Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur í Kjalardal

Klifur í Kjalardal 22 júl 2007 23:25 #5378

Skrifað 22 júl 2007 23:25
Á hverjum vetri myndast skemmtilegar ísklifuraðstæðr í norðanverðu Akrafjalli, þ.e.a.s. í Kjalardal.

Þetta vídeo sem ég tók árið 2001 sýnir hluta af því.

Njótið...



Kveðja Gunnar

svar: Klifur í Kjalardal 23 júl 2007 10:35 #5379

Skrifað 23 júl 2007 10:35
Flott, hvað segirðu um góða yfirlitsmynd af svæðinu?

Svo er ég mikill talsmaður þess að F.F. séu skráð (með þeirri undantekningu þegar menn hyggjast sjálfir ná nýjum leiðum og vilja halda nýfundnum svæðum fyrir sig í TAKMARKAÐAN tíma).


Hvað eru þessi kerti há sem litið var yfir síðast í myndbandinu?
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Klifur í Kjalardal 23 júl 2007 17:01 #5380

Skrifað 23 júl 2007 17:01
Það er svolítið breytileg milli ára, fer kannski eftir hvort snjói snemma að vetri og þá safnast meira í skálina. Í þessu tilfelli voru kertin kannski allt að 15-20 m. há án ábyrgðar.
En þetta er í c.a. 30 mín fjarlægð frá RVK og gangurinn að gilinu þar sem við klifrum án línu er 15 mín. Þar neðsti fossinn hæðstur svo 2 litlir stallar. Svo er nokkura mínútna gangur í botn skálarinnar þar sem kertin myndast.

Hafa ber í huga að þetta er þekkt snjóflóðasvæði, þ.e. brekkan ofan við skálina en hættan er þó minni þar sem klifrð er.

Varðandi yfirlitsmynd þá gæti það verið verkefni vetrarinns, og eitt enn hvað er F.F?

Kveðja Gunnar

svar: Klifur í Kjalardal 24 júl 2007 15:20 #5381

Skrifað 24 júl 2007 15:20


Þetta er flottur ís og verulega kúl að hann sé svona nálægt bænum.

F.F. þýðir fyrst farin eða fyrsta ferð. Við í Ísalp reynum að halda utanum hvað er klifrað af nýjum leiðum í ís, snjó og klettum á hverju ári. Hægt er að skrá nýjar leiðir hér á vefnum eða spreyja á spjallsíðunum. Bókhaldið um íslenska fjallamennsku er svo gefið út í ársritinu margrómaða (stay tuned kids!).

Það hefur viljað brenna við síðustu ár að menn segi ekki frá nýjum ísklifursvæðum og leiðum. Hvort sem um er að ræða hógværð eða nísku gildir einu, aðrir fá ekki að njóta svæðanna og enginn veit hverjir fyrst klifruðu og hvenær.

Ef þú hefur e-r upplýsingar um þetta svæði, hvenær fyrst var klifrað þar, hvaða leiðir og hverjir voru að verki, máttu gjarnan senda mér línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Allez!

Skabbi

svar: Klifur í Kjalardal 26 júl 2007 09:52 #5382

Skrifað 26 júl 2007 09:52
F.F. þýðir Farið fyrst (eða fyrst farið). Þeir sem fara leiðir fyrstir fá að gráða leiðina og gefa henni nafn.
Olli

svar: Klifur í Kjalardal 28 júl 2007 17:17 #5383

Skrifað 28 júl 2007 17:17
Úfff, var búinn a' gleyma þessu videói...takk Gunni, nú vita allir hvað eftirherman mín af Crusty er hrikalega léleg!
Freyri 'a að eiga myndir líka af F.F. okkar + Jeff Field af leið sem heitir Old Farts og er líklega M5/6 dót og er upp þennan stutta foss sem fer upp hluta af veggnum lengst til hægri af maður horfir á vegginn...fer svo í gegnum stutt þak og upp næsta foss við hliðina!
Það er svo annað svæði nokkur hundruð metrum í austur þar sem ég var að klifra þennan sama vetur, veit ekki hvort það hafi verið klifrað fyrir/eftir það.

Freyr! þú getur nú kannski grafið þessar myndir upp fyrst þú náðir Cintamani styrknum...ég næ honum næst!!!

svar: Klifur í Kjalardal 30 júl 2007 12:25 #5384

Skrifað 30 júl 2007 12:25
hahaha, vonandi ertu búinn að æfa Crusty betur.

Ég held að ég lumi á klukkutíma efni einhverstaðar (óklippt) af þessu klifri þegar Jeff Field og Dennis voru þarna með okkur.

Það sem þeim fannst magnaðast var að það kom enginn reiður bóndi á eftir okkur með haglabyssuna þegar við gengum yfir túnin.

Kveðja Gunnar....

svar: Klifur í Kjalardal 31 júl 2007 19:42 #5385

Skrifað 31 júl 2007 19:42
Hmnm...
skal grafa þessar myndir upp við tækifæri og sýna þér Friðjón... já og jafnvel ykkur hinum líka.
Fantafín leið þarna í Akrafjallinu.

Minni svo fólk á að skrá allar leiðir hér á vefnum.
Betra er seint en aldrei sagði einhver góður maður og tek ég undir þau orð.

Kv,
Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.23 sek