Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísaðstæður 2011-2012

Ísaðstæður 2011-2012 28 nóv 2011 23:12 #12362

Skrifað 28 nóv 2011 23:12
Elífsdalur 28.nóvmber

Mjööög mikill snjór, mæta með skíði. Snjór fór upp að öxlum í efrihluta brekkunnar og það á hryggnum undir Tjaldsúlunum. Gott er að leggja við bæinn Eilífsdal, ganga að hænsnaskúrnum, yfir brúnna og elta svo rafmagnsgirðinguna inneftir í botn. Þannig sleppur maður við ógrynni af skurðum og girðingum á leiðinni.

IMG_2109.jpg


Tjaldsúlurnar - Miðsúlan
Ísinn var blautur, mikið kertaður og virtist myndast tómarúm á bakvið ísinn inn að klett. Mikið af tjöldum, onion-layer klaka, snúið að tryggja á köflum. Lítill sem enginn ís á slabbinu á toppnum undir Tjaldinu, bara snjóföl, ekkert að tryggja né höggva í. Think out side of the box klifur.

IMG_2115.jpg


Einfarinn
Leit vel út, neðsta haftið virtist massíft og greinilega hægt að klifra upp á brún. Ekki svo stórar hengjur á toppnum.

Þilið
1. spönnin leit afar þunn úr fjarska, mætti bæta eitthvað í miðhaftið en klifranlegt þó.Geri ráð fyrir að það sé í stífari kantinum núna. Ætti að verða fjandi gott um helgina.

Robbi
Attachments:

Múlafjall og Spori 30.nóvember 30 nóv 2011 20:00 #12371

Skrifað 30 nóv 2011 20:00
Samkvæmt heimildum þá er Spori í Kjós í aðstæðum. Mér skilst að það hafi verið eitthvað lítið um ís upp á brún og var búið til akkeri í eitthvað mosa drasl með öxum.

Múlafjall lítur vel út á myndinni...

spori.jpg

Spori
mulafjall.jpg

Múlafjall

Muna svo að deila upplýsingum. Maður gerir ekki neitt fyrir neinn, sem að gerir ekki neitt fyrir neinn.

Kv.Robbi

Re: Múlafjall og Spori 30.nóvember 30 nóv 2011 22:02 #12373

Skrifað 30 nóv 2011 22:02
Góður,

Ég er búinn að keyra suðurlandið og er kominn á Djúpavog, Það er frekar þunnur ís allsstaðar og helst hérna austur í Hamarsfirði sem ég sá eitthvað brúklegt en þó þunnt.
Eyjafjöllin voru bara þunn skán í fyrradag þegar ég keyrði þar framhjá.

Keyri Berufjörð á morgun og inná Fáskrúðsfjörð allavega, ef einhver er forvitinn

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Múlafjall og Spori 30.nóvember 01 des 2011 20:01 #12380

Skrifað 01 des 2011 20:01
Ég, Helgi og Rúna klifruðum Ýring í dag í frekar þunnum aðstæðum mikið af frauði og ennþá meira af snjó og á köflum tortryggður. Seinasta spönnin var mjög kertuð en svosem allveg slatti af ís þar, mun meira en neðar í leiðinni, klifruðum hana samt ekki.

Annars er Brynjudalurinn allur að detta inn en þarf kannski nokkra daga en til að verða góður. Okkur sýndist Óríon vera byrjaður að myndast en sáum ekki hversu mikið. Renndum svo út að Múlafjalli, þar var eitthvað af ís en þarf líklega meiri tíma.
Attachments:

Re: Ísaðstæður 2011-2012 01 des 2011 22:30 #12383

Skrifað 01 des 2011 22:30
Korputorg í aðstæðum!
Ekkert jafnast á við ísklifur á bílastæði í úthverfi borgarinnar.
Frábært æfingasvæði.
Munið eftir gettóblasternum.

Kveðja.

Re: Ísaðstæður 2011-2012 02 des 2011 14:41 #12393

Skrifað 02 des 2011 14:41
En turninn í Grafarvogi?

Re: Ísaðstæður 2011-2012 02 des 2011 16:07 #12395

Skrifað 02 des 2011 16:07
En turninn í Grafarvogi?


Hann var settur í gang í vikunni, veit ekki hver staðan er á honum núna.

Re: Ísaðstæður 2011-2012 02 des 2011 17:41 #12396

Skrifað 02 des 2011 17:41
Skillst að hann nái ekki niður og sé ekki í aðstæðum.

Re: Ísaðstæður 2011-2012 02 des 2011 19:05 #12397

Skrifað 02 des 2011 19:05
Klifraði Hrynjanda í gær og hann er í aðstæðum líkt og Spori. Samt töluvert ennþá af rennandi vatni á bakvið ísskelina.

Við James reyndum að fara í Villingadal í dag. Vegurinn yfir Geldingadraga er ófær og fengum við að kenna á því en við pikkfestum bílinn og honum varð ekki haggað fyrr en hjálp mætti á svæðið. Vegagerðin ætlar ekki að moka veginn fyrr en á sunnudag í fyrsta lagi.

Eftir fýluferð á Dragann fórum við inn í Brynjudal og kíktum inn í Flugugil. Þar var allt fullt af snjó en minna af ís.
Það hefur aðeins bætt í ísinn í Múlafjalli síðan að Robbi setti inn mynd þó enn séu flestar leiðir frekar þunnar.

Kv. Ági

Re: Ísaðstæður 2011-2012 03 des 2011 13:26 #12399

Skrifað 03 des 2011 13:26
Þrándarstaðir í Brynjudal fimmtudaginn 1.des.

Allt að gerast, en ekki tilbúið til klifurs.

Múlafjall og Brynjudalur 03 des 2011 20:33 #12400

Skrifað 03 des 2011 20:33
Múlafjall 3.des
Klifraði Stíganda í dag. Leiðin var í glimrandi aðstæðum og fullt af ís, mæli með þessu.
Íste nær ekki niður en mjög stutt í það. Aðrar leiðir litu vel út, hægra megin við Íste voru léttu leiðirnar orðnar fínar. Nóg af ís í fjallinu inn dalinn.

Brynjudalur (séð og heyrt)
Léttari leiðirnar innst í dalnum norðanmegin (vinstri þegar keyrt er inn dalinn) eru komnar í aðstæður.

Brynjudalur:
brynjudalur_yfirlit.jpg

Brynjudalur1:
brynjudalur1.jpg

Múlafjall (íste er hægramegin við miðju)
mulafjall1.jpg

Múlafjall lengra til vinstri frá fyrri mynd
mulafjall2.jpg

Rísandi
Risandi.jpg

Stígandi
Stigandi.jpg


Kv.
Robbi

Re: Múlafjall og Brynjudalur 04 des 2011 00:02 #12403

Skrifað 04 des 2011 00:02
Ég og Davíð kíktum í Kjósina í dag og klifum Áslák. Hann er nú ekki í príma aðstæðum en vel klifranlegur þó. Mæli ekki með að fara rennuna vinstra megin í honum þar sem það er bara ísskel sem er með enga festingu við steininn. Frekar að byrja aðeins þar og fara svo snemma til hægri upp lóðrétt haft uppá síðuna og þar svo upp.

Kv.
Arnar
Notendur sem þakka:: Leifur Örn Svavarsson

Re: Múlafjall og Brynjudalur 04 des 2011 19:54 #12406

Skrifað 04 des 2011 19:54
Við Addi skruppum í Glymsgil í dag, vantar svoldið uppá spönnina oþh. leiðir en Krókur var í fínum aðstæðum og stukkum við í hana. Hittum líka fólk sem fór í Múlafjall, skilst að það hafi verið ansi gott.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Múlafjall og Brynjudalur 04 des 2011 22:37 #12408

Skrifað 04 des 2011 22:37
Ágætis ís í Múlafjalli/Leikfangalandi = góður staður fyrir partyhald. Mættum sex flubbar, Ég Védís, Maggi, Haukur, Guðni og Guðjón

Minni fólk á boltana í spora. http://www.isalp.is/forum/7-is-og-alpaklifur-/10608-fyrsta-isklifur-vetrarins.html Freyri Ingi: "Leiðin skartar því tveimur boltum núna" einum efst og öðrum á millistallinum.
Notendur sem þakka:: Andri Bjarnason

Re: Múlafjall og Brynjudalur 04 des 2011 22:47 #12409

Skrifað 04 des 2011 22:47
4. desember. Grafarfoss í fínum aðstæðum.

kveðja,
Arnar
Notendur sem þakka:: Andri Bjarnason, Róbert Halldórsson

Re: Múlafjall og Brynjudalur 05 des 2011 18:33 #12414

Skrifað 05 des 2011 18:33
Klifraði Grafarfoss í dag. Fínar aðstæður þó ísinn í Orginalnum hafi verið frekar loftkenndur og smá bras að gera góðan stans eftir fyrstu spönn.

Kíkti líka á turninn í Gufunesi. Það er eins og það sé ekkert rennsli hægra megin miðað við hversu þykkur hann er orðinn vinstra meginn.

Allt að gerast!


PC051027_w.jpg




Ági
Attachments:
Notendur sem þakka:: Andri Bjarnason, Róbert Halldórsson

Re: Múlafjall og Brynjudalur 05 des 2011 22:32 #12418

Skrifað 05 des 2011 22:32
Klifraði í turninum áðan með Skabba og Hrönn, Jón Smári og Karvel félagi hans voru þar fyrir. Turninn er orðinn fínn vinstra megin en má bunkast aðeins betur hægra megin. Skabbi færði rörið aðeins til að reyna að bæta það og við klifruðum síðasta gó í sturtu.

Gaman!
Notendur sem þakka:: Andri Bjarnason, Jón Smári Jónsson

Re: Múlafjall og Brynjudalur 06 des 2011 23:23 #12422

Skrifað 06 des 2011 23:23
Það eru fullt af fossum hér á Austurlandi í aðstæðum, fór frá Egilsstöðum og á Djúpavog í dag, það er hálf sárt að sjá allar þessar óförnu leiðir og maður er bara að vinna og getur ekkert klifrað...

-Reyðarfjörður, fullt af ís
-Múlarnir milli Fásk, Stöð og Breiðdals eru flottir
-Berufjörðurinn er flottur þar sem er rennandi vatn

Búlandstindur þarf greinilega meiri snjó svipað og Skessuhornið til að mynda góðar ísleiðir og er hálfgerð skán núna.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Múlafjall og Brynjudalur 10 des 2011 13:50 #12433

Skrifað 10 des 2011 13:50
Kirkjubæjarklaustur og nágrenni, 7.-9. desember.

Mikill ís og flestar leiðir komnar í mjög góðar aðstæður.

Myndir koma fljótlega.

Ági

Re: Múlafjall og Brynjudalur 10 des 2011 17:37 #12434

Skrifað 10 des 2011 17:37


Við Gulli vorum að koma úr Múlafjalli. Þar er talsverður ís, Rjúkandi og Stígandi í mjög góðum aðstæðum, sem og leiðirnar í Leikfangalandi. Leiðir í kringum Íste virðast vera þynnri en margar leiðir austar með hlíðinni litu vel út úr fjarlægð.

Í Brynjudal kíktum við á Ýring sem er spikfeitur. Oríun er að verða vel bunkaður en hengjan fyrir ofan er stór og fer stækkandi.

Allt að gerast

Skabbi

Re: Múlafjall og Brynjudalur 11 des 2011 18:54 #12435

Skrifað 11 des 2011 18:54
Við Sædís kíktum í Þrándarstaðahvílftina í gær og Múlafjall í dag.
Þrándarstaðafossar þurfa aðeins meiri tíma, aðalfossinn er enþá vel blautur.

Eyjafjöll 11. des 2011 11 des 2011 19:11 #12436

Skrifað 11 des 2011 19:11
Fór í Eyjafjöllin í dag ásamt Kjartani Jóns, hinni barnungu grjótstjörnu.

Smelltum okkur í Skoruna í Paradísarheimt (telst þetta ekki annars afbrigði af "heimtinni"?).
Hlákan í gær breyttist í frost í nótt svo aðstæður voru ágætlega traustar. Einn smá hnulli sem skaust niður leiðina meðan við vorum að preppa okkur en síðan ei meir. Töluvert hrun úr stóra fossinum eins og alltaf en það var fjarri okkur.
Leiðin var í frábærum aðstæðum og enduðum við uppi á brún og löbbuðum niður. Svolítið kertað og massablautt eins og alltaf á þessu svæði en þeim mun tæknilegra og skemmtilegra. Stórskemmtilegar myndanir í skorunni sjálfri og ísinn víðast traustur. Flestar skrúfurnar voru góðar því milli kertabunkanna voru samfelldari bunkar svo þetta var bara gjött.
Smá maus að komast upp á brún. Enduðum á 30m hliðrun til hægri og upp nokkurra metra mixhaft. Hefði kannski verið léttara að síga bara en það er bara ekki eins gaman... :)
Fórum þetta sem tvær langar 60m+ spannir upp skoruna og svo var lokaspönnin 10-15m létt ísbrölt hliðrunin og lokamauvið, samtals fullir 60m (130m ísklifur s.s.). Góður stans tæplega miðja leið upp í litlum helli.
Erfiðleikinn í þessum aðstæðum líklega um WI4+, en nokkuð "trikkí" ef svo má að orði komast.

Dreitill (WI5) í svipuðum aðstæðum og Skoran og vel klifranlegur. Bjarta hliðin (WI6) öll að koma til en mjótt kerti í miðjunni og þunnt í toppinn. Ef frostið helst verður þetta og fleira í blússandi um næstu helgi.

Fyrir þá sem ekki þekkja til þá eru Eyjafjöllin með því magnaðasta sem er í boði hér á landi en eru sjaldan í aðstæðum. Það þarf langan harðan frostakafla og það þarf að gerast snemma vetrar áður en sólin fer að hækka á lofti.
Suma vetur hefur svæðið alls ekki gefið færi á sér svo það er um að gera að drífa sig sem fyrst áður en það verður um seinan...

Nokkrar aðstæðu- og aksjónmyndir á picasaweb.google.com/113225176019452545492/Eyjafjoll11Des2011

Grafarfoss 11 des. 11 des 2011 19:48 #12437

Skrifað 11 des 2011 19:48
Ég, Biggi og Arnar fórum í Grafarfoss í dag. Fórum upp lengst til hægri (orginalin held ég að það heiti). Skiptist á að vera ágætis ís og einhverskonar ís/sykursnjó skel og innan við bara bunandi fossinn. Erfitt að tryggja þar sem þessi skel var en ísinn virtist vera betri eftir því sem maður fór lengra til vinstri.

Þarna voru líka einhverjar gamlar kempur sem voru að halda upp á 25 ára afmæli frá því að þeir klifruðu Grafarfoss í fyrsta skipti. Kann nú ekki að fara með nöfnin á þeim en þeir sögðu að þeir hefðu sjaldan farið þarna í jafn miklum ís. Fylgdi reyndar ekki sögunni hvernig aðstæðum þeir hafa farið í fossinn hingað til.

síðan tókum við eitt rennsli í top rope fyrir miðjum fossinum (veit ekki hvort sú leið heitir eitthvað), þar var ísinn miklu betri en líka lóðréttara klifur og erfiðara.

Re: Grafarfoss 11 des. 12 des 2011 00:15 #12441

Skrifað 12 des 2011 00:15
Bendi á ágætis lýsingu á ýmsum Grafarfoss-afbrigðum í grein um klassískar ísleiðir í ársriti 2008-2009. Þökkum PSveins fyrir það.

Re: Grafarfoss 11 des. 12 des 2011 00:35 #12442

Skrifað 12 des 2011 00:35
Fór með Bjarnasyni í Nálaraugað, spikfeitar aðstæður. Bræðurnir Styrmir og Jón Haukur voru nýlagðir af stað þegar við mættum á svæðið, sjálfsagt ekki gerst oft áður að það sé biðröð í Nálaraugað.

Í Tvíburagili er mikill ís og í 55° sýndist mér líka.

Gaman líka að Kjarri sé farinn að daðra við ísklifrið.

Re: Grafarfoss 11 des. 12 des 2011 09:24 #12443

Skrifað 12 des 2011 09:24
Ég, Gummi, Óðinn og Ingvar kíktum í Grafarfossinn á laugadaginn sem er vinnsæll núna og fórum aðeins vinstrameginn við orginalinn. Tvö önnur teymi komu svo þarna seinna meir. Áhugaverðast var það hinsvegar að það var allt út atað í blóð í orginalinum, gaman væri að heyra hvað fór framm þar :)

Kv.
Arnar

Re: Grafarfoss 11 des. 12 des 2011 09:45 #12444

Skrifað 12 des 2011 09:45
Held að vörin á Stymma eigi heiðurinn af því, ekkert alvarlegt. Þeir geta kannski sagt betur frá því.

Re: Grafarfoss 11 des. 12 des 2011 21:15 #12464

Skrifað 12 des 2011 21:15
Annar þessara jaxla sem klifruð líka Grafarfossinn á sunnudaginn var Einar Stefánsson Everestfari. Einar tryggði félaga sinn upp í sæti bak við stórann stein. Þegar ég spurði út í þessa aðferð sagði hann "ég fer ekki í gegnum þessa steina".

Okkur tókst ekki að finna nýja sigakkerið en sennilega liggur það undir ís.
Notendur sem þakka:: Valgeir Ægir Ingólfsson

Re: Grafarfoss 11 des. 16 des 2011 10:51 #12519

Skrifað 16 des 2011 10:51
Snjóflóðaaðstæður á SV-landi

Við Skabbi fórum í hausljósaklifur í Vallárgil á Kjalarnesi í gærkvöldi. Fjöll á SV-landi eru orðin frekar snjólétt að sjá eftir töluverðan vind og litla úrkomu upp á síðkastið.

Þegar við vorum að koma nálægt skálinni sjálfri undir leiðinni breyttist færið úr hörðum vindpökkuðum snjó yfir í smá fleka ofan á því undirlagi og brotnaði svolítið í fótsporunum okkar.

Við tókum lítinn prófíl með öxunum og sáum strax að þetta var engan veginn í lagi. Fundum 2 veik lög með sykursnjó, grjótharða skriðfleti og þétta fleka ofan á því. Þar sem snjórinn hafði safnast hressilega þarna inni í skálinni og ekki var í boði að komast örugga leið að ísnum ákváðum við að klifra frekar seinna en að lenda í rugli og héldum heim.



Vil hvetja fólk, sérstaklega nýgræðingana, til að snúa við eða fara á annað svæði ef aðstæður eru slæmar, það er engin skömm að því. Held að alltof margir, þar á meðal við Skarphéðinn, séum með óhagstætt hlutfall af því að snúa við / lenda næstum í rugli. Þetta ætti náttúrulega að vera öfugt (snúa oftar við en lenda í rugli).

Hér eru myndir:

Passið ykkur um helgina á skálum / snjósöfnunarsvæðum.

Sissi

Re: Grafarfoss 11 des. 16 des 2011 11:16 #12520

Skrifað 16 des 2011 11:16
Freysi og Stymmi fóru Skoruna í Paradísarheimt í gær.

Gott mót og sérelga skemmtilegur karakter af ísfossi að vera.
Frzmar í þessum þræði lýsir Siggi T. aðstæðum nokkuð vel og í raun er þar engu við að bæta að sinni nema hvað að við mælum með göngu niður... ekki sigi.

Við tókum semsagt "Skabba" á þetta í gær, allt pikkfrosið og fast, klifur upp á brún laga, til, síga niður aftur. festa línur aftur í kertadrasli, brjóta kertið losa línurnar aftur og síga niður á fast land.


Viðar og Guðjón Snær eru víst á þessum slóðum í dag.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
Notendur sem þakka:: Andri Bjarnason

Re: Grafarfoss 11 des. 16 des 2011 11:24 #12521

Skrifað 16 des 2011 11:24
[quote="Freyr Ingi Björnsson" post=12520

Við tókum semsagt "Skabba" á þetta í gær, allt pikkfrosið og fast, klifur upp á brún laga, til, síga niður aftur. festa línur aftur í kertadrasli, brjóta kertið losa línurnar aftur og síga niður á fast land.

[/quote]

Skabbi ekki illa meint á neinn hátt, bara tilviljun að þú hafir verið með greinargerð um nkl sömu mistök og við gerðum í gær.

Ég vona að greinargerðin um línuvesenið ykkar í Óríon verði til að fleiri svona reynslusögur dúkki hér upp á spjallinu því ég veit að fjölmargir hagnast á svona skrifum.
Hvort sem það er lærdómur eða upprifjun fyrir fólk þá er þetta bara sniðugt.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Sólheimajökull 15.des 16 des 2011 14:52 #12526

Skrifað 16 des 2011 14:52
Já hver hefði trúað því að einhver mydni fara að klifra í Sólheimajökli þegar allt er í bullandi aðstæðum þessa dagana.
Við Siggi og Palli fórum í mega skíðagöngumissjon að leita af ís lengst upp á Sólheimajökli. Þar er að finna ís í klettunum um 5-6km upp frá sporðinum og hægt að gera fullt af flottu stöffi.
Sá í haust eina svakalega línu þarna uppi en því miður var hún ekki í aðstæðum núna.
Klifruðum eina nýja leið í klettunum vestanmegin þar sem jökullin tekur beygju í skarðinu þar sem hann þrengist.

Fyrir áhugasama er ferðasaga og myndir á www.roberthalldorsson.com


Kv.robbi

Re: Sólheimajökull 15.des 20 des 2011 01:20 #12551

Skrifað 20 des 2011 01:20
Við Jonni fórum í Tröllafossinn í dag. Hann er nánast alveg frosinn nema hvað að vinstra megin í honum sprautast út um stórt gat. Gilið er pakkað af snjó og sáum að það hafði verið eitthvað á hreyfingu þannig við sigum niður fossinn sjálfann og tókum nokkrar ferðir hvor í toprope.


Trllafoss19.12.11-12.jpg


Fossinn er ekki nema um 10-15m og klifrið mjög þægilegt. Ef menn eru vel jeppaðir er hægt að keyra alla leið inn að fossinum en ég mæli þá amk með því að hafa skóflu í bílnum. Við gengum frá veginum sem liggur inn að Hrafnhólum, u.þ.b. 2km rölt.

Re: Sólheimajökull 15.des 22 des 2011 19:48 #12579

Skrifað 22 des 2011 19:48
Er einhver búinn að fara nýlega upp í Glymsgil.
Maður hefði haldið að þar væri allt í glymrandi aðstæðum og ána jafnvel búið að leggja...

Re: Sólheimajökull 15.des 23 des 2011 00:57 #12580

Skrifað 23 des 2011 00:57
Það kæmi ekki á óvart, en við Addi fórum í Glymsgilið aðra helgina eftir að byrjaði að frysta og þá var byrjað að leggja þó hún var ekki klár þá.

Annars fór ég með Óðni í Brynjudal í dag og við klifum þrjár leiðir í Þrándarstaðafossum í geggjuðum rjóma-jólaís

mbkv,
-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Sólheimajökull 15.des 26 des 2011 21:01 #12584

Skrifað 26 des 2011 21:01
Gleðileg jól klifrara

Ég fann þessa mynd úr ferð Toppfara 6. nóvember 2010. Mér sýnist hún vera tekin í Hvalskarði, norðan megin undir Norðursúlu. Veit ekki til þess að hann hafi verið klifinn. Eða hvað?

Slufoss.jpg

Glymsgil annan í jólum 26 des 2011 22:06 #12585

Skrifað 26 des 2011 22:06
Fór ásamt Berglindi og Sædísi í Glymsgil í dag.
Þæfingsfærð í Hvalfirðinum og sóttist ferðin seint. Snjórinn óþarflega mikill handan bílastæðisins og tók þrammið sinn tíma.
Vorum illa að okkur í aðkomunni þarna svo við villtumst aðeins en hafðist að lokum. Áin var hálffrosin eða rúmlega það - víða lokuð en stórar opnanir á köflum svo við skriðum yfir sumar snjóbrýrnar til öryggis. Komumst inn að Hval 1 að lokum og sáum glitta í Hval 2 og 3 og Glym sjálfan. Lögðum ekki í að fara lengra en nefið handan við Hval 1 því snjóbrúin þar var heldur mjó og við vissum ekkert hvað var þarna undir.
Skelltum okkur því bara í Hval 1 og var það gríðarleg snilld. Lítið af ís í fyrra spönn en klifrið temmilega þægilegt. Efri spönnin WI5- ca. með 55m af sknilldar fítusklifri. Fórum svo Þorsta til að toppa upp á brún og það var líka mikil snilld. Lentum í myrkri eftir leiðsluna og læti - rammvilltumst á leiðinni niður og það tók góða stund í myrkri og éljum enda allt á fokkíng kafi í snjó.

Spönnin, Krókur og Kelda í aðstæðum, hugsanlega Greenpeace. Hægt að fara Hval 2 en hann er sketchy, Hvalur 3 bara með einstaka bunka og illfær. Sáum ekki alveg nógu vel á Glym en það var haugur af ís þarna og hugsanlega hægt að fara Þrym eða orginalinn. Veit ekki alveg með að labba þarna inn en kannski fínt að síga niður skrímslið.

Mæli meðessu!

Myndir komnar á Picasa

Ólafsfjarðarmúli 18-21.des 27 des 2011 17:52 #12586

Skrifað 27 des 2011 17:52
Ólafsfjarðarmúli 18-21.des
Skellti mér með Jökli og Gumma Dúllara í ólafsfjarðarmúlann. Þar er allt í myljandi aðstæðum og fullt af nýju stöffi til að klifra ef einhver er spenntur. Nóg af ís á einu af flottari klifrusvæðum hér á landi.
Mættum 2 teymum í múlanum en þeir voru ekkert að hafa fyrir því að láta almúgann vita...skamm skamm.

Kv.
Robbi

Re: Ólafsfjarðarmúli 18-21.des 27 des 2011 21:57 #12587

Skrifað 27 des 2011 21:57
Fór með Arnari í Ýring í dag 27. desember.
Efsta haftið er í mjög feitum og þægilegum aðstæðum. Mikill djúpur snjór neðst í gilinu sem styttir neðri höftin. Fyrsta langa haftið íslítið og tekur varla við skrúfum en er létt 3° klifur.

Fleiri myndir hér frá Glymsgili og Ýring
arnarogberglind.smugmug.com/2011/glymsgilogyringur/20774261_7pWBGK#1648756897_GNdvrbw
Attachments:

Re: Ólafsfjarðarmúli 18-21.des 27 des 2011 21:59 #12588

Skrifað 27 des 2011 21:59
Fór ásamt Óla Magg og Guðna í Brynjudal annan í jólum. Klifum tvær leiðir í breiðri ísbreiðu rétt ofan við og innan við Ingunnarstaði, nánartiltekið beint upp af áratugagömlu vörubílahræjunum. Fullt af ís þarna um 20-40 metra hár af 2-4 gráðu.

Virtum fyrir okkur Þrándarfoss. Hann er líklega vel kleifur, þó glitti í mikinn vatnselg inn í honum. Annars er allt fullt af fínum ís þarna í dalnum.

Á jóladag fórum við Óli hálf mislukkaðan túr upp eitt gil í Þyrlinum. Það reyndist öllu snjó og íslausara en okkur hafði sýnst frá veginum. Varð því lítið meira en göngutúr með minniháttar brölti.

Re: Ólafsfjarðarmúli 18-21.des 28 des 2011 21:09 #12594

Skrifað 28 des 2011 21:09
Sissi, Starkaður og undirritaður klifu Rísanda í Múlafjalli í gær. Leiðin er í mjög góðum aðstæðum. Stígandi, frá veginum séð, virtist einnig vera mjög ísmikill. Kertið í Íste náði ekki niður.

Kveðja,
AB

Re: Ólafsfjarðarmúli 18-21.des 28 des 2011 22:21 #12597

Skrifað 28 des 2011 22:21
Þrímenntum í Glymsgilið í dag, ég, Styrmir og Kalli.
Gaman að sjá gilið í aðstæðum. Skelltum okkur í Hval 1 og Þorsta. Hiklaust hægt að mæla með þessum leiðum. Þetta ku vera þriðji dagurinn í röð sem þessar leiðir eru heimsóttar! Allt að gerast í Glymsgili!

kveðja,
Arnar

Re: Ólafsfjarðarmúli 18-21.des 28 des 2011 23:06 #12599

Skrifað 28 des 2011 23:06
Sá að þau sem búa við Köldukinn voru að setja inn myndir af góðum aðstæðum, sjá á
www.flickr.com/photos/11245473@N02/

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Kinnin 30 des 2011 01:32 #12603

Skrifað 30 des 2011 01:32
Allt að drukkna í ís.
Stekkjastaur spikaðri en verið hefur í áraraðir og einhverjar nýjar línur í aðstæðum...
Vont að komast ekki norður í bráð :(

Re: Kinnin 31 des 2011 01:51 #12606

Skrifað 31 des 2011 01:51
Kinnin Rokkar!
kinn28.des.jpg

Öxarárfoss 01 jan 2012 16:17 #12608

Skrifað 01 jan 2012 16:17
PC270703.JPG


PC270703.JPG

Ég og Árni Stefán klifruðum Öxarárfoss á þriðja í jólum.
Ætluðum í Spora en leyst ekki á henguna sem hékk beint yfir fossinum þannig að við skelltum okkur á Þingvelli til að dagurinn væri ekki bara bíltúr og gönguferð í mittisdjúpum snjó.

Hvalfjörður á Nýársdag 01 jan 2012 17:49 #12609

Skrifað 01 jan 2012 17:49
Fór ásamt Arnari Emils, Berglindi og Sædísi í Hvalfjörðinn að morgni Nýársdags.
Ætluðum í Brynjudal en þar hafði ekkert bætt í ísinn síðan í byrjun des (sjá póst frá Robba þá).
Fórum því í Múlafjall og áttum góðan dag þó snjór hafi verið umtalsverður á svæðinu.
Lítið hafði bætt í ísinn síðan í jólaklifrinu um miðjan des og ekkert rennsli að sjá í leiðunum.
Samt fullt af ís þarna svo það er af nógu að taka.

Jæja, við Arnar hjóluðum í Mömmuleiðina í þunnum aðstæðum. Klipptum í þrjá bolta og börðum tólum ítrekað í steinefnin.
Síðan var það stóra verkefnið en það var Íste, sem var í afar hressandi aðstæðum. Kertið náði ca. hálfa leið niður og efri parturinn var hressandi líka.

Sædís og Berglind fóru í Stíganda í góðum gír á meðan og skemmti sér líka vel.

Endalaust af ís í Eilífsdal virtist vera. Þilið spikað og Súlurnar og Einfarinn feit líka. Ábyggilega ógrynni af snjó þar reyndar...

Nokkrar aðstæðumyndir á Picasa
Engar klifurmyndir þar sem við vorum bara tveir í teymi...

Re: Hvalfjörður á Nýársdag 02 jan 2012 17:11 #12613

Skrifað 02 jan 2012 17:11
sæl öllsömul og gleðilegt nýtt ár. við fórum tveir í næturklifur ég og pálmi ben fyrir áramótin. við lýstum upp frallið á móti með stórum kastara og var þetta alveg magnað. við klifruðum semsagt ísleið sem er í Illa gili í norðfirði. ísaðstæður eru mjög fínar hér fyrir austan og nóg af verkefnum.
vimeo.com/34420623 smá sýnishorn
kv. siggi villi

Ýringur 03 jan 2012 15:57 #12618

Skrifað 03 jan 2012 15:57
Styrmir og Freyr fóru Ýring í dag.

Slatti af snjó í gilinu gerir stuttu íshöftin styttri, sæmilegur ís.

Efsta haftið var alveg sílspikað af afbragðs ís, þurr og kaldur en ekki brothættur.

Gengum ofar í gilið til að skoða kertin fyrir ofan lokahaft Ýrings en snerum við vegna snjóflóðahættu en töluverður foksnjór var í skálinni efst í gilinu og greinilegur fleki sem hafði farið þar af stað.

Ekki ólíklegt að svipaðar aðstæður séu víðar.
Attachments:
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Ísaðstæður 2011-2012 04 jan 2012 13:19 #12623

Skrifað 04 jan 2012 13:19
Skunduðum tveir í Tvíburagil í gærdag (Jón Smári og Þórður Bergsson), líklegast óþarfi að segja frá því en aðstæður voru mjög góðar. Fórum leið sem ég kann ekki að nefna, en væri gaman að vita hvað heitir. Leiðin er innarlega og snýr niður gilið, hægra megin við boltaða mix-leið. Mikill snjór var/er upp á brúninni, þannig ómögulegt reyndist að finna akkerið. Sköpunargáfan fékk að njóta sín við þá smíð.

Kveðja,
Jón Smári

Re: Ísaðstæður 2011-2012 06 jan 2012 13:28 #12641

Skrifað 06 jan 2012 13:28
Ég og Ragnar Heiðar þræddum okkur í gegnum Nálaraugað í gær. Mikill snjór í efri hluta leiðarinnar og efra haftið er nær alveg hulið snjó. Dálítill snjómokstur fram hjá frekar fönnkí snjódrýlum við brúnina. Neðrihlutinn með mikið af ís og mjög fínn. Þetta er svo sem reyndar allt væntanlega að breytast eitthvað núna og næstu daga með þessum hlýindum.

Re: Ísaðstæður 2011-2012 07 jan 2012 18:56 #12650

Skrifað 07 jan 2012 18:56
Við Védís fórum í Múlafjall í dag. Veðurspáin sem lofaði björtu og köldu veðri gekk eftir. Rigning og suddi einkenndi daginn en það kom ekki að sök því ennþá er nóg af góðum ís.

Re: Ísaðstæður 2011-2012 09 jan 2012 00:54 #12657

Skrifað 09 jan 2012 00:54
Ég, Helgi Egilsson og Rúna Thorarensen skelltum okkur í stutta ísklifur og gönguskíðaferð nú í vikunni.
Við byrjuðum í Brynjudal þar sem allt var í brakandi aðstæðum (amk fyrir hláku) og klifruðum Þrándarstaðafossana. Þá var ferðinni heitið í Haukadalinn og vorum við líklega fyrstu klifrararnir þar á ferð þetta sísonið. Dalurinn er (eða amk var) fullur af ís og við klifruðum þar í tvo daga. Ef að sama er í gangi í Bíldudal eigum við vonandi feitt festival í vændum.
Þá var ferðinni heitið á Lýsuhól á Snæfellsnesi þar sem planið var að skíða á gönguskíðum. Ferðin þangað var sérstaklega skemmtileg og tók litla 6,5 tíma, oft á tíðum vorum við Rúna á broddum að ýta við bílnum til þess að halda honum á veginum. Setjum kannski inn ferðasögu/myndir seinna.

Hvernig er það annars með ísklifur á Snæfellsnesinu? Hefur mikið verið klifrað þar og ef já, þá bæði sunnan og norðan megin?

Re: Ísaðstæður 2011-2012 22 jan 2012 13:22 #12762

Skrifað 22 jan 2012 13:22
Múlafjall í gær, laugardag: - slatti af ís. Sumt blaut og þynnist oft aðiens uppi við brún. En vel hægt að klifra það.

Litum á Ýring og hann virðist vera á kafi í snjó að mestu leiti.

Góðar stundir,
Ívar
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Ísaðstæður 2011-2012 22 jan 2012 18:47 #12766

Skrifað 22 jan 2012 18:47


Við Gulli og Sissi renndum inn að Múlafjalli í morgun. Klifruðum Stíganda í prýðilegum aðstæðum. Rísandi virðist vera mjög góður líka. Leiðirnar austan við þær í misgóðum aðstæðum en margar hverjar líta vel út. Óríon galopinn, ekkert nema risahengja eftir. Sáum ekki inn í Eilífsdal, tel víst að ísinn sé enn til staðar.

Allez!

Skabbi

Re: Ísaðstæður 2011-2012 22 jan 2012 21:00 #12767

Skrifað 22 jan 2012 21:00
Daginn

Fór í dag ásamt Heiðu inní tvíburagil, sem er frábært svæði ef maður hefur aðeins part úr degi í sprikkl.

Ísinn í gilinu var blautur, samt mis-blautur, það hreinlega fossaði úr ísfossinum sem er neðst í gilinu (hliðiná helvítis fokking fokk), það dropaði hressilega úr kertunum hjá ólympísku leiðinni en efsti ísfossinn var í ágætis aðstæðum.

Ágætis snjósöfnun hefur átt sér stað í gilinu, sérstakleg í því ofanverðu, og er vænn snjóbunki fyrir ofan flestar leiðirnar. Einnig er þónokkur snjór efst í gilinu sjálfu (gönguleiðinni uppá topp) sem liggur á íslagi og gertur því verið mjög staðbundin flóðahætta af þeim sökum, m.ö.o. athuga ætti leiðarval þegar labbað er uppá brún úr gilinu.

Toppakkerin finnast ekki, líklegast eru þau undir ísbunka sem er á melunum fyrir ofan leiðirnar, auðvelt er að gera toppakkeri úr þessum ísbunka í líklega allar leiðirnar á svæðinu, ef línan sem er notuð er nógu löng. Við notuðum 70m línu í dag og henntaði hún aðstæðum vel.

Kveðja

Doddi

Re: Ísaðstæður 2011-2012 22 jan 2012 21:08 #12768

Skrifað 22 jan 2012 21:08
Gleymdi að nefna.

Keyrði fram hjá Spora í gær og leit hann út (séð frá veginum) að vera í eðal skíðaaðstæðum, gæti orðið skemmtilegt mission

kv.

Doddi

Re: Ísaðstæður 2011-2012 22 jan 2012 23:43 #12769

Skrifað 22 jan 2012 23:43
Ég Styrmir og Freyr skelltum okkur í Austurárdal í dag 22. jan.
Klifruðum Kidda og Bláu leiðina í fínum aðstæðum. Kiddi var spik feitur til að byrja með en þegar nálgast fór toppinn þá var gæði íssins ekki upp á marga fiska og kláruðum við upp á brún . Bláa leiðin var nokkuð þunn sérstaklega byrjunin. Túrisaleiðin leit vel út.
Það er stór hengja yfir flestum leiðunum. Mæli með að siga úr seinasta ís bunka. Stóra ófarna kertið fyrir miðju hefur hrunið nýlega og er skuggalegt að sjá stærðina á þessu.

Klifur kveðjur Arnar Þór

Re: Ísaðstæður 2011-2012 05 feb 2012 21:19 #12838

Skrifað 05 feb 2012 21:19
Renndi framhjá Múlafjalli í dag.
Þar er allt löðrandi í ís, en hann virðist loða illa við klettinn og þarf eitthvað frost til að sé allt í góðu.

Klifraði í Vesturbrúnum esjunnar í dag. Klifruðum 3ja gil vinstramegin við anarbasis. Tæknilegt illtryggjanlegt klifur í eina spönn yfir lítið klettaþak. Brattur snjór með höftum upp á brún.

Snjóaðstæður eru með besta móti og allt grjót hart. Vil benda á að í vesturbrúnum, kistufelli og virkinu í esjunni er að finna frábærar snjóklifurleiðir. Snjórinn tekur vel við tryggingum svo það er um að gera að fara út að hrista á sér rassinn.

Kv.
robbi

Re: Ísaðstæður 2011-2012 20 feb 2012 11:11 #12910

Skrifað 20 feb 2012 11:11
Ég og Ottó Ingi kíktum í Múlafjall seinasta laugardag og klifruðum hægri leiðina í Rísanda. Það hefði mátt vera meiri ís í fyrstu spönninni og fengum við smá sturtu þar en eftir það var nóg af ís.

Í vinstri leiðinni var einhver ísdrjóli beint upp í loftið en hann fellur ekki nógu vel að vegnum til þess að hægt sé að klifra hann með góðu móti.


Gerði heiðarlega tilraun til að henda myndum inn en það var ekki alveg að virka. Reyni að græja það á eftir.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 1.19 sek