Ég var að klifra í ágætis ís í gær þrátt fyrir hlýindi á landinu. Var með 2 breta í Ísklifurnámskeiði, og við keyrðum austur í Breiðdal. Þar sem maður er um það bil að keyra af stað upp á Breiðdalsheiði eru yfir 30 einnar og tveggja spanna leiðir, allt óklifrað held ég. Nóg af 3 og 4 og vonandi 5 gráðu leiðum, og neðar í Breiðdalnum er alla vega eitt mix, fríhangandi kerta gil fyrir fullorðna fólkið, auk þess sem massa leiðir eru bæði í Berufirði og Reyðarfirði.
Það virðist vera ís allan veturinn þarna efst í Breiðdal, þannig að þetta gæti verið hentugur staður fyrir festival. Alla vega 50 ólklifraðar leiðir í dalnum.