Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Gufunesturninn

Gufunesturninn 09 des 2011 14:43 #12429

Skrifað 09 des 2011 14:43
Hæ!

Gufunesturninn var settur í gang í síðustu viku og var orðinn þokkalega klifurhæfur á mánudaginn. Nokkur fjöldi hefur gert sér ferð þangað í vikunni og haft gagn og gaman af. Eins og uppsetningin á honum er núna tekur ca 5 daga fyrir ísinn að verða klifranlegan, því lengri tími sem líður, því meiri ís. Einfalt, ekki satt?

Í frostinu sem hefur leikið um landið síðastliðna viku er nauðsynlegt að viðhalda rennsli í turninum svo að ekki frjósi í vatnspípunum. Turninn sjálfur er ekki upphitaður, inni í honum er bara umhverfishiti. Frost úti = frost inni.

Um miðja vikuna brá svo við að farið var að fikta í rennslinu á meðan fólk var að klifra. Það er hættulegur leikur enda er frýs hratt í leiðslunum þegar rennslið stoppar. Svo fór að lokum að það fraus í leiðslunum sem þýðir að ekkert rennsli hefur verið í turninum síðustu daga og verður ekki fyrr en hlýnar á ný. Þetta er að sjálfsögðu mjög leiðinlegt, engin frekari uppbygging verður á ísnum og sá ís sem nú er til staðar verður þurr og stökkur.

Þar sem útséð er að frost verði áfram á landinu næstu vikuna verður gerð tilraun til að koma rennslinu af stað aftur í samstarfi við Nils hjá ÍTR/Gufunesbæ. Keyptur hefur verið hitavír til að freista þess að þýða ísinn út pípunum og fá þannig rennslið af stað. Ef það tekst og rennsli kemst á aftur er nauðsynlegt að hafa eftirfarandi í hyggju varðandi turninn:

EKKI SLÖKKVA Á RENNSLINU Á MEÐAN FRYSTIR

Eins er vert að minnast á að grýlukerti myndast fyrst sem lítil strá sem vaxa með tímanum, verða stærri og sverari og geta loks borið klifrara. Þetta tekur tíma. Ef kertin eru brotin áður en þau eru nógu stór þurfa þau að byrja að vaxa frá grunni. Sýnum því tillitssemi þegar ís er ekki mikill og reynum að forðast að brjóta mikið af kertum og öðrum strúktúrum sem eru í myndun, það kemur öllum til góða.

Skabbi

Re: Gufunesturninn 12 des 2011 10:26 #12445

Skrifað 12 des 2011 10:26
Góðan daginn,

Það hefur losnað um frostið í lögninni þannig að vatnið var byrjað að bræða veginn út frá hitastigi dagsins. Ég set í gang seinnipartinn þannig þetta ætti vonandi að vera komið í aðstæður aftur síðar í vikunni.

Kv, Nils

Re: Gufunesturninn 12 des 2011 10:50 #12446

Skrifað 12 des 2011 10:50


Góður Nils!

Helduru að hitavírinn hafi skipt máli? Ég kíkti aðeins á Turninn á laugardaginn, þá var búið að setja allt upp.

Skabbi

Re: Gufunesturninn 12 des 2011 12:28 #12449

Skrifað 12 des 2011 12:28
Frábært að heyra Nils.

Er einhver leið að hafa vírinn inn í leiðslunni? Það myndi ábyggilega tryggja rennslið.

Re: Gufunesturninn 12 des 2011 13:27 #12451

Skrifað 12 des 2011 13:27
Sælir,

Vírinn á að fara inn í rörið. En ætli það verði nokkuð fyrr en næsta sumar enda þarf þá að fara í smá yfirhalningu á kerfinu.

Kv, Nils

Re: Gufunesturninn 20 des 2011 19:32 #12557

Skrifað 20 des 2011 19:32
Ég kíkti á turninn áðan. Sorglega lítið búið að massast upp frá því fyrir viku síðan þrátt fyrir nánast samfellt frost. Nánast ekkert að gerast í efri hlutanum, laus og ræfisleg grílukerti í hægri hlutanum, massaðasti ísinn lengst til vinstri út á steinvegginn þar sem úða gætir frá aðal rennslinu.
Þrátt fyrir mjög svo óvanalega langan frostakafla (allur des) er turninn ekki í topp aðstæðum.

Vangaveltur:
Of mikið rennsli? Væri hægt að græja system með úða í staðinn fyrir sturtu?
Of heitt vatn eftir að hitavírinn settur í gang? Má slökkva á vírnum þegar frostið úti ekki meira en e-ar x gráður?
Er e-r áhugi hjá stjórn ísalp fyrir því að leggja vinnu og etv. pening í það að betur um bæta kerfið?
Eru menn með hugmyndir hvernig megi bæta kerfið? Vita menn hvernig svona turnar eru settir upp og virka erlendis (reyndar yfirleitt öðruvísi aðstæður með samfelldu hörku frosti allan veturinn).

kv. Berglind

Re: Gufunesturninn 20 des 2011 20:20 #12559

Skrifað 20 des 2011 20:20
Ég leit einmitt einnig við í turninum áðan og er sama sinnis. Ég hef engar töfralausnir. Er hinsvegar tilbúinn í að hjálpa til ef e-r kemur með góða/betri uppskrift af því að safna ís.

Kveðja,
Jón Smári

Re: Gufunesturninn 20 des 2011 22:42 #12562

Skrifað 20 des 2011 22:42

Re: Gufunesturninn 21 des 2011 00:19 #12563

Skrifað 21 des 2011 00:19
Einmitt Sissi ... ísbændur ... hljómar borðleggjandi hér á landi.
Nils Óskar ísráðunautur samtakana og Jón Smári bísbóndi.

Re: Gufunesturninn 21 des 2011 17:13 #12571

Skrifað 21 des 2011 17:13
Gott að það sé áhugi fyrir turninum!

Ég er búinn að hafa áhuga fyrir að víkka aðeins notkunargildi hans þar sem þetta er innanbæjar og frábær aðstaða.

Við Addi fórum og hengdum upp nokkra plastkubba sem er hægt að nota í drytool klifur. Flott væri að fjölga þeim og hengja jafnvel upp rekaviðsdrumb í járnslá til að gera þetta meira spennandi og erfiðara. Ég á drumbinn til en vantar góða og sterka festingu fyrir hann ef einhver kann að og getur smíðað úr járni.
Hugmyndin var að setja drumbinn rétt við ísinn þannig að þegar ís er þá getur maður farið úr ísnum í drubinn líka oþh...

Varðandi íssöfnunina að þá held ég að það væri gott að kaupa svoldið meira hænsnanet og beygja það í svona "vöfflulaga" lag yfir stóra netið því það safnar helvíti vel í sig ís. Svo er það sem vantaði nú í haust þegar byrjaði að frysta að láta net ná alveg niður til að búa til undirstöðuna undir alltsaman en þau net eru alltaf tekin niður á vorin svo krakkar séu ekki að príla í þessu.

Ef menn eru til í að koma í vinnukvöld í turninum væri það frábært, það fer talsverður tími í að hengja upp festingar oþh... minnir að við höfum verið

Varðandi lyklamál þá tökum við það aðeins í umræðu á stjórnarfundi í vikunni, meira um það síðar.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Gufunesturninn 21 des 2011 17:58 #12572

Skrifað 21 des 2011 17:58
Gott mál að setja drumb og fleira íslaust dót til að leika sér í.
Vonlaust að vera alveg háð frosti og ísmyndum með turninn.

Klárlega að setja sprinklera þarna. Þessar bunur eru of vatnsmiklar og í fyrra alla vega voru stórar íslausar rásir þar sem bunaði of mikið.

Er nokkuð mál að láta hænsnanetið dingla þarna niður frá fyrsta frosti en svo rúlla því bara upp undir stóra netið þegar vorar. Þarf þá ekki að tæta það niður með tilheyrandi leiðindum.

Fyrir framtíðarþróun mætti kannski útbúa stálgálga sem skagar 1-2m út með sprinklerum og keðjum í seríu lafandi þar niður (sem safna kertum í sig). Gæti myndað skemmtilegt yfirhangandi ævintýri. Gæti samt verið praktískt að hafa þetta fyrir miðjum vegg jafnvel svo ekki þurfi að skrölta upp allan turninn heldur gera mambóið nær jörðu. Þarna gætu líka dinglað rekaviðardrumbar fyrir off-season.

PS Mig langar til Ouray... :)
PPS Til í smíðavinnu í vor/sumar við betrumbætur

Re: Gufunesturninn 22 des 2011 10:08 #12576

Skrifað 22 des 2011 10:08


Best að halda þessu til haga hér

Ísturninn í Alaska

Ætli sé ekki hægt að strengja striga yfir grindina? Heldur enn meira vatni en kjúkklinganetið...

Skabbi

Re: Gufunesturninn 03 jan 2012 23:16 #12621

Skrifað 03 jan 2012 23:16
Turninn er SPIKFEITUR, eins gott að konur og menn séu dugleg að nýta sér þessa einstöku æfingaaðstöðu sem við höfum aðgang að.

Hægt er að nálgast lykla í klifurhúsinu, skellt í top-rope, bara gaman.

Skora á stjórn að blása til samhliða-klifur-hraðakeppni, eins og var í gamla daga, fá DJ Retro til að blasta eitthvað gott eðal-hús beint frá Kúbu, skella nokkrum búrgerum á grillið, jafnvel spurning hvort við getum fengið afnot af salnum þarna við hliðina og gert eitthvað skemmtilegt. Gæti þessvegna verið á virkum degi.

Koma svo!

www.isalp.is/frettir/15-%C3%8Dsklifurkeppni%20%C3%8DSALP%202002.html

Re: Gufunesturninn 04 jan 2012 12:32 #12622

Skrifað 04 jan 2012 12:32
Það er rétt að lykill er kominn í klifurhúsið fyrir ísalpfélaga og má endilega nota. Passa bara að skila lyklinum strax svo næsti geti farið. Athugið að á dagvinnutíma þarf ekki lykil því hægt er að fá starfsfólkið í Gufunesi til að hleypa sér inn!

Einnig er flott ef menn eru spenntir fyrir að vinna með málefni turnsins við að laga netið, setja upp sprinklera, setja upp nýjar dry-tool leiðir, hengja upp drumbinn oþh. að láta vita. Þá setjum við upp vinnuhóp sem fer í málið.
Frábært væri t.d. ef einhver kann járnsmíði að búa til góða upphengju fyrir drumbinn.

Þetta er flott áskorun hjá þér Sissi, ég ætlaði að halda skyndi-ísalpkvöld þarna fyrir jólaklifrið en þá hafði frosið í lögnum helgina áður og ísinn var að slappast mikið og því hætti ég við það þá. En við skoðum málið.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Gufunesturninn 04 jan 2012 19:34 #12629

Skrifað 04 jan 2012 19:34
Snilldar hugmynd Sissi, þetta væri hrikalega gaman.

Spáin er ekki spes allra næstu daga og um helgina en svo á að frysta aftur.

Hvað segir fólk um að við blásum til klúbbkvölds í Gufunesi í næstu eða þar næstu viku, eftir hvernig veðrið þróast. Þá myndum við kannski hafa 2-3 daga fyrirvara á því...

Er þaggi?

Re: Gufunesturninn 05 jan 2012 10:09 #12631

Skrifað 05 jan 2012 10:09
Fór í turninn í gær í fyrsta skipti. Aðstaðan, fyrirkomulagið og aðstæðurnar eru algjörlega til fyrirmyndar. Við vorum líklega þriðji hópurinn þetta kvöldið.

Re: Gufunesturninn 09 jan 2012 16:08 #12659

Skrifað 09 jan 2012 16:08
Turninn er nú orðinn frekar rýr eftir ágang hlákunnar og því best að friða hann í nokkra daga meðan frostið sér um að byggja hann upp á ný.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Gufunesturninn 09 jan 2012 21:40 #12660

Skrifað 09 jan 2012 21:40
Ég slökkti á turninum fyrir hláku. Verð ekki á svæðinu í vikunni þannig hann verður ekki settur í gang af mér þ.e. þegar frystir aftur.

Kveðjur,
Nils

Re: Gufunesturninn 09 jan 2012 22:51 #12661

Skrifað 09 jan 2012 22:51
Snilld að slökkva á turninum fyrir hláku Nils, við vorum einmitt að ræða þetta áðan félagarnir. Takk fyrir það.

Frábært hvað er verið að sinna þessu vel, er búinn að nýta mér þetta nokkrum sinnum í vetur. Snilldaraðstaða í alla staði.

Sissi

Re: Gufunesturninn 10 jan 2012 13:38 #12662

Skrifað 10 jan 2012 13:38
Gummi ef þig vantar aðstoð við að hanna og smíða upphengi fyrir drumbinn þá ætti ég kannski að geta hjálpað ykkur. Ég vinn jú í Marel, er verkfræðingur og get bjargað mér í suðumálunum. Hugsa líka að það henti fínt að fá þetta í ryðfríu.
Ég þarf líka að vera virkari í klúbbnum og reyna að leggja meira af mörkum. Ég fæ kannski einhver góð byrjenda-tips í ísklifrinu í staðinn ;)
Þú hefur bara samband Gummi og við reynum að mokka eitthvað upp. Veist hvernig þú getur náð í mig.

Re: Gufunesturninn 10 jan 2012 19:49 #12664

Skrifað 10 jan 2012 19:49
Kveldið,

Í sambandi við drumb og aðra útfærslu á ísklifurleiðinni þá þyrftum við að hittast og funda um þau atriði áður en farið er af stað í smíðavinnu og aðra undirbúningsvinnu. Stjórnin má endilega vera í bandi við okkur þannig við getum fundið okkur tíma.

Kveðjur,
Nils
Notendur sem þakka:: Freyr Ingi Björnsson

Re: Gufunesturninn 14 ágú 2012 10:31 #13336

Skrifað 14 ágú 2012 10:31
Jæja kappar, nú er tíminn til að pæla í klifurturninum ef menn vilja gera endurbætur. Veit ekki með drumba og pælingar en það væri amk frábært að pæla í að besta vatnsleiðslurnar eitthvað, skella kannski stútum á þetta, og einnig að laga kjúklinganetið.

Þá ættum við að fá jafnara og breiðara ísþil.

Re: Gufunesturninn 14 ágú 2012 14:32 #13337

Skrifað 14 ágú 2012 14:32
Heil og sæl,

Líst vel á þetta!
Ég er uppfrá virka daga frá 8-16. Það er miklu skemmtilegra að græja þetta í sæmilegu veðri og birtu.

Bestu kveðjur,
Nils

Re: Gufunesturninn 10 sep 2012 20:41 #13409

Skrifað 10 sep 2012 20:41
Styttist í meira myrkur og kulda. Er ekki málið að skipuleggja vinnudaga/kvöld og koma turninum í lag fyrir veturinn ef ske kynni að yrði frostavetur.

kv. Berglind
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.77 sek