Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Þurrtólun í RVK

Þurrtólun í RVK 08 jún 2006 23:50 #4005

Skrifað 08 jún 2006 23:50
Hvert er best að fara til þess að þurrtóla í nágrenni Reykjavíkur?
Augljóslega er illa liðið að drytoola í Valshamri og Stardal, en er eitthvert ,,viðurkennt'' svæði eða annað heppilegt?

svar: Þurrtólun í RVK 09 jún 2006 00:35 #4006

Skrifað 09 jún 2006 00:35
Þú ættir að prófa Leirvogsgil. Það er fínt að æfa sig þar, traust berg en nokkuð erfiðar leiðir. Einhverjir boltar eru í berginu en þær gætu reynst varasamir enda nokkuð komnir til ára sinna. Hægt er að koma upp ofanvað á þægilegan hátt. Þarna fer enginn lengur til að klettaklifra svo líklega er þetta besti kosturinn í grennd við borgina.

Góða skemmtun!

AB

P.s.

Ef ske kynni að þú vitir ekki hvernig finna á svæðið þá er það í stuttu máli svona. Keyra Vesturlandsveg, beygja til hægri og keyra eftir malarvegi í austurátt meðfram suðurhlið Kistufells, Leirvogsgil er þá á hægri hönd. Eftir um 2 mínútna og 13 sekúnda akstur skal bifreið stöðvuð. Ganga niður gilið og leita að 7 m háu heillegu klettabelti.

Ekki er mögulegt að gefa nákvæmari leiðbeiningar, þessi lýsing er algjörlega fullkomin. Óje.

svar: Þurrtólun í RVK 09 jún 2006 09:42 #4007

Skrifað 09 jún 2006 09:42
Ég fór nú einhverntíma bara uppí hraunsprungurnar í Heiðmörk.

Kv
Halli

svar: Þurrtólun í RVK 09 jún 2006 17:04 #4008

Skrifað 09 jún 2006 17:04
Nú, jæja. Mér barst símtal frá einum sem er gamall í hettunni í sportinu. Hann var aldeilis ekki ánægður með að ég væri að vísa mönnum í þurrtólun í Leirvogsgil. Ástæðurnar eru þær að þar eru leiðir sem hafa sögulegt gildi og ísaxir geta skemmt bergið í þeim...

Þannig að kannski er betra að fara eitthvað annað (sá gamli sem hringdi er frekar stór og alveg pottþétt sterkur, borgar sig ekki að gera hann illan:)

AB

svar: Þurrtólun í RVK 09 jún 2006 19:17 #4009

Skrifað 09 jún 2006 19:17
Gryfjurnar í Öskjuhlíð eru ágætar fyrir dry-tool.

svar: Þurrtólun í RVK 09 jún 2006 20:24 #4010

Skrifað 09 jún 2006 20:24
tek undir með ága. Auðvelt er að koma fyrir toprope í gryfjunum, og eru ýmsar skemmtilegar drytool leiðir þar að finna.
rob

svar: Þurrtólun í RVK 09 jún 2006 20:34 #4011

Skrifað 09 jún 2006 20:34
Einhverstaðar verða vondir að vera. Límdu gripin í leirvogsgili eru einmitt frábær til að nota axirnar á. Og hvaða saga, valla nokkur maður komið þarna!

Sportklifrarar og Hnappavallalöggur verða líka að læra á málamiðlanir!

Ekki það að einhver ástæða sé til að bograst með axirnar um mitt sumar.
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Þurrtólun í RVK 10 jún 2006 10:07 #4012

Skrifað 10 jún 2006 10:07
Þurrtólun!?? Er einhver með tips um hvar maður kemst í góða þurrskíðun þessa dagana?
órh

svar: Þurrtólun í RVK 10 jún 2006 11:29 #4013

Skrifað 10 jún 2006 11:29
Forðum daga þá notuðum við fjörurnar í þorlákshöfn til að æfa þurrskíðun.

kv.
Palli

svar: Þurrtólun í RVK 10 jún 2006 15:30 #4014

Skrifað 10 jún 2006 15:30
Þurrtólun er fínt sport í svefnherberginu fyrir einmanna sálir sem eiga ekki sleipiefni

svar: Þurrtólun í RVK 10 jún 2006 18:34 #4015

Skrifað 10 jún 2006 18:34
Ég var einmitt búinn að vera veltandi mér upp úr hvað BDSM stæði fyrir,, þarna kom það;)

Big Drytooling Sex Maniac

Takk Friðjón

svar: Þurrtólun í RVK 11 jún 2006 16:41 #4016

Skrifað 11 jún 2006 16:41
"Ice climbing without ice is like making love without a woman!"

svar: Þurrtólun í RVK 11 jún 2006 18:51 #4017

Skrifað 11 jún 2006 18:51
Við Eiríkur Gísla vorum nú að klifra ís fyrir tveimur vikum fyrir vestan. Besta klifur vetrarins á Óshlíðinni. Þurr og þéttur ís og ný 4+ leið í sarpinn. Eiríkur er búinn að lofa mér því að skella myndum á vefinn en eitthvað gengur það hægt því hann er ekki nettengdur þessa stundina.


rok
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

svar: Þurrtólun í RVK 12 jún 2006 14:11 #4018

Skrifað 12 jún 2006 14:11
Leiðin heitir Sónata og var farin 21 maí og hægt er að kynna sér málið nánar á "mínum síðum"
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek