Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísklifurfestival

Ísklifurfestival 13 jan 2005 00:28 #2386

Skrifað 13 jan 2005 00:28
Mig langar að benda á frábært svæði fyrir ísklifurfestival þetta árið, sem er Berufjörður. Fínt að gista á Hótel Framtíð á Djúpavogi, fín sundlaug á staðnum og ógrynni af óklifruðum leiðum í öllum lengdum gráðum og gerðum, og allar rétt við þjóðveginn. Yfirleitt er þjóðvegurinn Reykjavík-Djúpivogur líka laus við að vera ófær vegna fannfergis.

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 08:09 #2387

Skrifað 13 jan 2005 08:09
Líst nokk vel á þessa hugmynd. Ég og Halli keyrðum þarna í sumar og var starsýnt á fjöldan allan af rennandi blautum klettum. Hægt að fara leiðir af öllum stærðum og gerðum!

Steppo

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 08:39 #2388

Skrifað 13 jan 2005 08:39
Spændende.
Svo framarlega sem þetta er viðráðanlegra en keyrslan til Ísafjarðar á þessum árstíma þá gæti bara vel verið að maður sé til í slaginn.
Var komin dagsetning á herlegheitin?

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 08:46 #2389

Skrifað 13 jan 2005 08:46
Er þetta þá sona í anda Óshlíðarinnar, klifrað 3 metra frá vegi með lýsingu frá ljósastaurum. Alvöru Roadside!! Lýst vel á. Er maður ekki annars hátt á sjöunda tíman að keyra þangað austur?

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 09:53 #2390

Skrifað 13 jan 2005 09:53
Ísfestival er og hefur alltaf verið 3. helgi í febrúar og það hefur alltaf verið reynt að hafa a.m.k. tvo staði í huga þar sem veður getur verið hagstætt á einum stað en óhagstætt á öðrum. Varðandi þennan stað þá held ég að þetta sé frábær staðsetning. Þegar ég keyrði þarna framhjá síðast þá var eina hugsun mín Ísklifur , Ísklifur!!. Það ber samt að hafa í huga að fyrir ofan þessar leiðir eru talsvert hættuleg gil og lænur sem geta bitið frá sér í formi snjóflóðs.

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 10:06 #2391

Skrifað 13 jan 2005 10:06
Ég kannast við Berufjörðinn að vetri, endalausar ísleiðir.
Megnið af þessu er 3-4 gráða en inn á milli eru vel frambærilegar leiðir. Í réttum aðstæðum er þarna ein lengst og aðgengilegasta ísleið landsins sem er norðurhliðin á Búlandstindi sem er MJÖG ÁHUGAVERÐ. Í góðu ári er einnig áhugavert að kíkja á fossana í fjarðarbotninum sem sjást af veginum yfir Öxi.
E-h leiðir eru síðan í Hamarsfirðinum.

Íbúum á raflýsingarsvæði OR eru hér með upplýstir um að þjóðvegir í dreifbýli eru að jafnaði ekki upplýstir.

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 10:26 #2392

Skrifað 13 jan 2005 10:26
Það var talað um það hér að ofan að hafa stað til vara fyrir festivalið, er eitthvað búið að spá í hvaða staður það gæti verið ?
Mig langar að forvitnast hjá fróðum klifrurum um Snæfellsnes. Það er búið að klifra m.a. í Haukadal, Mýrarhyrnu og ef til vill eitthvað fleira. Mig langaði að vita hvort eitthvað hefði verið klifrað á snæðinu í kringum Rif, Hellisand og Ólafsfjörð ? heirði af í þaðan frá bændum af svæðinu og langaði að forvitnast um þetta ?

Jósef

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 10:45 #2393

Skrifað 13 jan 2005 10:45
Það sem oft hefur verið gert er að taka staði eins og Haukadalinn, Suðaustur hornið (Skaftafell,Berufjörð etc..) og síðan er Kaldakinn. Þannig er hægt að veðja á að einhver af þessum stöðum verður í aðstæðum ef einhver ís verður á landinu eins og lítur nú mjög vel út með núna. Ég mundi vilja stinga upp á Suðausturhorninu sem fyrsta kost og Haukadalinn sem annan kost. Það er búið að klifra talsvert á Snæfellsnesinu. Það er búið að klifrað mikið af leiðum hjá Búlandshöfða milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur og fleiri staði nær Ólafsvík. Einnig er búið að klifra talsvert í Mýrarhyrnunni. Ég veit ekki til þess að það sé búið að klifra mikið á milli Grundarfjarðar og Stykkilhólms. Þessi staður var klifraður í fyrsta Ísklifurferstivalinu þegar rúmlega 40 nýjar ísleiðir litu dagsins ljós sem er sennilega heimsmet(alla vega miðað við höfðatölu he he).

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 11:52 #2394

Skrifað 13 jan 2005 11:52
Ég var fyrir austan á Reyðarfirði milli jóla og nýárs og þar er alveg fullt af ís eins og alls staðar á landinu núna.
Beint á móti bænum í Kambfjalli er fullt af massa ísleiðum.
Maður velur sér íslínu nánast í svefnpokanum.
Fjöllin þarna í kring eru hraunstölluðum og há með bröttum giljum og djúpum skálum. Lítill sem enginn snjór er fyrir austan og nánast enginn snjóflóðahætta.

Ef menn keyra á Ísafjörð af hverju þá ekki austur á firði?

Kv
Halli

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 16:58 #2395

Skrifað 13 jan 2005 16:58
Hvernig er það með ísfestivalið, er það ekki 4 dagar?

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 16:59 #2396

Skrifað 13 jan 2005 16:59
...af því að það er lengra austur á firði

Reykjavík - Egilsstaðir um suðurland= 698km
Reykjavík - Ísafjörður um Strandir og Djúp= 490km

Myndi samt kíkja austur ef farið verður þangað. Líst vel á það.
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 19:44 #2397

Skrifað 13 jan 2005 19:44
killer bílferð...gott ef maður á ekki eftir að fá soldið í rassinn :)
Ég legg til að valinn verði staður þar sem mannskarinn sé sem minnst dreifður, festival á ekki bara að vera klevur heldur líka sósial (þótt menn hittist um kvöldið er samt stemming að geta spjalað á milli leiða). Ég legg til Haukadal sem vara og austur sem markmið.
Robster the lobster

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 20:38 #2398

Skrifað 13 jan 2005 20:38
Við erum nú ekki að fara alla leið á Egilstaði. Ef Berufjörður verður fyrir valinu þá er þetta nú ekki alveg svo langt, kannski svona svipað og Ísafjörður.

svar: Ísklifurfestival 13 jan 2005 23:16 #2399

Skrifað 13 jan 2005 23:16
Reykjavík - Djúpivogur 555 km

svar: Ísklifurfestival 14 jan 2005 08:13 #2400

Skrifað 14 jan 2005 08:13
Og það þarf ekki að fara um Djúpið (sorry Rúnar).
Styð það að fara austur, kenna þessum álversfasistum að það er til fleirra en bara stóriðja.
picasaweb.google.com/ivarfinn
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek