Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vatnsfestival Ìsalp

Vatnsfestival Ìsalp 18 feb 2003 16:28 #293

Skrifað 18 feb 2003 16:28
Er enginn farinn að velta þeirri óþægilegu staðreynd fyrir sér að það er enginn ís til að halda festival???
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

svar: Vatnsfestival Ìsalp 18 feb 2003 18:23 #294

Skrifað 18 feb 2003 18:23
Daginn og blessaðan góðan.

Ég er einn af þeim sem líst alls ekki á aðstæður eins og þær eru víst núna - enginn ís og bara hellingshiti og rigning. Engar fréttir eru ekki góðar fréttir.

Satt að segja lítur út fyrir að Ísfestivalinu verði frestað.

Ef einhver veit stöðu mála núna þá vinsamlegast sendið inn línu á vefinn.

Halldor formaður

svar: Vatnsfestival Ìsalp 18 feb 2003 18:26 #295

Skrifað 18 feb 2003 18:26
Það er allur ís horfinn af suðausturlandi, nema kannski úr kjæliborðinu í kaupfélaginu...Einar Öræfingur

svar: Vatnsfestival Ìsalp 19 feb 2003 00:19 #296

Skrifað 19 feb 2003 00:19
Var fyrir austan núna áðan og ég get vottað það að allur ís sé horfinn af svæðinu meira segja Sólheimajökull bráðnaði nánast undan mér á meðan ég stóð þarna...
en svo byrjaði að snjóa, ég brosti og hugsaði "jæja ég get allavegana kannski farið á skíði ???" var ekki búinn að hugsa setninguna til enda og þá byrjaði úrhellisrigning... er verið að reyna að segja mér eitthvað???

svar: Vatnsfestival Ìsalp 19 feb 2003 08:16 #297

Skrifað 19 feb 2003 08:16
Hvað segja norðanmenn, er öllu búið að rigna niður úr Kinninni, það hlýtur eiginlega að vera fyrst allur snjór er farinn úr Hlíðarfjalli... Málið er kannski bara spa meðferð í einhverjum nálægum krapapolli.

jh

svar: Vatnsfestival Ìsalp 19 feb 2003 08:29 #298

Skrifað 19 feb 2003 08:29
Já það er óhætt að segja að maður er í hálfgerðu sjokki eftir að hafa hlakkað til í allan þennan tíma og svo púffff alllt bú....
Já veðurguðirnir eru ekki í guðatölu hjá okkur núna það er víst. Stjórn Ísalp fundar í kvöld og tekur endanlega ákvörðun um þetta mál en því miður lítur það alls ekki vel út.
Olli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek