Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísaðstæður

Ísaðstæður 16 mar 2012 22:22 #13026

Skrifað 16 mar 2012 22:22
Klifruðum Dreitil í Skarðsheiði (Skarðshorni ?) í dag í fínum aðstæðum,Viðar,Ívar.
250 m af gæðaklifri,mæli með þessu :)

Re: Ísaðstæður 17 mar 2012 18:04 #13028

Skrifað 17 mar 2012 18:04
Fór í dag ásamt Arnari Emils og Grétari í norðurvegg Heiðarhorns. Við keyrðum alveg upp að veggnum án þess að hleypa úr og stytti það gönguna umtalsvert þó ekki sé meira sagt. Klifruðum lænu sem er ekki í leiðarvísi, 3 fullar 60 metra spannir upp klettabeltið vinstramegin við Jónsgil. Klifrið var um 3+, nægur ís en stökkur og harður. Kláruðum svo langa snjóbrekku upp á topp og í sólskynið. Skokkuðum á toppinn og svo niður og vorum komnir í bæinn um kaffileitið. Allir norðurveggirnir eru í svakalega góðum aðstæðum.


leid.JPG

Re: Ísaðstæður 17 mar 2012 23:30 #13030

Skrifað 17 mar 2012 23:30
Er kominn svona fínn rauður fáni þarna uppfrá? :)

Re: Ísaðstæður 18 mar 2012 12:50 #13031

Skrifað 18 mar 2012 12:50
Já við settum hann upp við hliðina á endurvarpanum sem er þarna uppi.

Re: Ísaðstæður 19 mar 2012 11:17 #13037

Skrifað 19 mar 2012 11:17
Viðar Helgason wrote:
Klifruðum Dreitil í Skarðsheiði (Skarðshorni ?) í dag í fínum aðstæðum,Viðar,Ívar.
250 m af gæðaklifri,mæli með þessu :)


Dreyri?

töffstöff, engar myndir?

Skabbi

Re: Ísaðstæður 19 mar 2012 14:17 #13039

Skrifað 19 mar 2012 14:17
Dreyri var það,rétt hjá þér Skabbi.Ívar er með myndefnið,sjáum hvað Hardcore gerir í málinu.

Re: Ísaðstæður 20 mar 2012 09:38 #13048

Skrifað 20 mar 2012 09:38
Hérna er smá video frá laugardeginum

vimeo.com/38747686

Ági

Re: Ísaðstæður 25 mar 2012 00:22 #13073

Skrifað 25 mar 2012 00:22
Svona leit Eilífsdalur út frá Valshamri í dag.

Sportklifursísonið er sömuleiðis formlega hafið...
Attachments:

Re: Ísaðstæður 12 apr 2012 21:57 #13118

Skrifað 12 apr 2012 21:57
Mánudagur 9. apríl - er einhver að pæla í þessu ennþá?

Re: Ísaðstæður 14 apr 2012 22:04 #13129

Skrifað 14 apr 2012 22:04
Skarðsheiði bauð upp á skemmtilegt Skarðsheiðarklifur í dag.

Eitthvað hefur grynnkað á ísnum en hann er langt frá því að vera horfinn.
Dreyri var sýndist t.d eitthvað slappur neðarlega en slatti af fínum ís og frosnum snjó í Jónsgili í Heiðarhorni.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Ísaðstæður 19 apr 2012 23:37 #13149

Skrifað 19 apr 2012 23:37
Við Addi og Ingvar fórum í norðurvegg Heiðarhorns í dag og voru aðstæður frábærar, aðeins austar en það sem þið fóruð um daginn, þarnar eru þrjár rennur, við fórum þá vinstri alveg uppá topp.

Endalaust fjör
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ísaðstæður 23 apr 2012 19:53 #13167

Skrifað 23 apr 2012 19:53
Ég og Rúna fórum sömu leið og Gummi og félagar, upp norðurhlíðar Heiðarhorns í gær.

Rosalega flottur dagur og toppaðstæður til klifurs.

P1040803.JPG
Notendur sem þakka:: Sveinn Friðrik Sveinsson
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.38 sek