Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Veit einhver um ísaðstæður?

Veit einhver um ísaðstæður? fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #168

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Veit einhver hvernig aðstæður eru t.d. í Múlafjalli eða Glymsgili núna???

svar: Veit einhver um ísaðstæður? fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #169

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Fullt af ís fyrir norðan, (sjá nýskráningar ísleiða) og svo er veðrið náttúrlega alltaf gott líka. Kveðjur að Norðann

Bergmann og Ísfeld
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

svar: Veit einhver um ísaðstæður? fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #170

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Það má gleyma Glymsgili núna en einu ísaðstæður sem eru í nágrenni Reykjavíkur eru sennilega í Eilífsdal. Eins og hann er rosalega skemmtilegur uppgöngu.
Olli

svar: Veit einhver um ísaðstæður? - nánari fréttir og klettaklifur líka fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #171

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Sælir.

Ég fór í dag í Glymsgil og það var akkúrat enginn ís þar, ekki einu sinni hrat á ánni. Sömu sögu er að segja úr Múlafjallinu - þar er örþunnt skæni syðst í hamrabeltinu.

Úr þessum hörmungum héldum við (ég og C.Smith jöklabani) beina leið í Valshamar og opnuðum þar formlega klettaklifurvertíðina 2003. Fínar aðstæður - kletturinn skraufaþurr og alls ekki svo kaldur. Eiginlega stórfínar aðstæður og blankalogn. Skrattans hliðin voru harðlokuð, bæði tvö, en það er hægt að fara hjáleiðina sem endar neðan við bústaðina beint fyrir neðan hamarinn.

Ég gjóaði svo aðeins augunum upp í Eilífsdal á leiðinni til baka og það var ekki mikið að sjá þar heldur.

Ísaxir til sölu - kosta eina tölu!

svar: Veit einhver um ísaðstæður? - nánari fréttir og klettaklifur líka fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #172

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Sæll aftur Halldór!
Þar sem aðstæður hér á landi (veðurfarslega) hafa verið eins og á slöku hausti þá má allt eins leiða líkum af því að það séu klifuraðstæður í Þórisjökli.

svar: Veit einhver um ísaðstæður? - nánari fréttir og klettaklifur líka fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #173

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Blessaður.

Enn og aftur hittir skrattinn ömmu sína.

Þegar jöklarnir verða horfnir líka þá geri ég alvöru úr því að selja græjurnar fyrir eina tölu og sný mér að rúsínu og plómurækt. Landsvæðið undir Bárðarbungu kemur til með að henta ágætlega - miðsvæðis og nóg af jarðhita.

svar: Veit einhver um ísaðstæður? - nánari fréttir og klettaklifur líka fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #174

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Jæja, ég er nú grænn í þessu öllu saman, því ég ætlaði að fara að læra þetta, finna kikið. En mér heyrist að ísklifur sé deyjandi grein!!!

svar: Veit einhver um ísaðstæður? - nánari fréttir og klettaklifur líka fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan #175

Skrifað fyrir 9 árum, 1 mánuði síðan
Blessaður Eiríkur.

Núna varstu heppinn. Ég var einmitt í sambandi við almættið í gærkvöldi og hef í höndunum áræðanlegar heimildir fyrir því að nú fari kólnandi. Heimildir mínar eru eftirfarandi:

1) Núna á næstu dögum fer að frysta og í vetur verða ísklifuraðstæður með allra besta móti.
2) Ný og áður óþekkt ísklifursvæði finnast á Suðurlandi í lok janúar.
3) Verð á klifurbúnaði kemur til með að lækka stórkostlega í verslunum.
4) Ísklifurfestival Alpaklúbbsins verður fjölsóttara en nokkru sinni fyrr og menn munu horfast í augu og stynja "frábært, frábært" í gríð og erg.
5) Þú tekur ákvörðun um að smella þér í ísklifur og sérð ekki eftir því.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek