Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hvað er að frétta af ísklifuraðstæðum

Hvað er að frétta af ísklifuraðstæðum 23 okt 2006 09:06 #4242

Skrifað 23 okt 2006 09:06
Fór einhver að klifra um helgina???
Olli

svar: Hvað er að frétta af ísklifuraðstæðum 23 okt 2006 10:03 #4243

Skrifað 23 okt 2006 10:03
Ég var í Kerlingarfjöllum um helgina. Þar var allt pinnfrosið og lítill snjór. En þeir fossar sem voru klifranlegir virtust frekar þunnir þó ég hafi ekki skoðað þá í návígi.

svar: Hvað er að frétta af ísklifuraðstæðum 23 okt 2006 10:35 #4244

Skrifað 23 okt 2006 10:35
Við Tómas Júlíusson fórum í gagnmerkan ískönnunarleiðangur í Kistufelli í gær. Úr varð drulluklifur með stöku klettahafti þar sem "klettarottan" Tómas sýndi óvænta takta. Á efstu brún fundum við nægan ís til að kæla drykkjarföngin. Já, við erum búnir að stimpla okkur rækilega inn fyrir sísonið!

svar: Hvað er að frétta af ísklifuraðstæðum 23 okt 2006 11:48 #4245

Skrifað 23 okt 2006 11:48
Við ákváðum nokkur að gefa ísfossum á suðvesturhorninu aðeins lengri tíma til að myndast en héldum þess í stað inn að Gígjökli í upphitunarferð. Fundum prýðilegt stál og ég fullyrði að allir náðu að keyra sig út.

Stórfínt en kræst hvað Jökullinn skreppur mikið saman milli ára, hann á ekki mörg ár eftir með þessu áframhaldi.

skabbi

Gufunesbær 23 okt 2006 15:29 #4246

Skrifað 23 okt 2006 15:29
Gufunesbærinn ætti að vera tilbúinn von bráðar þ.e. pípulagningslega séð. Svo er það bara að treysta á frostið :-)

Kveðja,
Nils Gufunesbæjarvinnumaður

svar: Gufunesbær 23 okt 2006 15:40 #4247

Skrifað 23 okt 2006 15:40
Skruppum í smá bíltúr/gönguferð í kaldadal. Ég fór bara hálfaleið þar sem maður jú aulaðist til að gleyma skónum heima. Þó fann Gummi þar fína snjó rás sem hann drattaðist upp og kláraði að fara alla leið á toppinn. Það var alveg vel þunnt í Birkitrénu, alveg mögulegt að klifra það en frekar risky, þó það sé aldrei að vita að það verði tilbúið fyrir klifur ferðina næstu helgi. Frostið er greynilega, nóg en það er mjög lítið af ís þarna eins og er.

svar: Gufunesbær 24 okt 2006 08:25 #4248

Skrifað 24 okt 2006 08:25
Já, kuldinn er til lítils ef ekkert er vatnið til að frysta.
Fór enginn að skoða í Eilífsdal, Villingadal eða í Hvalfjörðinn?

Hvalfjörður 24 okt 2006 19:00 #4249

Skrifað 24 okt 2006 19:00
Ég fór í bíltúr í Hvalfjörð í dag. Þar er allt að gerast. Þilið var orðið nokkuð gott en það vantar mikið uppá að það sé klifranlegt. Oríon var að byggja sig upp og kominn ótrúlega langt á leið. Stígandi í Múlafjalli komin langt með að vera nógu þykkur. Ég sá ekki inn í Glymsgil en þar er örugglega sömu sögu að segja.

svar: Hvalfjörður 25 okt 2006 10:39 #4250

Skrifað 25 okt 2006 10:39
Við erum að renna inn í 4 daga hlýindi á morgun og síðan fer að frysta á ný á mánudag. Af vitnisburði þeirra sem hafa viðrað sig og annarra fyrirliggjandi veðurfarsgagna kann að vera fossaklifur þurfi eins og eina viku í viðbót.

svar: Hvalfjörður 26 okt 2006 09:15 #4251

Skrifað 26 okt 2006 09:15
það eru líka myndir af trénu í Þórisjökli síðan á lau. síðasta á :
php.internet.is/gummistori/lesa_frett.php?id=71
ef þið viljið sjá það

GF
kv, Gummi
www.climbing.is
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.39 sek