Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skarðatindar

Skarðatindar 03 apr 2012 22:08 #13090

Skrifað 03 apr 2012 22:08
...í fínum aðstæðum í dag. GDáF.

Í-B-V
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

Re: Skarðatindar 03 apr 2012 22:49 #13091

Skrifað 03 apr 2012 22:49
Hvor hliðin?
kv. P

Re: Skarðatindar 04 apr 2012 08:24 #13092

Skrifað 04 apr 2012 08:24
Páll!!!

Heldur þú virkilega að Hardcore og félagar hafi bara rölt sér inn Morsárdalinn til að fara í rómantíska fjallgöngu?

Í framtíðinni væri gott að fá örlítið betur ígrundaðar spurningar.

kv.
Hardcore! Skrásett vörumerki.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Skarðatindar 04 apr 2012 08:58 #13093

Skrifað 04 apr 2012 08:58
Þetta var svo hógværð athugasemd frá Bjögga að það hvarlaði að mér smá stund að þið hefðu verið i hvöld göngu.
En það er gott að heira að gamli góði Hardcore hefur engu gleimt.
Hvorki hug eða hönd.

Til hamingju með þetta!
Stóðst þessi gamla góða leið væntingar eða fóruð þið gamla drauminn þinn?

kv.
P

Re: Skarðatindar 04 apr 2012 09:13 #13094

Skrifað 04 apr 2012 09:13
Ég fagna því að Hardcore H. Hardcoreson láti sjá sig hérna á vefnum, mætti alveg endilega vera oftar. Og að þessu sinni að bauna á sjálfan PS. Gaman að því.

Annars vona ég að BH hafi ekki tekið upp siði Hardcore í myndatökum líkt og í klifurlýsingum, sbr. hér að ofan.

Verulega töff, ég er á bömmer yfir því að sitja í sollinum meðan svona flottar leiðir eru klifnar.

Congrats.

Re: Skarðatindar 04 apr 2012 10:43 #13095

Skrifað 04 apr 2012 10:43
Best að ég svari strax að það var asnalega spurt að Hardcore væri að fara eitthvað gamalt og marg klifið.
Að sjálfsögðu féll gömul lína sem margir hafa horft á en ekki þorað.
Það þurfti alvöru jaxla til að klára þessa línu.

En og aftur til lukku félagar.
Bíð spentur eftir krassandi lýsingarorðum.

kv.
P

Re: Skarðatindar 04 apr 2012 18:00 #13096

Skrifað 04 apr 2012 18:00
ÍBV

03.04.2012. Ívar F. Finnbogason, Björgvin Hilmarsson, Viðar Helgason.
400m hækkun frá jöklinum og upp í fyrsta klifur.

1. spönn 70m, 4gr. Ís og brattar snjóbrekkur.
2. spönn 60m, snjór og auðvelt kletta brölt á móbergshrygg.
3. spönn 70m, auðveldur snjó hryggur.
4. Spönn 30m, snjóbrekka
5. spönn 50m, 4gr. Ís.
6. spönn 70m, 3gr. Ís og snjór.
7. spönn, 70m, snjóklifur.
8. spönn, 20m, 5gr, ísklifur. Leiðin sameinast upprunaleguleiðinni sem Snævarr og Jón Geirs fóru fyrstir hér.
9. spönn, 50m, snjór og léttur ís 3gr.
10. spönn, 20m, ótryggjanlegur ís, 4gr. Megintrygging léleg. Endar upp á hryggnum.

Eftir það snjóhryggur upp á topp. Af toppnum var farið eftir snjóhryggjum, brattar snjóbrekkur niðurklifraðara, eitt langt sig og svo fleiri snjóbrekkur.

Mér telst til að þetta sé í sjötta uppferðin á þessum fornfræga vegg. Þetta er þriðja tilraunin sem ég sjálfur hef gert með mismunandi félögum til að reyna að setja upp nýja leið.

Þeir sem hafa farið eru líklega:

Jón Geirsson + Snævarr Guðmunds
Palli + Hallgrímur + G.Helgi
Gummi Tómasar + Kiddi skófla
Gummi Tómasar + Styrmir + Ingó
Ívar + Gummi Spánverji
Ívar + Vidar + Bjöggi (ff. á ÍBV).

Aðrir sem hafa yfir höfuð komið á tind Skarðatinda eru líklega teljandi á fingrum beggja handa.
Bjöggi er með myndirnar okkar og svo heppilega vill til að þær eru allar á JPG formati en ekki RAW – sem þýðir að hann getur aðeins fiktað mjög takmarkað í þeim og það eru því góðar líkur á að eitthvað birtist á þessu ári.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Skarðatindar 04 apr 2012 20:39 #13097

Skrifað 04 apr 2012 20:39
Glæsilegt til lukku með þetta.
Notendur sem þakka:: Árni Alfreðsson

Re: Skarðatindar 06 apr 2012 11:00 #13102

Skrifað 06 apr 2012 11:00
Setti inn nokkrar myndir í flýti.

Bæti inn lýsingum og fleiri myndum mjög bráðlega.

Kv. B
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

Re: Skarðatindar 07 apr 2012 00:05 #13104

Skrifað 07 apr 2012 00:05
Tli lukku, virkileg flott lína. Ég sá reyndar ekki sófann hans Ívars á myndunum...ætli ég sitji ekki bara í honum núna.

Keep up the good work...

robbi

Re: Skarðatindar 08 apr 2012 17:49 #13111

Skrifað 08 apr 2012 17:49
Frábært drengir, það er gott að þessi frábæra lína fór ekki í hundskjaft.
Þá vonar maður að fá tækifæri á að endurfara þessa línu ykkar.
Efsti fossinn var svaka feitur á myndunum frá Bjögga það hefur greinilega verið mjög gaman hjá ykkur.
Sjáumst í páskafelli að ári, það er enn af nógu að taka.

Re: Skarðatindar 10 apr 2012 10:58 #13113

Skrifað 10 apr 2012 10:58
Stórglæsileg leið. Til hamingju með þetta!

Kveðja,
AB
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.44 sek