Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Leiðavísir af Mýrarhyrnu

Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 13:59 #6205

Skrifað 22 jan 2008 13:59
Er búinn að setja gróflega saman leiðavísi af mýrarhyrnu. Um er að ræða austurhliðina. Njótið og klifrið.

hi.is/~roh2/Lei%d0arv%a1sar/

Robbi

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 14:54 #6206

Skrifað 22 jan 2008 14:54


Flottur leiðarvísir robbi, skýr og vel upp settur.

Ætla samt að agnúast út nokkur smáatriði.

Það vantar leið nr. 1 inn á. Vorum við ekki sammála um staðsetninguna á henni?

Furðulegt að tala um "einar flottustu leiðir". Einn virkar betur í eintölu en fleirtölu.

Og þetta fatta ég ekki:

"Mjög falleg og brött klifurleið sem virðist vera erfiðari en hún lítur út fyrir að vera."

Er hún erfiðari en hún lítur út fyrir að vera eða virðist hún erfiðari en hún er?

Mér fannst hún líta út fyrir að vera drullu erfið, og vera það!

En að lokum, glæsilegt verk, trú því að við fáum fleiri svona áður en veturinn er á enda!

(Sjáiði þessa frábæru complement samloku? Byrja með hrósi, rífa svo niður og enda á hvattningu! Svona á að gera þetta!)

Allez!

Skabbi

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 15:05 #6207

Skrifað 22 jan 2008 15:05
Lýsingarnar á leiðunum eru teknar beint upp úr ársriti, kanski með smá breytingu á orðalagi einhverstaðar.

"Mjög falleg og brött klifurleið sem virðist vera erfiðari en hún lítur út fyrir að vera." Þetta stendur í ársritinu.

Leið nr 1 er ekki inná þar sem ég hef ekki hugmynd um hvar hún er en hú verður sett inn á um leið og ég hef fundið út úr því. Þessvegna byrjar hann á leið 2.

Þetta er ekki lokaútgáfa heldur "gróflegur leiðarvísir" eins og stendur hér að ofan.

Góðar stundir.
Robbi

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 15:08 #6208

Skrifað 22 jan 2008 15:08
Er talsvert erfiðari en hún lítur út fyrir að vera átti þetta að vera og stendur íársritinu, prentvilla.
rob

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 15:19 #6209

Skrifað 22 jan 2008 15:19
Frábært framtak Robbi, ég held að ég geti upplýst hvar leið 1 er eða réttara sagt nokkurn veginn. Málið er að Einar Öræfingur fór við annan mann einhverja leið í rauða kassanum á topoinum. Það tókst aldrei á sínum tíma að fá nákvæmlega hjá honum staðsetninguna þannig að það var látið liggja á milli hluta. Núna ef Einar les þetta væri tilvalið fyrir hann að merkja inn á tópóinn hans Robba hvar leiðin liggur eða segja honum það og Robbi uppfærir. Ég trúi ekki öðru en að hann vilji eiga kredit fyrir leiðina.
Kveðja Olli

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 15:31 #6210

Skrifað 22 jan 2008 15:31
Shitt... Ég var búinn að gleima hvað þetta eru flottar leiðir.

Frábært framtak.

kv.
Palli

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 15:31 #6211

Skrifað 22 jan 2008 15:31
Davíð Halldór Marínósson (Golli) klifraði með EinarÖ þennan sunnudag á ísfestivalinu......veit ekki hvort þú sért að tala um sömu leið þó.

Flott framtak Róbert, og já vonandi ná menn að koma þessu í betra horf á næstu mánuðum,

Lærði þessa taktík sem þú talar um Skabbi, að fyrst hæla, svo brjóta niður og ljúka því með hóli aftur, á ferð minni með Grönli nokkrum í haust, sem hafði lært þetta við störf í félagsmiðstöð hjá ÍTR og hef reynt að notast við þetta síðan þá við góða raun.

Svo þarf að klára hin svæðin og taka þetta saman á einn stað. Hvernig er það voru ekki alltaf tekin fram FF dagsetning?

kv.himmi

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 16:21 #6212

Skrifað 22 jan 2008 16:21
Þetta er glæsilegt!

Ekki spurning að mar verður að kíkja þarna hið fyrsta!

Hils,
Steppo

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 22 jan 2008 17:05 #6213

Skrifað 22 jan 2008 17:05
Flott !

ég keyrði þarna framhjá um daginn og gjörsamlega starði þarna uppí Hyrnuna... gegggjaðar leiðir!

THUMBS UP ROBBI !!!

kv. Gummi
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Leiðavísir af Mýrarhyrnu 23 jan 2008 00:01 #6214

Skrifað 23 jan 2008 00:01
Lítur vel út en... er Comeback og Abdominal ekki með vitlaus númer? 5 á að vera 6 og öfugt.

kv
rok
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Abdominal.is 23 jan 2008 09:45 #6215

Skrifað 23 jan 2008 09:45
Hvernig var það Rúnar, voru þið Olli ekki sammála um að leiðin hafi verið nefnd Abdominalis? Ekki málið halda sig við það sem rétt er svo rangnefnið festist ekki í hugum fólks?

svar: Abdominal.is 23 jan 2008 11:32 #6216

Skrifað 23 jan 2008 11:32
Ég held að lítil ástæða sé til að rífast um nöfn á leiðum sem eru nefndar í ársriti Ísalp. Ég hef nú ekki haft nennu til að fletta því upp.
Olli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.38 sek