Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Professionals at work

Professionals at work 13 jan 2012 16:46 #12678

Skrifað 13 jan 2012 16:46
Þessir gaurar eru klárlega með allt á hreinu þegar kemur að ísklifri, enda sjálftitlaðir sérfræðingar. Bera nýliðaþjálfum björgunarsveitanna fagurt vitni, öryggið uppmálað. Þessir menn væru fljótir að rigga upp kerfi til bjarga hverjum sem er upp "holum sem myndast einhverra hluta vegna á jöklinum".



Díses

Skabbi

Re: Professionals at work 13 jan 2012 17:59 #12680

Skrifað 13 jan 2012 17:59
Nei hver andsk...

Re: Professionals at work 13 jan 2012 19:27 #12681

Skrifað 13 jan 2012 19:27
jahá

Re: Professionals at work 13 jan 2012 19:41 #12682

Skrifað 13 jan 2012 19:41
Holly F**K. Þetta toppar allt, veit JackAss af þessum gaurumÐ? Ganga þeir lausir í þjóðfélaginu? Í fyrsta skipti á ferli mínum á ísalp.is er ég orðlaus - þeir sem eru eldri en tvævetur hér vita að það hlýtur að vera stórt ef ég er orðlaus!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Professionals at work 13 jan 2012 20:25 #12683

Skrifað 13 jan 2012 20:25
Með þessu ágæta vídjói stendur:

Do not try this at home! (Nema þú náttúrulega búir á jökli eða eitthvað, sem ég held að enginn sem horfir á jútjúb gerir.)
This is performed by 'professionals' under controlled circumstances. (Þið sjáið bandið.)
This is filmed on Fortress Glacier, an icefall coming out of Vatnajökull (SE-Iceland).
As you may see we found a hole in the glacier where he'd melted down for some reason. It goes down about 20 meters and it was very fun to go down to the bottom and climb back up. Also some of the wilder bunch (Bæjarar) decided to leap over it Vertical Limit style.
You can see how that worked out.
Notendur sem þakka:: Sveinn Friðrik Sveinsson

Re: Professionals at work 13 jan 2012 22:16 #12684

Skrifað 13 jan 2012 22:16
Finn hjá mér sterka þörf fyrir hönd okkar hérna á S-austur horninu að taka það fram að þessir kappar eru ekki úr okkar sveitum, hvorki björgunarsveitum né hinum eiginlegu sveitum. Þetta eru nú ljótu æfingarnar........."performed by professionals"......hehe

Re: Professionals at work 13 jan 2012 23:52 #12686

Skrifað 13 jan 2012 23:52
Ef sá sem á þetta er að lurka hérna má hann endilega taka þetta vídeó niður áður en það kemur einhver skítafrétt um SL á Pressunni eða DV.

Re: Professionals at work 14 jan 2012 01:59 #12687

Skrifað 14 jan 2012 01:59
Norðurland kannast ekki við þessa kappa.

fakk.

Re: Professionals at work 14 jan 2012 09:45 #12688

Skrifað 14 jan 2012 09:45
Andið nú með nefinu drengir! --Það er engin ástæða til þess að fara á límingunum í einhverri pólitískri rétthugsun og upphöfnum heilagleika rauðbláu slysavarnarbrókanna.
Þetta er ljómandi skemmtilegt myndband og ekki annað að sjá en þeir hafi gengið lítt haltir frá þessu. (Sennilega er þó heilsusamlegra að ger þetta án frambrodda og með hnéhlífar.)
Ég hef trú á því að fleiri ísklifrarar meiði sig í boltaleik eða úti að hjóla, frekar en þegar menn eru fullir athygli í e-h brölti. Sú var allavega raunin með þann sem sleit á sér hásinina á rennisléttu og stömu íþróttahúsgólfi í gær.....
-í boltaleik!

Re: Professionals at work 14 jan 2012 11:01 #12689

Skrifað 14 jan 2012 11:01
Kalli, eina ástæðan fyrir því að þeir koma óhaltir frá þessu eru að þeir eru fáránlega heppnir.

Þetta minnir mig á vitleysinga sem leiða grandalausa túrista upp á jökul á strigaskóm, þeir sjálfir jafnvel á lakkskóm. Oftast gerist ekki neitt en það er líka bara heppni.

.
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

Re: Professionals at work 14 jan 2012 11:18 #12690

Skrifað 14 jan 2012 11:18
Það er eiginlega maganð með þessa heppni. Hún virðist vera í ótrúlega ríku mæli hjá alls konar köppum sem eru úthrópaðir fyrir hitt og þetta af atvinnumönnum. Samt virðist sárasjaldan eitthvað koma fyrir, a.m.k. sem maður heyrir af.

Kannski voru þeir að skoða þessar myndir og ákváðu að taka þetta skrefi lengra.
Notendur sem þakka:: Guðmundur Freyr Jónsson

Re: Professionals at work 14 jan 2012 11:32 #12691

Skrifað 14 jan 2012 11:32
Ég er nokkuð sammála Kalla, en það er alveg rétt að þetta er ekki besta Pr-ið fyrir SL.

Geta ekki forsvarsmenn klúbbsins snúið þessu upp í uppbyggilega gagnrýni? Þarna eru greinilega orkumiklir strákar sem eru óhræddir við að reyna eitt og annað. Óþarfi að rakka þá niður í neitt, þannig að þeir þori ekki að láta sjá sig meira.

Nú þarf bara að shanghæja þá í klúbbinn og beina orkunni á rétta braut.

BO

P.s þetta videó er rúmlega árs gamalt, svo ég geri ráð fyrir því að e-ð vatn hafi runnið til sjávar síðan.

Re: Professionals at work 14 jan 2012 11:45 #12692

Skrifað 14 jan 2012 11:45
Kalli, í þessu tilfelli eru yfirgnæfandi líkur á því að fall (factor 2) hefði leitt krafts á eina skrúfu (að mér sýnist) sem er mjög ólíklegt að hún hefði haldið, þ.e. þegar þeir lenda báðir á henni í einu, annar kominn 10m ofan í svelginn. Þeir hefðu endað báðir í hrúgu þarna niðri og við hefðum þurft að sækja þá og það er ekki gaman.

Þetta er svo arfa-vitlaust að meira að segja non-klifrarar sjá það.

Svo í þessu tilfelli á pólitískur rétttrúnaður rétt á sér. Bendi á það máli mínu til stuðnings að Ívar er orðlaus, hvenær hefur það gerst?

Uppbyggileg gagnrýni: betra hefði verið að sleppa þessu og ef menn vilja endilega hoppa í ísvegg að gera það ekki yfir svelg?

Re: Professionals at work 14 jan 2012 11:48 #12693

Skrifað 14 jan 2012 11:48
PS - rétt samt að allir hafa gert (mjög) heimskulega hluti. Ég er klárlega ekki undantekning á því. Held samt að þetta falli mjög langt vinstra megin í normaldreifingunni.

Re: Professionals at work 14 jan 2012 12:04 #12694

Skrifað 14 jan 2012 12:04
Sveinn Friðrik Sveinsson wrote:
PS - rétt samt að allir hafa gert (mjög) heimskulega hluti. Ég er klárlega ekki undantekning á því. Held samt að þetta falli mjög langt vinstra megin í normaldreifingunni.


Það er líka stór munur á því að gera heimskulega hluti og þeigja, en að auglýsa þá.

(Gott dæmi er að byggja verslunarmiðstöð ofan á jarðskjálftasprungu og auglýsa hana með glergólfi) off-topic

Re: Professionals at work 14 jan 2012 14:10 #12696

Skrifað 14 jan 2012 14:10
Sveinn Friðrik Sveinsson wrote:
Kalli, í þessu tilfelli eru yfirgnæfandi líkur á því að fall (factor 2) hefði leitt krafts á eina skrúfu


Sissi, ég held að lesendur bíði spenntir eftir að heyra þetta með fall faktor 2"

Jafnvel þó að tryggjarinn hefði ekki hlaupið frá brúninni og hopparinn hrunið í svelginn þá næst aðeins faktor 1 !

Svo er það þetta með fagmennsku atvinnumannanna:

Fyrir margt löngu tók mikill snjóflóðagúrú að sér að halda ísklifurnámskeið fyrir klúbbinn.
Hann valdi námskeiðinu stað hlémegin í mikilli hlíð þrátt fyrir að Veðurstofan hefði verið með stormviðvaranir í 2 eða 3 daga á undan. Auðvitað lenti hópurinn í snjóflóði.

Það hefur verið sett fram lögmál sem segir að fylgni sé milli þekkingar á snjóflóðum og líkum á að lenda í flóði. Það sannaðist vel þarna.
Síðan þetta gerðist, hef ég ekki lesið staf um snjóflóð og stefni á að meðfædd gleymska tryggi mér með tíð og tíma algert þekkingarleysi á þessu sviði.....

Góðar stundir

Re: Professionals at work 14 jan 2012 15:00 #12697

Skrifað 14 jan 2012 15:00
Ignorance is bliss!

Re: Professionals at work 14 jan 2012 17:32 #12698

Skrifað 14 jan 2012 17:32
ég heyrði það nú einhversstaðar að maður ætti nú ekki að taka lífinu of alvarlega, maður slyppi hvorteðer aldrei lifandi frá því.

En það þýðir kannski ekki að manni sé algjörlega sama. Mér finnst þetta video alls ekkert hrikalegt, en það er bara ég.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Professionals at work 15 jan 2012 15:59 #12700

Skrifað 15 jan 2012 15:59
Notendur sem þakka:: Bjartur Týr Ólafsson

Re: Professionals at work 15 jan 2012 22:34 #12702

Skrifað 15 jan 2012 22:34
Jafnvel þó að tryggjarinn hefði ekki hlaupið frá brúninni og hopparinn hrunið í svelginn þá næst aðeins faktor 1 !


Vá hvað ég steig alveg sjálfur í þennan forarpytt. Ég ætla samt að reyna að snúa mig aðeins út úr honum.

Það er rétt, ef þetta væri klifrari væri hann með 10 metra úti og dytti 10 metra = factor 1. Og ég hefði í raun aldrei átt að fara nálægt þessari skilgreiningu.

En hinsvegar er þetta miklu verra fall en factor 1

1) það væri ansi ólíklegt að klifrari væri með 10 metra af slaka í megintryggingunni og dytti þaðan

2) Hann er ofar en tryggingin svo þetta er >1

3) Hann er á syngjandi siglingu, ekki kyrr

4) Það myndu tveir kallar hrynja á þessa einu skrúfu full force = mun meiri kraftur

Eigum við ekki bara að segja að við höfum báðir rangt fyrir okkur? Nei djók, þá myndi heimurinn tortímast þannig að við hljótum báðir að hafa haft rétt fyrir okkur!

Re: Professionals at work 15 jan 2012 22:44 #12703

Skrifað 15 jan 2012 22:44
Bömmer, búið að taka videoið út og maður orðinn svakalega spentur að sjá það eftir að lesa þennan þráð.

ohhhhhh.
Notendur sem þakka:: Berglind Aðalsteinsdóttir

Re: Professionals at work 16 jan 2012 15:22 #12707

Skrifað 16 jan 2012 15:22
Sá þetta myndband fyrir þónokkru og fannst þetta bara hálf hlægilegt og bara einhverjir guttar að leika sér og þótt þeir séu í Landsbjargargalla á ekkert að fara að tala þau samtök niður frekar en að Ísalp eigi einhverja gagnrýni skilið þegar ég eða aðrir gerum eitthvað misgáfulegt labbandi um með félagsskírteinið í veskinu.

annars myndi ég hafa meiri áhyggjur af því að línan slitni en að þessi ísskrúfa gefi sig í svona þéttum jökulís ;=)

Re: Professionals at work 16 jan 2012 16:22 #12709

Skrifað 16 jan 2012 16:22
Óska DGJ til hamingju með fyrstu færsluna á Ísalp. Á maður ekki að vera þægur þegar fólk póstar í fyrsta skipti?

þótt þeir séu í Landsbjargargalla


Rétt, um að gera að djamma létt flipp undir merkjum, totally.

meiri áhyggjur af því að línan slitni en að þessi ísskrúfa gefi sig


Flestir reyna að hugsa svona í ísklifri líka, góður punktur. Það er ekki breik að skrúfur gefi sig í vatnsís eða sólbökuðum jöklaís, man satt að segja ekki eftir að það hafi gerst.

Re: Professionals at work 16 jan 2012 16:27 #12710

Skrifað 16 jan 2012 16:27


Sko...

Það sem þessi gaurar voru að gera var náttúrulega yfirmáta heimskulegt, það hljóta flestir sem sáu þetta myndband og e-ð vit hafa á ísklifri og jöklamennsku að geta verið sammála um það.

Það að enginn þeirra skuli hafa slasast við þetta er náttúrulega bara tilviljun, í versta falli hefði þetta endað í stórslysi. Mér finnst alveg að það megi láta þessa drengi aðeins heyraða, vonandi átta þeir sig á því að þetta var ekki sniðugt, langt því frá.

Nú er búið að taka vídjóið út, sem bendir til þess að þeir eða e-r þeim tengdur hafi orðið var við umræðuna. Ég vona svo sannarlega að þeir hugsi ögn betur um líf og limi næst þegar þeir bregða sér á jökul.

Skabbi

Re: Professionals at work 16 jan 2012 23:17 #12712

Skrifað 16 jan 2012 23:17
Eins og Skarphéðinn bendir á er búið að taka þetta myndband út sem bendir til þess að mennirnir hafi kannski séð þessa umræðu eða aðra svipaða, og sjá vonandi þennan póst.

Þó fólk leggi mismunandi skilning á hvað er hættulegt þá er öllum ljóst sem stunda ísklifur að það sem við sjáum á þessu myndbandi býður uppá allskonar leiðir til að slasa sig illa.

En til að vera örlítið uppbyggilegur þá bendi ég þeim sem gerðu þetta myndband og öllum öðrum sem langar að læra hvernig á að stunda þetta sport af öryggi að skella sér námskeið til að læra undirstöðu atriðin. Batnandi mönnum er best að lifa og allt það.

Þeir sem gerast félagar í Isalp fá einmitt slík námskeið á frábærum kjörum.

Dagsetningar á námskeiðum fram á vor eru hér:

www.isalp.is/dagskra.html

Atli Pálsson
Formaður Isalp

Re: Professionals at work 17 jan 2012 10:03 #12718

Skrifað 17 jan 2012 10:03
Ég átta mig illa á þessari hysteríu.
Má þá búast við heilögum hneykslunarpistlum þegar myndir sjást af 10m runnout upp kerti sem eru grennri en klifrarinn?, -fordæmingu á öllu ótryggðu klifri? og hneykslun gagnvart skíðun í vafasöum og skemmtilegum brekkum sem að hluta til fara hraðar en skíðamaðurinn?
Base hopparar verða þá líklega brenndir á báli?.

Helmingurinn af myndefni BMFF fjallar um það sem upp er talið hér að ofan.
Að sjálfsögðu er fæst af þessu gáfulegt í sjálfu sér og líklega ætti að banna allt frístundaklifur sem ekki fer fram í toppróp!!

Sjálfur hefði ég talið eðlilegast að bjóða drengunum uppá Thúle og grennslast svo í rólegheitum um það hvernig þeir eru í ökklunum.

Kosturinn við þessi hopp er sá að hættan er augljós.
En hvað með ísklifrarana sem séð hafa á eftir fleiri tonnum af ís falla úr leiðinni sem þeir eru aða klifra eða ætla að klifra eða eru nýbúninr að klifra? -Voru þeir meðvitaðir um áhættuna?
Hvað með öll löngu runnátin upp hengjur fyrir ofan ísfossa? -Hvenar lendir e-h í því að hengjan brotnar þegar menn eru að brölta yfir brúnina og taka 2x20 m fall?
Öll fjallamennska yfir 7.000 m hæð er líka stórhættuleg en lítið er hneyklsast á slíku brölti sem hefur þó hvorki meiri eða minni tilgang en broddahopp með atrenu.

Ég held að þessar æfingar séu mun hættuminni en margt það sem þykir ásættanlegt í umræðunni á þessari síðu og þvi myndefni sem hér hefur farið vandlætingarlaust í gegn. (Hinn alræmdi stólaleikur hefur líka skilið eftir sig áverka)

Re: Professionals at work 17 jan 2012 10:59 #12720

Skrifað 17 jan 2012 10:59
Góðan daginn félagar

Þetta myndband var hin besta skemmtun og gaman til þess að vita að uppátækjasamir ungir menn finnst enn á þessum tímum. Frábært væri fyrir klúbbinn að fá svona hresst ungt fólk innan sinna vébanda.

Óþarfi er að hneykslast um of á framtæki þeirra, rétt er að benda á leiðir til að njóta fjallasalanna með fyllsta öryggi en síðan er það undir hverjum einum komið hvort hann kýs "fyllsta" öryggis upplifun eða eitthvað annað. Frelsið er nefnilega svo frábært og eigum að nýta það í botn. Nú á tímum fyrirhyggju frá Bankstræti "0" þá er mikilvægt að við sem trúum á frelsið (t.d. ferðafrelsi, frelsi til athafna, ...) megum ekki varpa okkar hugmyndum yfir á fjölmennið.

Við höfum öll gerst sek um heimskupör, sum tekin upp á video önnur ekki. Ég myndi persónulega ekki leika þetta eftir, en svo eru kannski einhverjir sem leika ekki mína vitleysu eftir t.d. hnýta sig úr línu þrjár spannir upp 4.gráðu í Kinninni...

"Sá yðar sem syndlaus er kastið fyrsta steininum..."

Njótum fjölbreytileikans, annars væri lífið ekki svona skemmtilegt!

Klifrið heil!
Halli

Re: Professionals at work 17 jan 2012 16:07 #12724

Skrifað 17 jan 2012 16:07
Góðann daginn félagar.

Fyrir nokkrum árum var ég á fyrirlestri hjá Barry Blanchard, sem var safety guide fyrir Vertical limit, og sagði hann að ef téð stökkatriði í myndinni hefði átt að gerast í raunveruleikanum hefði hlauparinn þurft að vera á ca. 300km hraða þegar hann fór fram af klettinum.
Ég vona að það verði nú ekki fleiri atriði leikin eftir úr þessari mynd þar sem þau eru öll fake, eins og að hoppa úr þyrlu á littla klettasyllu.

Ég varð alveg gáttaður á því sem ég sá á þessu myndskeiði frá Virkisjökli. Datt fyrst í hug að þetta væru nýir aðilar í ferðaþjónustu sem ætluðu sér í jöklagöngubransann, andaði ögn léttar þegar ég komst að því að svo var ekki.

Þegar ég hugsa til baka þá er þetta nú ekki fyrsta videoið/myndir af íslendingum að klifra, sem maður hefur hefur séð og verið gáttaður/orðlaus yfir, það sem gerir þetta video öðruvísi er að þeir sem bjuggu það til liggja betur við höggi hvað varðar gagnrýni en það sem maður hefur séð áður (fyrir utan að ganga kannski ögn lengra í vitlaeysuni en aðrir).

Það er mjög auðvelt að gagnrýna það sem sást í videoinu, og ég tel að við sem stundum þetta sport berum slyldu til þess að gera það. En stóra spurningin sem við ættum að spyrja okkur að er hvers vegna í ósköpunum ákváðu þessir piltar að gera svona 'stunt', hvað klikkaði í ferlinu?
Var það þjálfunin? (þeir hafa greinilega fengið einhverskonar þjálfun, annaðhvort hjá SL eða okkur, tel að enginn fara bara sisona á jökul með allar græur og sígur ofan í svelg) eða er það 'attitudið' í klifursamfélaginu hérna heima (bæði hjá okkur og SL)? Og svona má spyrja áfram.

Í náminu mínu í Kanada var mikið fjallað um mannlega þáttinn (human factors) í tengslum við slys og óhöpp og hvernig við tökum ákvarðanir. Það er nefnilega alltaf á endanum okkar eigin ákvarðanir sem koma okkur í klípu. Einnig var fjallað um hvaða viðhorf (attitude) væru æskileg í tenglsum við sportið.
Það er undir okkur komið, þeim sem stunda sportið, hvaða 'attitude' við viljum að íslenskt klifursamfélag sé þekkt fyrir, viljum vera þekkt fyrir kappsemi/sýndarmennsku (það sem sást á myndbandinu) eða viljum við vera þekkt fyrir yfirvegun/fagmensku?

Ef áhugi er hjá Isalp þá býðst ég til þess að hafa samand við þá kennara skólans sem hafa verið að gera rannsóknir á áhættuhegðun og ákvarðanatöku í tengslum við fjallamennsku (þetta er orðið rannsóknargrein hjá okkrum háskólum úti í heimi) og reyna að fá þá til landsins til að halda fyrirlestur fyrir okkur, hægt væri að hafa einhvað samvinnu verkafni milli Isalp og SL við þetta.

Lifið heil

Kveðja

Doddi

P.S. þó svo að ég sé ekki sérfræðingur í greinini þá tel ég hugsanlegt að ákveðin hóphegðun hafi átt sér stað (þó ég hafi ekkert fyrir því nema ágiskun) sem kallast 'risky shift' sjá hér littla útskýringu á því www.enotes.com/topic/Group_polarization. Gaman væri að fá að tala við einhverja af þessum strákum svo hægt sé að fá að vita nákvæmlega hvað var á seiði, gæti orðið gott kennsluefni.

Re: Professionals at work 17 jan 2012 16:37 #12725

Skrifað 17 jan 2012 16:37
Á einhverjum tímapunkti í mínu lífi hefði ég vafalaust tekið þátt í hópáhættuhegðun Dodda, hnýtt mig í línu þarna og látið gossa.

Sem betur fer (held ég) myndi ég ekki gera það í dag, amk ekki nema allir svölu krakkarnir gerðu það.

Re: Professionals at work 17 jan 2012 17:57 #12728

Skrifað 17 jan 2012 17:57
Ekki það að Kalli þurfi sérstakan stuðning... en mikið er gott að rödd skynseminnar heyrist hérna. Þessir strákar gera ein mistök - að pósta vídeóinu á netið. Faktor þetta eða hitt, áhættuhegðun þetta eða hitt... menn verða nú að fá að leika sér "ófaglega" án þess að fá yfir sig skæðadrífu af skömmum og skít frá "helstu" sérfræðingum landsins í fjallamennsku. Sem betur fer hefur vídeóvél sjaldnast verið með í mínum ferðum, annars væru mörg axarsköft ódauðleg.

En þið sem gerðuð vídeóið... strákar mínir, haldið bara áfram að fikta og leika ykkur en númer eitt, tvö og þrjú - haldið áfram að skemmta ykkur vel á fjöllum!

Re: Professionals at work 17 jan 2012 19:58 #12732

Skrifað 17 jan 2012 19:58
Mér datt í hug við lestur innslags Sigga að þetta spjall gengi útá að menn á þrítugsaldri hneykslist a framferði unglingannna en larfar á fimmtugsaldri væru ligeglad yfir þessu öllusaman....

Nú væri óskandi að Olli og Jón Þorgríms láti í sér heyra!
-Spurning hvort að Maggi Hall slæðist ennþá inn á vefinn?

Re: Professionals at work 17 jan 2012 21:45 #12734

Skrifað 17 jan 2012 21:45
Best að ég segi sem minnst.
Ég hef gert margt ógáfulegra um æfina en þetta.
Hef þó haft vit á því að fela sunnudags fötinn þegar það á við.

kv.
P

Re: Professionals at work 18 jan 2012 21:03 #12745

Skrifað 18 jan 2012 21:03
Ég er sammála minnihlutanum hér og segi við hina að slaka aðeins á.

Já, þeir gerðu helling af heimskulegum hlutum og já þetta hefði getað farið svakalega illa hefði "öryggiskerfið" gefið sig. En kommon - það hafa allir gert einhverja svona vitleysu.

Það er ekkert mál að benda á hvað er rangt og benda á öruggari leið - en óþarfi að jarða greyin og eiga hættu á að gera þá fjarlæga félagsskap reyndari manna.

Re: Professionals at work 19 jan 2012 00:39 #12750

Skrifað 19 jan 2012 00:39
Ég held að niðurstaðan sé nokkurnveginn svona:

Skammist ykkar strákar og lærið af því.

En alls ekki hætta, bara hugsa aðeins meira áður en þið framkvæmið. Flest allir töffararnir hér hafa gert jafn miklar vitleysur og sumir meiri (ég er að rétta upp hönd til merkis um að ég er einn af þeim).

Ef þið eruð ekki vissir um hvað þið gerðuð vitlaust skuluð þið finna einhvern reyndari sem getur útskýrt málið svo þið gerið þetta ekki aftur.

Eins og ég man myndbandið þá eru þrú áberandi mistök:
það á ekki að hlaupa á broddum
það á alls alls alls ekki að stökkva á broddum
ein ísskrúfa í tryggingu á svona stunti

have fun

kv
Jón H
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.75 sek