09:58 #6284

Skrifað 31 jan 2008 09:58
Tókst að missa eina skrúfu, BD tubular express, (helvítis djöfull) svo að ef að einhver fer að grafa sig í gegnum Grafarfossinn og rekst á hana þá væri vel þegið að fá mail á josefsig(hjá)gmail(punktur)com, ásamt ekki von um það, en aldrei að vita.
kv. Jósef
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek