Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Góða veðrið í dag

Góða veðrið í dag 27 nóv 2011 20:42 #12349

Skrifað 27 nóv 2011 20:42
Skelltum okkur á Kistufell í dag, ég, Sissi og Skabbi. Hef aldrei gert þetta áður og fannst þetta bara assgoti gaman. Vonandi fóru fleiri og léku sér í blíðunni.

Nokkrar myndir og "ferðasaga" hér:

http://gulli.smugmug.com/2011/Kistufell/20295850_CKhJfC#1604728104_VVh2Vfd


kallarnir.jpg

Re: Góða veðrið í dag 27 nóv 2011 20:49 #12351

Skrifað 27 nóv 2011 20:49
Flott hjá ykkur og gaman hvað myndirnar koma vel út í svona low-angle sól!

Við ætluðum að skokka uppá Botnsúlur í dag en hættum við þar sem þokan var helvíti þétt, tókum bara góða æfingu hér í Reykjavík þess í stað.
Það hvarflaði reyndar að okkur að fara á Kistufellið, enda búið að vera á stefnuskránni lengi.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Góða veðrið í dag 27 nóv 2011 22:16 #12352

Skrifað 27 nóv 2011 22:16
Já, eins og Gulli segir þá var þetta hreint út sagt alveg æðislegur dagur. Þessi hryggur er alveg stórskemmtilegur og er búinn að vera á listanum lengi. Við Skabbi fórum Kistufellshornið um árið (gilið) en mér finnst þessi nú skemmtilegri.

Tók nokkrar myndir líka


kallarnir2.JPG
Notendur sem þakka:: Andri Bjarnason, Smári Stefánsson

Re: Góða veðrið í dag 28 nóv 2011 09:57 #12354

Skrifað 28 nóv 2011 09:57
Takk fyrir daginn drengir og myndirnar!

Það var hreint magnað hvað hafði snjóað á skömmum tíma, við óðum snjó upp að hnjám lengi vel. Ef e-ð bætir í verður Esjan fljótlega vel skíðafær.

Allez!

Skabbi

Re: Góða veðrið í dag 01 des 2011 15:47 #12377

Skrifað 01 des 2011 15:47
Fór ásamt fríðu föruneyti af svæði 3 í "alpaferð" langleiðina upp Gígjökulinn og niður aftur og náðum við að hitta á að fara úr bíl í bíl í björtu.

Vitið þið um marga sem hafa brölt upp allan jökulinn eftir gos?
Attachments:

Re: Góða veðrið í dag 01 des 2011 17:09 #12378

Skrifað 01 des 2011 17:09
Sævar Logi Ólafsson wrote:
Fór ásamt fríðu föruneyti af svæði 3 í "alpaferð" langleiðina upp Gígjökulinn og niður aftur og náðum við að hitta á að fara úr bíl í bíl í björtu.

Vitið þið um marga sem hafa brölt upp allan jökulinn eftir gos?


Ertu með einhverja frekari leiðarlýsingu, myndir og jafnvel GPs trakk?

kv.

BO

Re: Góða veðrið í dag 01 des 2011 21:11 #12381

Skrifað 01 des 2011 21:11
Djöfulsins snilld !

Ég keyri reglulega þarna inneftir og er búinn að horfa á jökulinn frá gosi og alltaf langað að skella mér þarna upp. Eru þið með einhverja myndasíðu til að skoða?

Gaman að sjá að það eru ekki allir bara að selja dótið sitt...það eru einhverjir að nota það líka

Tveir þumlar fyrir þessu !

Robbi
Notendur sem þakka:: Sævar Logi Ólafsson

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 10:14 #12386

Skrifað 02 des 2011 10:14
Robbi, hérna eru nokkrar myndir af Gígjöklinum, hvorki margar né frábærar, en við skulum taka viljann fyrir verkið :)

picasaweb.google.com/slo.lighting/Gigjokull27Nov2011

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 10:34 #12387

Skrifað 02 des 2011 10:34
Sævar Logi Ólafsson wrote:
Robbi, hérna eru nokkrar myndir af Gígjöklinum, hvorki margar né frábærar, en við skulum taka viljann fyrir verkið :)

picasaweb.google.com/slo.lighting/Gigjokull27Nov2011


Hversu hátt fóruð þið? Hæðarlína, kennileiti?

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 10:57 #12389

Skrifað 02 des 2011 10:57
Fórum ekki nema í einhverja tæpa 600m, en það virkaði mun strembnara á sunnudaginn, heldur en núna þegar maður skoðar þetta svona á tölvunni, en hérna er mynd af trackinu og hæðarferlinum.
Attachments:

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 11:49 #12390

Skrifað 02 des 2011 11:49
Sammála Sævari. Þetta virkar ekki mjög erfitt svona á mynd og í raun heldur ekki þegar maður kemur að jöklinum. En hann kom á óvart. Hefði verið til í að fara lengra ef um Laugardag hefði verið að ræða og tjald með í för en ekki bara bívac :-)

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 13:22 #12391

Skrifað 02 des 2011 13:22
IMG_3016Large.JPG

Ágúst 2011
Sævar Logi Ólafsson wrote:
Fórum ekki nema í einhverja tæpa 600m, en það virkaði mun strembnara á sunnudaginn, heldur en núna þegar maður skoðar þetta svona á tölvunni, en hérna er mynd af trackinu og hæðarferlinum.


Takk fyrir þetta. Ég var spenntur að sjá hversu hátt þið fóruð þar sem þú nefndir að þið hefðuð farið "langleiðina" upp Gígjökul. Þið hafið sem sagt rétt farið um 20-25% skv trakkinu. Annars flott og það verður að gaman að sjá þegar einhver heldur áfram með þetta verkefni.+


IMG_3309Large.JPG

Ágúst 2011
-
Jökullinn er sprunginn í drasl þarna, svo það er úm að gera að nýta tímann rétt eftir massífa snjókomu (en þá leynast hætturnar betur.)


2010-04-21BO49Large.jpg

Apríl 2010


Tveir þumlar upp ;)

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 13:37 #12392

Skrifað 02 des 2011 13:37
Langleiðin hljómaði bara svo miklu flottara :)
Aldrei láta góða sögu gjalda sannleikans, var það ekki eitthvað máltæki?

Re: Góða veðrið í dag 02 des 2011 16:04 #12394

Skrifað 02 des 2011 16:04
Fór um það bil þessa sömu "langleið" upp jökulinn rétt fyrir gos. Skemmtilegt bröllt, sambland af jöklaplampi og ágætu ísklifri. Jökullinn virðist ótrúlega lítið breyttur síðan þá, amk í þessari hæð. Það er samt full ástæða til þess að hafa auga með því sem er fyrir ofan mann. Virkilega stór stykki sem geta farið af stað þarna. Hér eru myndir síðan þá: www.flickr.com/photos/steinarsig/sets/72157622866298077/detail/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek