Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Jólaklifur

Jólaklifur 14 des 2011 15:40 #12492

Skrifað 14 des 2011 15:40
Jæja krakkar, jólaklifur á laugardaginn! Er komin einhver staðsetning? Múlafjall er spikfeitt og Brynjudalur líka. Stutt að keyra og svona.

Hvað segir restin?


PC131079_b.jpg

Gísli Sím í Rísanda í gær

kv. Ági

Re: Jólaklifur 14 des 2011 16:30 #12494

Skrifað 14 des 2011 16:30
Hljómar bæði vel, eigum við ekki að hittast bara á Select kl. 9 og fara þaðan í Brynjudal eða Múlafjall?

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Jólaklifur 14 des 2011 23:21 #12495

Skrifað 14 des 2011 23:21
Veðurspáin lofar góðu og jafnvel keppniskuldi.

Allir sem ætla að mæta endilega láta vita af sér hér.

I'll be there

Re: Jólaklifur 14 des 2011 23:50 #12496

Skrifað 14 des 2011 23:50
Ég mæti.

Re: Jólaklifur 14 des 2011 23:58 #12497

Skrifað 14 des 2011 23:58
Ég mæti ef ég finn mér vængmann!

Re: Jólaklifur 15 des 2011 13:26 #12500

Skrifað 15 des 2011 13:26


Er ekki þægilegast að vera búin að ákveða hvert skal halda fyrir laugardagsmorgun? Aðstæður í Múlafjalli og Brynjudal eiga ekki eftir að breytast mikið fram að helgi. Ég sé ekki að það geri ákvarðanatöku þægilegri að vera með 10-20 manns á Select í morgunsárið að reyna að koma sér saman um dagskrá dagsins. Auk þess getur fólk þá látið vita af ferðum sínum fyrirfram, eða mætt seinna ef svo ber undir.

Skabbi

Re: Jólaklifur 15 des 2011 15:18 #12504

Skrifað 15 des 2011 15:18
Setti smá könnun upp fyrir þetta hérna vinstrameginn. Veljið þar hvorn staðinn þið viljið :)

Kv.
Arnar

Re: Jólaklifur 15 des 2011 18:08 #12505

Skrifað 15 des 2011 18:08
Jón Smári Jónsson wrote:
Ég mæti ef ég finn mér vængmann!



Jólaklifrið hefur yfirleitt verið hugsað sem kjörinn vettvangur fyrir nýliða í sportinu til að láta sjá sig. Held að menn og konur geti verið ófeimin við að mæta "single".

Tek undir með Skabba, væri sniðugt að ákveða staðsetningu fyrirfram.
Reyndi að kjósa en virkaði ekki.

kv. Berglind
Notendur sem þakka:: Jón Smári Jónsson

Re: Jólaklifur 15 des 2011 21:17 #12511

Skrifað 15 des 2011 21:17
Takk fyrir þetta! Ég er ekki viss að ég komist á laugardaginn þó glaður vildi. Vonandi verður enn frost í kortunum eftir helgi.

Re: Jólaklifur 15 des 2011 23:40 #12513

Skrifað 15 des 2011 23:40
Ég mæti í múlann, Eyjafjöllin voru flott í dag.

Re: Jólaklifur 16 des 2011 09:31 #12517

Skrifað 16 des 2011 09:31
Reikna með að mæta en fer kannski í fyrra fallinu.

Re: Jólaklifur 16 des 2011 19:03 #12531

Skrifað 16 des 2011 19:03
ég ætla að mæta.

Re: Jólaklifur 16 des 2011 19:47 #12532

Skrifað 16 des 2011 19:47
ég +1 mætum

Re: Jólaklifur 16 des 2011 20:16 #12533

Skrifað 16 des 2011 20:16
Ég kem.

Re: Jólaklifur 16 des 2011 20:20 #12534

Skrifað 16 des 2011 20:20
Svo það hafi ekki farið framhjá neinum þá varð Múlafjall fyrir valinu í netkönnuninni og því verður stefnan sett þangað. Þá er stefnt austur á jökla á skíðum.

Ég virðist ætla að missa af þessu í ár þar sem veikindapest virðist hafa herjað á alla fjölskyldumeðlimina á heimilinu...

Skemmtið ykkur vel og allir skíða- brettamenn að mæta á Select klukkan 7:30 og ísklifrarar klukkan 9:00

Re: Jólaklifur 16 des 2011 22:46 #12535

Skrifað 16 des 2011 22:46
Mæti beint í Múlann.

Re: Jólaklifur 17 des 2011 01:12 #12538

Skrifað 17 des 2011 01:12
Ég, Biggi Blö og Ottó Ingi mætum á Select kl. 9

Re: Jólaklifur 17 des 2011 21:13 #12539

Skrifað 17 des 2011 21:13
Hressandi dagur í Múlafjalli í dag
Ferlega ánægð með socialpartypepparana sem hengdu upp línur í dag :)
Takk fyrir daginn.
Heiða

Re: Jólaklifur 18 des 2011 14:59 #12540

Skrifað 18 des 2011 14:59
Jólaklifur
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Jólaklifur 19 des 2011 12:26 #12543

Skrifað 19 des 2011 12:26
Hæ!

Ég þakka fyrir frábæran dag í Múlafjalli á laugardaginn. Frábært veður, góður ís og hellingur af skemmtilegu fólki. Verður ekki betra!



Nokkara fleiri myndir hér

Skabbi

Re: Jólaklifur 19 des 2011 12:40 #12544

Skrifað 19 des 2011 12:40
Stórgóður dagur; Þakka sam(úti)veruna.

kv. Jósef

Re: Jólaklifur 19 des 2011 12:55 #12545

Skrifað 19 des 2011 12:55
Sömuleiðis. Og sjitt hvað mig langar í svona litríkan galla eins og Freysi á. (Ástrík eða Steinrík)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.59 sek