Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Helgin

Helgin 04 jan 2008 15:32 #6059

Skrifað 04 jan 2008 15:32
Jæja, ætla menn ekki að rífa af sér slenið og brenna sveittu jólasteikinni og konfektinu í smá ísbrölti?

Erum að gæla við að mæta í Múlafjall á morgun (laugardag) og e.t.v. á sunnudag.

Spáin er þokkalega köld en eflaust er þorrinn af ísnum lekinn niður. Alltaf nóg af grjóti til að jóðla sér á samt...

Einnig eru án efa fínar aðstæður í Eilífsdal og máski Villingadal en önnur svæði tvísýn.

Verðum mættir í Hvalfjörðinn um eða fyrir birtingu á morgun. Vonumst til að sjá fleiri...

Var annars í Aðaldal um jól/áramót og gluggaði yfir í Köldukinn í sjónauka. Þar var ísinn í þynnra lagi, afar lítið við sjóinn en slatti búinn að myndast kringum Frygð/Upprisu svínanna/E222 og það. Stekkjastaur allur að koma til að ofan en skeggið bara rétt að byrja að teygja sig niður slúttið. Alla vega 2-3 vikur af góðu frosti í að það verði brúklegt nema menn vilji treysta á Frygð og co.

svar: Helgin 04 jan 2008 17:36 #6060

Skrifað 04 jan 2008 17:36
Þetta hljómar vel. Auglýsi hér með eftir klifurfélaga í einhverja skemmtilega 3. gráðu.

Mbk

Bragi

svar: Helgin 04 jan 2008 17:56 #6061

Skrifað 04 jan 2008 17:56
Líst vel á, ég og Raggi mætum vaskir í Múla á morgun.

FIB
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Helgin 04 jan 2008 20:13 #6062

Skrifað 04 jan 2008 20:13
Bragi!

Mig vantar félaga á morgun...hringdu ef þú hefur áhuga!

Kv.

Atli Páls.
S:6914480

svar: Helgin 04 jan 2008 21:51 #6063

Skrifað 04 jan 2008 21:51
Ég, Maggi og Atli verðum á svæðinu.

Bragi

svar: Helgin 05 jan 2008 12:35 #6064

Skrifað 05 jan 2008 12:35
Iss...

Fórum fýluferð í Hvalfjörðinn. Þar var ekkert í boði. Horfðum inn Eilífsdal úr fjarska. Þar var einhver ís. Hugsanlega í aðstæðum en við vorum of seint á ferðinni.

Bragi

svar: Helgin 05 jan 2008 16:41 #6065

Skrifað 05 jan 2008 16:41
Kíktum í múlan í smá þurrtólun, vorum seint á ferðinni og þurftum að fara snemma til baka þannig að við léttum okkur nægja að fara í neðsetu höftin í múlanum og náðum við að beita tólum í stein og fara nokkrar ferðir áður en heim var haldið.

Kv.
Arnar

svar: Helgin 05 jan 2008 18:43 #6066

Skrifað 05 jan 2008 18:43
Við Eyþór fórum NA-hrygginn á Skessuhorni í frábærum aðstæðum en skyggnislausu veðri. Skemmtilegt brölt.

AB

svar: Helgin 06 jan 2008 00:38 #6067

Skrifað 06 jan 2008 00:38
Jæja, fórum í Múlafjallið og sáum ekki eftir því þrátt fyrir dulítið ísleysi og allnokkuð rok.

Myndir og smá komment á
picasaweb.google.com/hraundrangi/MLafjallMixklifur5JanAr2008

Von er á fleiri myndum frá Robertino á næstu dögum.

svar: Helgin 06 jan 2008 21:31 #6068

Skrifað 06 jan 2008 21:31
Frábær dagur í Múlanum!

Takk fyrir daginn

svar: Helgin 06 jan 2008 22:09 #6069

Skrifað 06 jan 2008 22:09
Ég, Robbi, Sissi, Freyzi og Skabbi fórum í Múlafjallið í dag.

Enduðum á að klifra tvær leiðir í Leikfangalandi auk þess sem Freyzi og Robbi léku sér í tveim styttri mixleiðum alveg við niðurferðarskriðuna, steinsnar frá Pabbaleiðinni og Íste.

Kom mér á óvart hve mikill ís var þarna. Það var a.m.k. minna um mix í Leikfangalandi en við áttum von á.

Góður dagur í Múlanum.

Hils,
Steppo

svar: Helgin 06 jan 2008 23:52 #6070

Skrifað 06 jan 2008 23:52
Beisik dagur á fjöllum.

Siz

svar: Helgin 07 jan 2008 09:47 #6071

Skrifað 07 jan 2008 09:47
Nafnafastistinn kominn upp í mér.

Við fórum línu sem er í miðjunni inni í hvelfingunni fyrir innan Stíganda. Einhversstaðar sá ég að ein línan í þessari skál heitir Frosti. Þekkir einhver nöfnin á þessum þremur?

Lengst til vinstri endar í ansi mögnuðu þaki, línan í miðjunni er frekar feit og lína með miklu rennsli lengst til hægri. Sést glitta í toppana á þeim á þessari mynd (gömul) gallery.askur.org/main.php?g2_itemId=158546.

Síðan fórum við meiri alpafílings mixleið handan við hornið (innar), svo sem ekki víst að það heiti neitt.

Kannski að Palli, Olli og félagar þekki nöfnin á þessu?

Kveðja,
Siz

Myndir úr múlafjalli 07 jan 2008 13:52 #6072

Skrifað 07 jan 2008 13:52
Merkilegt hvað var "mikið" af ís miðað við alla rigninguna sem hann hefur mátt þola.
Ef einhver (lesist Palli, Olli, Guðmundur Helgi, Hallgrímur og allir hinar kempurnar sem ég taldi ekki upp) þekkir nöfn á leiðunum þá vinsamlegast gefið ykkur fram.
Það þýðir ekki að benda á einhverja aðra og bíða eftir að þeir gerið það. Endilega sendiði línu.

Robbi
roberthalldorsson(hjá)gmail(punktur)com

svar: Myndir úr múlafjalli 07 jan 2008 14:54 #6073

Skrifað 07 jan 2008 14:54
Að því er ég best veit er Frosti línan lengst til hægri í Leikfangalandi (og væntanlega sú sem glittir í lengst til hægri á myndinni sem Sissi vísar í). Hef ekki heyrt að hinar leiðirnar þarna hafi nöfn.

Kannski veit einhver betur?

ó

svar: Myndir úr múlafjalli 07 jan 2008 15:00 #6074

Skrifað 07 jan 2008 15:00
Meira: Ef mér skjátlast ekki þá er þetta Frosti sem er fjærst og sést best á myndinni. Í forgrunni er svo væntanlega önnur hvor nafnlausu/óþekktu leiðanna þarna í gilinu.

picasaweb.google.com/hraundrangi/SklifurMLafjall2Des2007/photo#5139739272175356370

(Myndin er í boði Sigga Tomma).

svar: Myndir úr múlafjalli 07 jan 2008 16:39 #6075

Skrifað 07 jan 2008 16:39
Sko þetta er ekki einfalt mál.

Á sínum tíma var búinn til leiðarvísir um hvalfjörð. Mikið af leiðum voru skráðar í hann og líka vantar nokkrar sem var búið að fara. Eftir að ég fór að klifra í múlafjallinu töldum við að það væri búið að klifra allar leiðirnar og því voru þær aldrei nefndar. Síðan hefur þetta haldið svona áfram. Fullt af flottum leiðum sem engin veit hver fór fyrstur og hvað heita og hvar eru.

Ég nefndi Íste en er ekki viss um að hafa verið fyrstur. Pabbaleiðina á ég og Olli. (hún var ekki boltuð um helgina. Hún er hægramegin við íste og vinstramegin við þá sem var boltuð um helgina.) Leikfangaland er líka nafn eftir mig og það er rétt að Frosti er línan lengst til hægri. Það hafa verið farnar 5 til 6 flottar línur upp leikfangaland.

Það er búið að fara ótrúlegan fjölda leiða í múlafjalli og sumarhverjar algör gullkorn.
Það er löngu þarf verk að tína þetta saman og teikna á blað.
Myndirnar um helgina eru samt ónothæfar vegna þessa að þar sem ísinn er venjulega er hann allur horfin.

kv.
Palli

svar: Myndir úr múlafjalli 07 jan 2008 19:23 #6076

Skrifað 07 jan 2008 19:23
picasaweb.google.com/hraundrangi/SklifurMLafjall2Des2007/photo#5139739285060258290

Góðar myndir hjá Sigga og dæmi um hvað hefur verið gert í Múlafjalli.

kv
Palli

svar: Myndir úr múlafjalli 07 jan 2008 23:59 #6077

Skrifað 07 jan 2008 23:59
Gekk á Þverfellshorn síðastliðinn laugardag í fylgd Leifs Arnar og Guðjóns Marteins. Náðum ágætri siglingu upp hornið og gátum ekki stoppað með góðu móti fyrr en halla fór undan að norðanverðu. Gengum vanmáttugir undir Þilið sem virtist í feitum aðstæðum - amk. betri en er við fórum það um árið- og Tjaldsúlurnar voru vel kleifar, nema kannski helst sú lengst til vinstri. Með aðeins nokkrar ísskrúfur upp á vasann varð Einfarinn fyrir valinu... og hann hefði næstum mátt skíða niður með vel brýnda kannta. Frábær dagur og engan annan að sjá ... svo trúlega vorum við þeir sem til sást (sjá ofar)! Alltaf gaman að klifra fyrir áhorfendur þótt ljóst sé að þeir hafi flykkst um aðra um nýliðna helgi.
Allavega... hér eru aðstæður úr nokkru návígi úr Eilífsdal laugardaginn 5. jan.
picasaweb.google.com/jongauti/VerfellshornEilFsdalur
kv, jgj
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek