Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: aðstæður??

aðstæður?? 26 feb 2005 19:12 #2619

Skrifað 26 feb 2005 19:12
Bráð vantar upplýsingar um aðstæður fyrir næstu vikur, hefur einhver séð ís einhverstaðar?
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: aðstæður?? 27 feb 2005 18:51 #2620

Skrifað 27 feb 2005 18:51
Vorum í Eilífsdal með fjallamennskunámskeið um helgina.
Fullt af ís, Einfarinn (og Tvífarinn, ef ég skildi þá línu rétt) og mið Tjaldsúlan góðar (og "Þursinn hans Steppó) en óneitanlega óhemju bráðnun í gangi. Lítið hrunið frá því á sunnudaginn fyrir viku sýndist mér samt (nema lítið snjóflóð fallið úr Þilinu).
En ef kalt verður í veðri þá væri án efa hressandi kíkja uppeftir.

svar: aðstæður?? 02 mar 2005 17:45 #2621

Skrifað 02 mar 2005 17:45
Í Skíðadal inn af Svarfaðardal eru fínar ísaðstæður og það þarf ansi hreint mikið til að ísinn hverfi. T.d. er um 4-5 stiga hiti að degi til núna en frýs um nætur og ísinn er fagurblár hér í fjallinu fyrir ofan.

Veit ekki hvort þú hefur séð þetta en það er svolítið Múlafjallsyfirbragð á þessu. Labb upp bratta brekku og svo einnar spannar leiðir og einhverjar lengri. Örugglega líka fínt í mixað klifur eins og staðan er núna.

Nú, svo má ég til með að benda á frábæran gististað í dalnum. Hús sem heitir Möðruvellir og er fínasti skáli, kostar bara 5000 kr nóttin og örugglega gaman fyrir ís- og fjallamennskuþurfandi hópa að dvelja í. Upplýsingar eru á þessari síðu www.isafold.de/diverses/modruvellir.htm
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek