Fínar aðstæður í Eilífsdal
03 des 2007 13:03 #5890
Skrifað 03 des 2007 13:03
Kíktum nokkrir Hafnfirðingar í Eilífsdalinn á sunnudaginn. Nóg af ís í neðara haftinu í Einfaranum og Tjaldsúlunum. Efri hluti Einfarans er þó íslítill og lítill snjór í kverkinni og væntanlega erfitt að klára upp úr honum þar en Tvífarinn er orðin vel þykkur.
svar: Fínar aðstæður í Eilífsdal
03 des 2007 13:54 #5891
Skrifað 03 des 2007 13:54
Ég og ungstirnið Danni G fórum í Múlafjall í gær.
Stígandi í fínum en þó pínu kertuðum og blautum aðstæðum (fórum hann upp á topp).
Hættum við Rísanda því fyrsta haftið þar var mígandi og heldur þunnt. Aðrar leiðir allar að koma til, t.d. Íste.
Náðum þokkalegum myndum af Brynjudal og Eilífsdal á leiðinni heim. Hafnfirðingarnir geta reynt að spotta sjálfa sig á myndinni (tekin um kl. 2:30 í gær)...
svar: Fínar aðstæður í Eilífsdal
04 des 2007 16:10 #5892
Skrifað 04 des 2007 16:10
Trítlaði inní Glymsgil á sunnudag... þar var ekkert hægt að gera.. alveg gjörsamlega íslaust, bara smá skánir farnar að myndast.. vorum alltof seinir á ferðinni þannig að það var bara farið heim.
Fórum stíganda á sunnudeginum fyrir viku, þá var hann svipaður og Sigurður lýsir, mjög gaman...