Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Kinnin - Að Björgum

Kinnin - Að Björgum 06 jan 2012 00:32 #12638

Skrifað 06 jan 2012 00:32
Klifruðum í Kinninni 5. janúar í frábærum aðstæðum. Endalaust mikið að ís þarna núna og endalausir möguleikar af alls konar klifri. Við höfum aldrei séð jafn mikinn ís í Kinninni og heimamenn muna vart eftir öðru eins.
Gistum eina nótt að Björgum sem var virkilega skemmtilegt. Bændurnir þar hafa verið að byggja upp ferðaþónustu í kringum ísklifrara. Fengum vægast sagt frábærar mótttökur, aðstaðan meiriháttar. Eru jafnvel að bjóða upp á að leigja jeppa eða sleða til að komast út eftir. Gistingin er á mjög sanngjörnu verði og ættu allir sem kenna sig við ísklifur að kíkja á þetta einstaka klifursvæði á heimsmælikvarða við fyrsta tækifæri!

Nokkrar myndir frá deginum hér:
arnarogberglind.smugmug.com/2012/kinnin/20907721_nh4p3M#1660494096_VWtSfjd

Þau eru líka dugleg að pósta myndum af aðstæðum:
www.facebook.com/icebjorg


kveðja,
Arnar og Berglind

Re: Kinnin - Að Björgum 07 jan 2012 18:57 #12651

Skrifað 07 jan 2012 18:57
Læk!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek